Vísir - 10.08.1968, Qupperneq 10
w
Kjarval —
þegar maður var ungur var mað-
ur á sjónum, það færði mann
nær litasamsetningunni að fjalla
blámanum — með hann I for-
grunn. Nei, það er ekki komið
að því enn.“
Talið berst að Kjarvalssýning-
unni.
„Fólk hafði gaman að henni,
ég vil að Listasafn ríkisins sé
reist þar sem Listamannaskálinn
er, þar er góð lóð. Hann er eitt-
hvert fallegasta hús, sem ég hef
séð, í feröalögum úti í heimi
hef ég ekki séð fallegri hlutföll
á sal, og fólkið er eðlilegt, að
ganga um á þessum stað og líta
inn, ef það hefur tíma."
Kjarval er kvaddur á dyra-
þrepinu. Hann þakkar fyrir á-
nægjulega heimsókn, viö afsök-
um ónæðið.
„Þetta var yndislegt ónæði,“
og Kjarval þýðir síðustu setn-
ingamar yfir á ensku:
„Excuse the trouble, this was
a nice trouble," um leið og hann
brosir við, ber höndina með lita-
dósina léttilega fyrir brjóstið og
hneigir sig hoffmannlega.
Sandgerðingar sigla
með kola til Englands
— Reytingskolaafli að undanförnu
Hundrað tonna bátur, Álaborg
frá Sandgerði, er nú að búast til
siglingar á Englandsmarkað með
um 30 tonn af ýsu og kola. Reyt-
ingsafli hefur verið af kola síðustu
dagana úti i bulctinni og hafa snur-
voðarbátar frá Suðurnesjum fengið
þetta 1—2 tonn í róðri af koia.
Vmis vandkvæöi eru þó á vinnsiu
kolans og er helzt ekki tekið á
móti stærsta fiskinum, sem áður
þótti hvað eftirsóttastur. Þennan
afla, sem siglt verður meö itii Eng-
32 blökkumenn
dæmdir til lífláts
í Salisbury
lands, hafa tveir Sandgerðisbátar
hins vegar fengið á fáum dögum í
troll.
Selja síld —
»—> i -ifðu
sögðu f talsvert erfiðari aðstöðu
en veiðiskip þessara þjóða að
losna við afla sinn, vegna hinnar
miklu fjarlægðar frá landinu, þó
að flutningaskipin hafi hingað
til getað flutt veiði skipanna svo
til jafnóðum og fiún fæst. Hins
vegar má búast viö aö skipin
yrðu aö sigla með afla sinn sjálf
til lands, ef verulegt fjör færð-
ist í síldveiöarnar þar austur frá.
En slíkir flutningar gætu engan
veginn borið sig.
Kjarvalshús bíður fullbúið en lyklarnir eru geymdir á góðum stað.
Sýning —
M-> 1 síöu
Ákvörðun um að halda hana hefði
veriö tekin í fyrravor og undir-
búningur h^finn í haust er leið.
Landbúnaðarsýningin 1968 er
hin myndarlegasta í alla staöi, þrátt
fyrir alla stundarerfiðleika land-
búnaðarins. — Sýningin telur um
það bil 80 sýningardeildir, utan
húss og innan og er þetta stærsta
sýning sem haldin hefur veríð hér
á landi. — Munu eflaust þúsundir
borgarbúa leggja leið sína í Laug
ardal næstu tíu daga meðan hún
stendur. Auk þess er búizt við
fjölmepnum hópum bænda úr nær-
liggjandi héruðum á sýninguna.
Mun sveitafólkið væntanlega gefa
sér til þess næöi milli slátta.
Salisbury í gær: 32 blökkumenn,
sem ákærðir voru fyrir að hafa,
vopn í fórum sínum ólögiega, voru
í gær dæmdir til lífláts. Við þessu |
liggur dauöarefsing að lögum j
Rhodesíu, en hæstaréttardómarinn, i
sem lýsti bessari niöurstöðu, kvaðst;
mundu gera stjórnarvöldunum sér-
staka grein fyrir vissum atriðum
málsins, er réttlætt gætu mildari
dóm.
Þegar dómsorð höfðu veriö sögð ,
hófu blökkumennirnir söng á sínu j
máli og héldu áfram að syngja, 1
er þeir voru leiddir út úr réttinum.
