Vísir - 08.08.1968, Blaðsíða 6
6
VISIR . Fimmtudagur 8. ágúst 1968.
TÓNABÍÓ
tslenzkur texti.
(Return of the Seven)
Snilldar vel gerð og hörku-
spennandi, ný amerísk mynd
í litum og Panavision.
Yul Brynner.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
STIÖRNUBIÓ
Dæmdur saklaus
íslenzkur texti.
Ný, amerisk stórmynd með
Marlon Brando
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð bömum innan 14 ára.
íslenzkur texti.
(Rififi 'n Amsterdam)
Hörkuspennandi, ný ítölsk-
amerísk sakamálamynd í lit-
um.
Sýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
GAMLA BÍÓ
Brostm hamingja
(Raintree Country)
með Elizabeih Taylor
Montgomery Clift.
Eva Marie Saint.
Endursýnd kl 5 og 9.
Bönnu' innan 12 ára.
BÆIARBÍÓ
Glæpamenn i Lissabon
Spennandi, amerísk stórmynd
í litum með Oscars-verðlauna-
hafanum:
Ray Milland, ásamt
Maureen O'Hara
Sýnd kl. 9.
Bönnuö börnum innan 14 ára.
Angelique i ánauð
Sýnd kl. 7.
Bönnuð býmum.
Síöasta sinn.
Risaþotan „Boeing-747“ og „L jeing - 727“ eins og Flugfélagið á í réttum stærðarhlutföllum.
Nýja risaþotan „Boeing-747
100 smálesta tarmur - eðo 490 farbegar i sæti
Cíðustu áratugina hafa skipa-
^ félögin og flugfélögin háö
harða baráttu um farþegaflutn-
inga yfir úthöfin. Þeirri baráttu
virðist nú lokið meö yfirburða
sigri flugfélaganna. En nú er
önnur barátta hafin milli þess-
ara aðila, aö- vísu má segja aö
hún hafi þegar staðið um nokk
urt skeið, þótt það sé fyrst og
fremst nú, sem harka hefur
færzt í átökin. Og þau eiga
áreiðanleg eftir að harðna enn,
og nú standa þau um vöru-
flutninga yfir úthöfin, landa og
álfa á milli.
an þátt í úrslitum baráttunnar
um farþegaflutningana, með
smíöi á Boeing-þotunum, sem
állir kannast við. Nú er svo aö
sjá aö þessar sömu verksmiðj
ur ætli aö taka forystu meö
smíði á risaþotum, sem jafnt
má. nota til farþega- og vöru-
flutninga — „Boeing - 747“.
Þegar fyrstu Boeing-þoturnar af
þessari gerð verða afhentar
kaupendurr seint á næsta ári.
verða þær stærstu þoturnar,
sem enn hafa verið smíðaðar —
og þær hraðfleygustu að hljóð
frömum þotum undanskildum.
Sem vöruflutninga-þota getur
„Boeing-747“ flutt um 100 smá
lestir af farmi. Sem farþega-
þota tekur hún 490 farþega i
sæti og verður þó rýmra um þá
en í flestum farþega-flugvélum.
„SST“ tekur hins vegar ekki
„nema" 350 farþega. Það veitir
nokkra hugmynd um hvílík fer-
líki þama verður á ferðinni, að
lengd „Boeing-747“ verður um
70 m, og stélið rís hærra en
fimm hæða bygging. Hún veröur
dinúin fjórum hreyflum, og nem
ur þrýstiorka þeirra 19,731 kg.
eöa nærri tvöföld. miðuð við
stærstu farþegaþotur, sem nú
gerast. Þrátt fyrir þessa tröll-
Eins og í baráttunni um far-
þegaflutningana, eru það hinar
miklu flugvélaverksmiðjur, sem
fá flugfélögunum „hergögn“ f
hendur og margt bendir til aö
það fari á sömu leið og áður —
að þau hergögn dugi flugfé-
lögunum enn til sigurs.
