Vísir - 02.08.1968, Síða 3
VÍSIR . Föstudagur 2. ágúst 1968.
3
Lengst til vinstri er fráfarandi forseti, herra Ásgeir Ásgeirsson, forsetafrú Halldóra Eldjám, hinn nýi forseti, herra Kristján Eldjárn, dr. Bjami Benediktsson, forsætisráð-
herra, forseti Hæstaréttar, Jónatan Hallvarösson og Birgir Finnsson, forseti Sameinaös Alþingis. í forgrunni eru sendimenn erlendra ríkja.
Þriðji forseti
Islands tekur
við embætti
Frá embættisfóku herra Kristjáns Eldjárns
lþað rigndi fyrr um daginn, en
skömm. eftir hádegisbilið
tók að stytta upp. Þrátt fyrir út
lit á áframhaldandi skúrum var
margt fólk á ferli í miöborg-
inni, og það var augljóst af and
rúmsloftinu, að eitthvað sér-
stakt stóð fyrir dyrum.
Fyrir klukkan 3 hafði alger-
lega stytt upp, og regnskýin
voru á hröðu undanhaldi fyrir
sólargeislunum, og á Austur
velli var þegar samankomin mik
il mannþröng. Enda ekki að á-
stæðulausu, því að í gær tók
við embætti nýr forseti Islands,
herra Kristján Eldjám.
Það þarf oftlega minna til
þess aö Myndsjáin fari á stúf-
ana, og að sjálfsögðu fór blaða-
maður hennar til að vera við-
staddur þessa athöfn, sem hófst
í Dómkirkjunni.
Inn í Dómkirkjuna fór blaða
maðurinn tímanlega til þess að
lýsa atburðunum frá sama sjón
armiöi og hver annar borgari
átti kost á að sjá þá gerast.
Uppi á lofti f Dómkirkjunni
ríkti þetta einkennilega sam-
bland af þögn og hávaða, sem
fyrirfinnst alls staöar, þar sem
menn finna að mikið liggur við
að hátíðleikasvipur sé yfir þvi
sem gerist. Fólk var yfirleitt
prúðbúið alvarlegt á svip og
reyndi að hafa hljótt um sig
eftir föngum. Þó voru þama
nokkrir náungar, sem greinilega
vom erlendir ferðamenn, í mol-
skinnsbuxum og járnbentum
klossum, en með myndavélar,
sem voru margra þúsunda virði.
Þarna uppi á loftinu var líka
staddur ungur maður, kom-
ungur maður, á að gizka 3 ára,
Birgir að nafni, ásamt tveimur
barnfóstrum, sem höfðu strangt
eftirlit með honum. (Það skal
tekið fram til að forða Birgi frá
álitshnekki, að hann hegðaði
sér í alla staði prúðmannlega
meöan forsetavígslan fór fram,
og ríslaði sér við að aka dráttar
vél úr plasti um kirkjugólfíð —
hávaðalaust).
Kirkjugestir risu úr sætum og
hljóðnuðu, þegar hinn nýkjömi
forseti gekk i salinn ásamt konu
sinni, frú Halldóru Ingólfsdótt-
ur, og fráfarandi forseta, herra
Ásgeiri Ásgeirssyni, forsætis-
ráöherra og handhöfum forseta^
valds.
Sunginn var sálmur og bisk
upinn yfir íslandi flutti predik-
un. Að lokinni athöfninni í Dóm
kirkjunni var gengið yfir 1 Al-
þingishúsið, þar sem forseti Is-
lands, herra Kristján Eldjám,
undirritaði embættiseið sinn. Aö
því loknu gekk hann út á svalir
Alþingishússins með frú Hall-
dóru. konu sinni, og mannfjöld
inn úti fyrir hyllti þau hjónin.
Að sfðustu flutti forsetinn
fyrstu embættisræðu sína. þar
sem hann bar verðskuldað lof-
á fyrirrennara sinn f embættinu
herra Ásgeir Ásgeirsson, og
Svein Björnsson fyrsta forseta
hins fslenzka lýðveldis
Ekki mun Myndsjáin að sinni
rekja nánar ræðu forsetans en
að henni var gerður mjög góður
rómur.
Þessi fyrsti dagur ágústmán-
aðar mun að líkindum lengi L
minnum hafður tneð tslending-
um, þegar hinn þriðji forseti
ungs lýðveldis tók við embætti.
Eftir embættistöku forsetans
dokuðu gestir um stund við i
salarkynnum Alþingishússins,
og forsetahjónin heilsuðu þar
upp á fréttamenn, sem af heil
um hug drukku þar skál herra
Kristjáns Eldjárns og frú Hail-
dóru.
Forseti Islands, herra Kristján Eldjám og forseti Hæstaréttar, Jónatan Hallvarðsson ganga í kirkju.
Á eftir koma, frú Halldóra Eldjárn og biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson.
Forseta afhent kjörbréf. Frá hægri Jónatan Hallvarösson, Sigurður Lindal, frú Halldóra, herra Ásgeir
Ásgeirsson og herra Kristján Eldjám.