(Sbr. frétt á 8. síðu).
Rhodesía fær sinn eigin fána.
Rhodesíustjórn lagði í gær fram I
tillögur um fána fyrir Rhodesíu, j
sem verður án samveldistáknsins.
Fáninn verður með hvítum og græn
um reitum og innsigli Rhodesíu.
Trúið á Guð —
->!!>■■ >■ 7 síðu.
oss vegurinn, förum við líka til
Guðs.
En það þýðir ekki, að við eig
um fyrst i öðrum heimi að
k„.»ia til fööurins. Ef Jesús er
þér vegurinn, þá fer þú til föður
ins, pær honum, hærra til hans
með hverjum degi, sem Guö gef
ur þér að lifa. Hvert fótspor,
hvert einasta verk í köllunar
starfi þínu, hver einasta barátta
sem þú heyir með sig i, flytur
þig nær Guöi, dýpra inn í faöm
hans, inn I hina öruggu hvílu
hjá mætti hans og kærleika, inn j
í einrúm þænarinnar, fram j
fyrir augliti hans.
Og þú getur ekki komizt
þannig nær og nær Guði nema
að órósem. hjartans víki meir
og meir og. hjarta þitt verði
fullt af .-iöi og gleöi. Og því
sigurríkara, sem líf þitt verður í
baráttunni við órósemi, neyö og
freistingar, því dýpra kemst sál
þín inn í hina eilífu hvíld og frið
guðstrúar og guöstrausts. Og þú
munt þá ^eta stigið síöasta
skrefið s .i þú stígur hér á jörö !
út úr lífinu þegar þú yfirgefur -
þennan I.ei.n á vegferð þinni til
föðurhúsanna meö öryggi og ró
sefni barnsins, sem veit að föður
faðmurinn, ástríkur og mildur
bíður til þess að bjóða það vel-
komið heim. ■
—---------------t -------------------
Þökkum auðsýnda samúð vjð andlát og jaröarför
GRlMS ÞORKELSSONAR skipstjóra
Reynimel 58
Sigríður Jónsdóttir
Þorkell Grímsson
Oddný Grímsdóttir
Jónas Guðmundsson
Ingibjörg Jónasdóttir
Grímur Þorkell Jónasson
V1S IR . Laugardagur 10. ágúst 1968.
mgPgB 11 'W—WC
Dæmdir —
m—> i6 siðu
78 þús. kr. auk fyrrgreindrar upp-
hæðar.
Dóminn kváöu upp þeir Halldór
Þorbjörnsson, sakadómari og meö-
dómendurnir Árni Björnsson, end-
urskoðandi, hdl. og Sveinn Þórðar-
son, skattstjóri. Sækjandi í málinu
var Guömundur Skaftason hdl. verj
andi Magnúsar Björn Sveinbjörns-
son og verjtndi Jóhannesar var
Jón Aðalsteinsson.
Vinnuveitendur
->»--> 16 siöu
því er tekur til alþjóöasamtaka
vinnuveitenda og starfsemi Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar.
Ráðstefna þessi var í alla staöi
afar fróðleg og gagnleg, því ljóst
er aö mörg vandamálanna eru sama
eölis og því nauösynlegt að kynnast
og læra af reynslu annarra.
Á laugardaginn 20. júli var
farið í ferðalag til Þingvalla, og
Skálholts þar sem próf. Magnús
Már Lárusson skýrði sögu stað-
anna.
Ekið var heim um Hverageröi
þar sem gestunum var sýnd jarð-
hitaorka og gróöurhús.
Flestir hinna erlendu gesta héldu
heim sunnudaginn 21. júlí.
Næsti fundur í Fastanefnd nor-
rænu vinnuveitendasamtakanna
verður haldinn í Kaupmannahöfn
haustið 1969.
(Frá Vinnuveitendasambandi ís-
lands).
Kirkjur —
»—> 7 sðíu.
reistar mui.u Hvalsneskirkjur
löngum hafa verið fram yfir
miðja síðustu öld. Þá var Hvals
nes í eigu þess auðsæla höfð-
ingja Ketils ^Ketilssonar f Kot-
vogi. Hann reisti þar timbur-
kirkju „fagra og mikla" árið
1864.