Það er engum vafa bundið, aö
Boeing-verksmiðjumar áttu snar
Raunar hafa Boeing-verksmiðj-
umar einnig í smíöum hljóö-
framar farþegaþotur, „SST“ —
skammstöfun á „Super-sonic
Transport" — en þær hafa
minna flutningsrými og sérfræö
ingar verksmiðjanna fullyrða að
þær veröi, þrátt fyrir hraðann,
ekki eins hagkvæmar í rekstri
fyrir flugfélögin og „Boeing
-747“.
auknu stærð og orku, þarf „Bo-
eing-747“ ekki lengri braut til
flugtaks og lendingar við allar
eðlilegar aðstæður en „DC-8“ og
„Boeing-707“, eða aðrar hlið-
stæðar farþegaþotur ,sem nú
eru . notkun.
Þótt þessi risa-þota kosti að
sjálfsögðu skiidinginn sinn, eða
um 20 millj. dollara, lítur ekki
út fyrir að verksmiðjumar þurfi
að kvíða kaupendaskorti. Þegar
hafa borizt pantanir frá öllum
helztu flugfélögum heims. sem
nema samtals 2.5 þús. millj.
dollara, og er það algert met á
því sviði. Það, sem flugfélögin
sjá sér vænstan leik á borði. er
reksturshagkvæmni þessara
véla. Miöað við farþegaflutninga
munu þær lækka sætismfluna
um 20—30% — en sætismíla
telst heildarkostnaöur við flug-
mílu, eftir að deilt he'ur verið
með sætafjölda. Miðað við vöru
flut-'nga, lækka þessar vélar
smálestarmfluna um 30—40%,
þegar til kemur.
Gert ráð fyrir þrenns konar
notkunarmöguleikum „Boeing-
747.“ 1 fyrsta lagi eingöngu til
farþegaflutninga, með allt að
490 sætum. 1 öðru lagi eingöngu
til vöruflutn, með rými fyrir
100 smálesta farm. í þriðja iagi
að nokkru leyti til farþega- og
nokkru leyti til vöruflutninga
— eða ýmist —með fljótlegri
breytingu á milli.
Sérfræðingar telja, að þróunin
í almennu flugi á undanförnum
árum krefjist bess beinlinis að
slíkar risaflugvélar verði teknar
í notkun sem fyrst. Árið 1965
töldust flugtök og lendingar á
flugvöllum, sem skýrslur ná til,
um sjö milljónir. Miðað við flug
vélar af núverandi stærð annars
vegar og flutningsaukningu hins
vegar, yröi sú tala komin upp í
tuttusu milljónii 1975. En meö
því að taka í notkun vélar eins
og „Boeing-747“ mætti halda
þeirri tölu í sem næst tólf millj.
Hvað kipafélögin hafa svo
yfirleitt um þessa þróun aö
segja, og hvert svar þeirra verð
ur, er svo annað mál.
HÁSKÓLABÍÓ
Kæn er konan
(Deadlier than the Male)
Æsispennandi mynd frá Rank
í litum, gerö samkvæmt kvik-
myndahandriti eftir Jimmy
Sangster, David Osborn og Liz
Charles-Williams. Framleiöandi
Betty E. Box. Leikstjóri Ralph
Thomas.
/.ðalhlutverk:
Richard Johnson
Rlke Sommer
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 3, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
HAFNARBIO
Kvennagullið
kemur heim
Fjörug .g skemmtileg litmynd
með hinum vinsælu ungu leik-
urum Ann Margret og P.lichae)
Parks.
fslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
MÝJA BÍÓ
Drottning hinna
herskáu kvenna
(Prehistoric Women)
Mjög spennandi ævintýra-
mynd f litum og Cinemascope.
Martine Jeswick
Edina Ronay
Bönnuð yngri en 12 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ
Darling
Meö Julie Christie og Dick
Borgarde. — Endursýnd kl. 5
og 9.
íslenzkur texti.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Tigrisdýrið
Sérstaklega spennandi frönsk
sakamálamynd.
Roger Hanin.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.