Vísir - 10.08.1968, Side 7

Vísir - 10.08.1968, Side 7
V í S IR . Laugardagur 10. ágúst 1968. 7 KIRKJÆN O O ÞJÓÖliy r i i s • X s f^\ X Iruið a vruð Hugvekjan, sem Kirkjusíða Vísis flytur i dag er stólræða, haldin í Hvalsneskirkju sumarið 1935 af þáverandi presti á Útskálum, sr. Eiríki Sv. Brynjólfssyni. Hvalsneskirkja (Ljósm. Þorst. Jósepsson). Kirkjur á Suðurnesjum TVfförg fegurstu orðin, sem Jesús hefur talað, eru rit- uð í guðspjalli Jóhannesar. Þar á meðal er kaflinn, sem ég las áðan. Mörg versin í honum verða ógleymanleg ef einu sinni hafa verið lesin. Þeirra á með- al er þetta: Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist, trúið á Guð og trúið á mig. Það þýðir veriö ekki órólegir i hjörtum yðar. Verið trúaðir. Það eru' til svo mörg óróleg hjörtu. Ég hugsa, að fleiri en einn komi hingað í dag vegna þess að órósemi hjartna þeirra kijýr þá ásamt þrá eftir þéirri hvfld, sem er þar sem Guð er nálægur. Það eru margar órósamar hugsanir, er vakna í sálu manns- ins hér í heimi. Einn er áhyggju- fullur eða órólegur vegna tím- anlegrar afkomu sinnar, Hann getur vart séð sér og sínum far- borða, sér starfskraftana þverra og ellina færast nær. — Hvemig fer þegar hann er oröinn gam- all? Hver annast um börnin, ástvinina, eöa hver á aö að- stoða og hjálpa ef hann eða hún fellur skyndilega frá? — Annar hefur ábyrgðarmikiö starf með höndum. Hann finnur aö hann getur ekki leyst það eins vel og ætti að vera. Alls staðar eru verkefnin. En kraftar og mögu- leikar svo veikir til að starfa. 1 lífinu er svo margt sem vekur órósemi hugans. Hver veröur endir alls þess erfiðis, baráttunnar, þess taumlausa lífs hinna mörgu stefna sem heyja , baráttuna um yfirráðin yfir mannssálunum. Áhyggjur og órósemi vakna af hinum margvíslegustu orsök um. En hvar er það hjarta, sem ekki geymir meira og minna af því í djúpum sínum? Eins kon ar leyndur kvíði, er allt í einu getur brotizt fram og haft á- hrif á allt hugarfarið og sálar- lífið. Því eru þessi orð: Hjörtu yðar skulu ekki vera óróleg. Trúið á Guð, hverjum einasta manni fagnaðarerindi, læknismeðal við alvarlegasta meininu, sjúkdómi er aldrei gefur friö. Það er eins og í orðunum sjálfum sé hugg- andi og. svalandi kraftur. Það ,sem hjálpar er ekki kenn ing um Guð, heldur barnslegt traust á Guði. Órói og kviöi koma af því að allt er svo ó- Ijóst, allt mögulegt, skelfilegt getur komið fyrir. Þó ég hafi það ágætt í alla staði núna, veit ég ekkert hvernig ég muni hafa það á morgun eöa hinn dagmn. Þá er lækningin að vita, að finna, að eitthvað er til svo ör- uggt, aö það getur aldrei brugð- izt. Þessi vissa á að grípa yfir alla óvissu. Ef ég eignast vissu um aö Guð er veruleiki, sem aldrei bregzt, sem ég finn í öllu og fyrir hvern allt verður til góðs, er óvissa, allur kvíði yfir unninn. Órósemi er skortur á trú. Trú in á Guð er útilokun óróleikans og kvíðans. Sá, sem trúir á Guð, bíður öruggur þó ekki fari allt þegar í stað að vilja hans. Með rósemi og styrk er hann vongóður og hugrakkur á festu og þrótt. Og eitt gerir hann. Hann bið ur. Bænin gefur ró og friö, því hún veitir meiri trú á Guö. Bæn in gefur dagiega nýjan kraft og nýjan skilning á vandamálum og viðfahgsefnum lífsbaráttunn- ar. Þá leggjum við á hverju augnabliki allt i hönd hans og treysl^.,i því að í hendi hans verði allt að blessun og oss til góös. Trúin á Guð gefur kraft til aö starfa rólega, viturlega og með sigurvissu þegar hinn óró- legi eða hræddi hleypur úr einu í annað, eða lætur hendur falla í skaut lamaður af ótta. Sagan um sigurför fagnagarerindisins á jöröinni sýnir þessa fjölmörg dæmi. Og í einfaldasta og óbrotnasta hversdagslífi er trúin á Guð kraftur til starfa. Trúin er ekki