\Á þjóöhátíðarsamkomu í
Gerðakoti eftir messu 2. ágúst
1874 gerðu sóknarmenn þaö heit
að gefa kirkju, sinni nýja klukku.
Var það heit efnt árið eftir.
Kostaði sú klukka 58 ríkisdali.
Eftir tæpan aldarfjórðung var
krikjan farin að láta nokkuð á
sjá, sem vonlegt var. En í stað
þess að gera viö hana reif Ket-
ill kirkjurta til grunna og byggði
aðra af höggnu grjóti. Stendur
hún enn í dag, hið fegursta
hús, traust og tilkomumikið.
Bygging hennar hófst sumarið
1886 en gekk nokkuð seinlega
því að sóknarmenn reyndust
tregir við grjótdráttinn. Næsta
ár var kirkjan byggð en innrétt
ingu hennar ekki lokið fyrr en
næsta sumar (‘88). Hún var í
eigu Hvalsnesbænda o.fl fram
yfir 1940, að hún var afhent
söfnuðinum
’Skömmu síöar fékk hún ræki
lega viðgerð og er nú hið prýði
legasta hús. Hún stendur á all-
háum bala í túninu á Hvals-
nesi og sést víða að, bæði frá
sjó og landi. ,,Dyr hennar blasa
viö Hvalsnessundi. Það var
venja Hákonar Tómassonar,
bónda í Nýlendu, sem var meö
hjálpari og kirkjuhtldari
'um 40 ár, aö opna kirkjuna þeg
ar skip voru á sjó í brimi. Mun
það einnig hafa veriö gert bæði
áður og síðan. Það þótti kostur
við sundiö, að þessi möguleiki
var til, og enn eru þeir á lífi,
er telja sig hafa greinilega séð
áhrifin af opnun kirkjunnar,"
ségir Magnás Þórarinsson í rit-
gerð sinni: Leiðir, lendingar og
örnefni á Miönesi.
BELLA
Heyrðu góði, ef ég læt þig fá
síðasta hundraðkaliinn, viltu þá
ekki bióða mér út í kvöld, þvl
mér líkar ailtaf við menn sem
reynt að koma sér áfram í iff-
inu.
VISIR
Jyrir LTll Wum
HESTHÚS OG GEYMSLU-
PLÁSS óskast til leigu helzt fyrir
innan Frakkastíg.
Vísir 10. ágúst 1918.
Vegaþjónusta F.Í.B.
Helgina 10. til 11. ágúst.
Vegaþjónustubiíreiðirnar verða
staðsettar á „ftirtöldum stööum:
FÍB- 1 Hellisheiði — Ölfus.
FÍB- 2 Skeiö — Hreppar.
FÍB- 3 Akureyri — Mývatn.
FÍB- 4 Þingvellir — Laugarvatn..
FÍB-5 Hvalfjörður.
FÍB- 6 Út frá Reykjavík
FÍB- 9 Árnessýsla.
FÍB-11 Borgarfjörður
FÍB-13 Hvalfjöröur — Borg-
arfjörður.
FfB-l* Fljótsdalshéraö
FÍB-16 ísafjörður — Arnarfjörður
FÍB-17 Út frá Húsavík
FÍB-18 Bíldudalur — Vatns
fjöröur.
FÍB-19 Blönduós - Stóra
Vatnsskarð
FÍB-20 Víðidalur — Hrútafjörð-
ur.
Ef óskað er eftir aöstoð vega
þjónustubifreíða, veitir Gufunes-
radíó, sími 22384, beiðnum um
aðstoö viðtöku.
Kranaþjónusta félagsins er einn
ig starfrækt yfir helgina.
MESSUR
Ila, grí .ískirkja. Messa kl. 11
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Bústaðaprestakall. Guösþjón-
usta í Réttarholtsskóla kl. 10.30.
Skiptinemum safnaöarins fagn-
að. Séra Ólafur Skúlason.
Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra
Óskar J. Þorláksson.
Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Frank M. Halldórsson.
Laugarneskirkja. Messa kl. 11
f.h. Séra Garðar Svavarsson.
Ásprestakall. Messa í Laugarás
bíói-. kl. 11. Séra Grímur Gríms-
son.