afskiptaleysi, áhugaleysf, iðju- leysi. Trúin gefur það vonglaöa bjartsýna hugarfar. Það er sá eini jarövegur, sem máttur sigr andi starfsemi sprettur upp af. Sá, sem trúir, sáir og vökvar með von. Því hann veit að lífs- ins Guö ^efur ávöxtinn, hið andlega Iíf og trúarlega hugs- un. Hann er glaður, því hann veit að allt »r í hendi hans, sem er máttur og eilíf gæzka „Áfram því með dug og dáð, Drottins studdir ást og náð“, er kjörorð hins trúaða. Svo veit hann, að á jarðlífsvegum sínum stefnir hann heim þangaö sem sólin skín eilíflega. Þar sem Guð er allt í öllu, þar sigrar lífið yfir dauðanum. En forgengileiki lífsins, óvissan, dauðinn liggur bak við alla óró semi. Þess vegna er það líka þannig, aö sá sem veit, að það er fullkomlega víst að þjáningar og dauði eru inngangur til æðra lífs, sem hann mætir er í hendi Guðs hefur yfirunnið alla óró- semi. Trúið á Guö! Ekkert er jafn óumræðilega mikilvægt nú á tímum eins og að hjálpa mönn um til trúarinnar á Guð, trúar sem er sigrandi kraftur. Oftast erum viö mjög vanmáttug til þess aö geta það. Þaö tekst ekki meö fögrum orðum vizku eða vísindum, rökræðum eða deilum um tilveru Guðs. En frá þeim ,sem er trúaöur f innsta eðli sínu, streymir eitt hvað af krafti trúarinnar. vissu og öryggi. Það er hægt aö hjálpa öðrum til að eignast trú með trúarlífi. Mér finnst oft, að nútíminn þrái þaö heitt að sjá trúna sem lifandi kraft, sem fórnfýsi til að leggja í áhættu, sigra. Æskulýður þrái aö sjá einhvern ryöja brautina, ganga á undan, öruggan, sigri hrós- andi, djarfan og hugaðan. Þá kæmu margir á eftir. En þetta er það, sem vant- ar sárast í lífi nútímans. Líf sem algjörlega er borið uppi af krafti trúarinnar. „Trúið á Guð og trúið á mig.“ Það er aðeins einn, sem getur sagt þetta án þess að hika. Er ekki allt hans Iíf ein stórkostleg hvatning til allra bræðra hans og| systra: Hjörtu yðar skulu ekki vera óróleg. Trúið á Guð, Þessi hvatning fær kraft sinn frá persónu hans. Jesús setti ekki fram heimspekilega sönnun fyr- ir tilveru Guðs. Hann svaraði aldrei með nokkrum skýringum eða rökræðum, árásum annarra og aðkasti á guðstrúna. Og þó finnum við, aö ef nokkuð í heim inum gæti fengiö oss til aö trúa á Guð þá er það Jesús, eins og guðspjöllin lýsa honum. Hann talar um Guö eins og þann, sem hann hefur séð og heyrt. Kennir oss að ávarpa hann með orðinu faðir, því orði sem hvert barn lærir fyrst að/ segja. Þar er engin aöskilnaður, Jesús og Guð eru eitt. Því segir hann: Trúið á mig. Það er að trúa á Guð. Það sem Jesús er, er hann af því hann er í Guði og Guð er f honum. Að finna Jesú er að finna Guð. „Sá sem sér mig sér föðurinn". Af því hann getur sagt þetta, er hann vegur inn sem liggur að hjarta Guðs. Fyrir hverja er Jesús vegur- inn? Kannski aöeins fyrir þá, sem hafa rétta kenningu um hann, sem vita mest um hann? Nei, fyrir þá, sem láta sann- Ieikann, er hann boðaði ákvarða stefnu lífs síns, sannleikann, sem hann he'fur tekið á móti frá Jesú. Hann talar sönnustu og dýpstu oröin um mannlífið. Því á líf vort að vera samfelld við- leitni eftir að líkjast honum. Þá getur hann orðið oss öllum veg- urinn. er leiði oss við hönd sér til Guðs. „Ég fer til föðurins" segir Tesú ákveðið. „Ég veit hvaðan ég kom og hvert ég fer. Ég fer til fööurins." O" við getum held ur ekki, þegar viö horfum á hans fullkomna líf, efazt um að það var þan- \ sem hann fór. Og T>ar er hann. Er þá ekki alveg öruggt, að ef hann verður ss,. > ] o 8fau ^ Suðurnesjum eru kirkjur á þessum stööum: í Krýsuvík í Járngerðarstaðahverfi í Grinda vík, í Kirkjuvogi í Höfnum, á Hvalnesi á Miðnesi, á Útskálum í Garði, í Keflavík, í Innri-Njarð vík og á Kálfatjörn á Vatnsleysu strönd. Eru þetta samtals átta kirkjur. Hins vegar eru sóknirn ar ekki nema sjö, þar sem Krýsu víkursökn var lögð til Grinda- víkursóknar árið 1929 og kirkj an af tekin. Síðar fór öll sóknin í auðn, en engu aö síður stóð kirkjan og stendur enn eins og síðar mun sagt verða er nánar verður um hana fjallað. Allar eiga kirkjur Suðurnesja sína sögu og hafa sér til ágæt- is nokkuð. Einni þeirra þjónaöi um sjö ára skeið kunnasti prest ur íslenzku kirkjunnaf, sjálfur Hallgrímur Pétursson. Hann vígðist þangað 1644. Mun þar þá hafa verið estlaust í nokkur ár. Um þá vígslu var sögð sú fræga setning: „Allan skr... vígja þeir“. Um þaö leyti sem sr. Hall- grímur fékk Hvalsnes var ’’ar kirkja hrörleg ,,og ekki hæf til kirkjulegrar þjónustu“. svo hann ¥ékk strax það verkefni að reisa messuhæft guðshús. hvað hann og geröi. Var sú kirki uppbyggö af góðum kost um með vænni súð og máttar- viðum öllum sterkum, máluð þrík yfir altari og grá^ur og tvær messingpípur (stjakár) og Ijósaöx, gefið kirkiunni af Bás- endakaupmanni. Á Hvalsnesi missti sr. Hallgrímur Steinunni dóttur sína, sem hann kvað eft- ir hin kunnu erfiljóö: Unun var augum mínum ávallt að líta þig,' með ungdómsástum þínum ætíð þú gladdir mig, rétt yndis-elskulig. Auðsveip og hjarta hlýðug í harðri sótt ' vel lýðug sem jafnnn sýndi sig. Næm, skynsöm, ljúf í lyndi lífs meðan varstu hér eftirlæti og yrtdi ætíð hafði ég af þér, > í minni muntu mér. Því mun ég þig með tárum * þreyja af huga sárum heim til þess héðan fer. Hvílist nú holdið unga af harmi og sorgum mætt, svipt öllum sóttarþunga svo er þér nú óhætt. Dóttir mín, böl er bætt. Frjáls við synd, fár og dauða fyrir Jesú blóðiö rauða sefur í Drottni sætt. Énda þótt ólíku sé saman að p jafna, má geta þess, að um einni | öld síðar hélt annað skáld Hvals | nesþing. Það var sr. Eiríkur | Bjarnason, sem þar var prestur | 1755—67. Var hann i ýmsum | brauöum, jafnan við mikla fá- f tækt, vel gafinn naður og vand I aður þótt ekki þætti mikiö til hans koma. Hann var mjög af- kastamikiö skáld og liggur eftir hann býsn af -sálmum, rímum og kvæöun. Eitt af ljóðum S hans kunna allir og syngja enn í dag því að það var sr. Eiríkur sem þýddi Gamla Nóa eftir Bell- mann. Síðasti prestur á Hvalsnesi var sr. Eiríkur Guðmundsson prests í Kálfholti, Bergssonar jrests í Bjarnanesi, sem mikiö fjölmenni er frá komiö. Sr. Ei- ríkur vígðist að Hvalsnesi 13, nóvember 1796, fyrstur presta í Reykiavíkurdómkirkju. Hann fékk Útskála 1811 og varð Hvals nes þá annexía þaðan. Hefur svo verið síöan. Kirkja var reist á Hvalsnesi árið 1370. Skyldi þar vera heim ilisprestur og syngja hvern helgan dag. Torfkirkjur og sjálf- sagt næsta fátæklegar og lág- m-* io. síðu. | Aðalatriðið Á FERÐ SINNI um Vesturland árið 1815 kom Henderson að Kambi í Reykhólasveit og segir svo frá: „Konan og bóndinn voru með afbrigðum opinská og málgefin. Þau spurðu mig margra spurninga um England og hvernig háttað væri um bændur þar. Reyndi það eng- I an veginn lítið á hugvitiö að svara sannleikanum sam ; kvæmt, en þó svo að gestgjafar mínir fyndu ekki til þess, : hversu kringumstæður þeírra væru fjarska miklu lítil- j jnótlegri. Þegar þetta efni bar á góma eins og það þrá faldlega gerði á ferðum mínum á Islandi, tók ég venju lega það ráðið, að víkja samtalinu að því, að fyrir okkur j dægurflugurnar skipti minnstu máli um hinar ytri að j stæður, aðalatriðið væri árvekni um Guðs náð og sú ör ! ugga von á henni reist, aö þegar þessum skammvinnu oe j óvissu ævistundum lýkur, bíði okkar hlutdeild í þeirri ! arfleifð, sem er óforgengileg, óflekkuð og fölnar aldrei Slíkum orðum var ávallt vel tekið og sjaldan brást, að þau vektu sömu tilfinningar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.