Vísir - 17.08.1968, Blaðsíða 16

Vísir - 17.08.1968, Blaðsíða 16
1 ngi Hrafn Hauksson vinnur viö frágang á verkum sínum í húsnæöi sýningarsalarins Njálsgötu 49 VISTR Fólskuleg líkamsárás Tveir óeinkennisklæddir lögreglu þjónar urðu fyrir hreina tilviljun vitni að furðulegri fúlmennsku og fruntaskap, sem átti sér stað i Nóa- túni fyrir utan Sælakaffi rétt fyrir kl. tvö í fyrrinótt. Komu lögregluþjónarnir, sem voru i eftirlltsferð um veitingahús- in og því óeinkenniskiæddir, að þar sem nokkur hópur manna hafði safnazt saman í götunni vegna rysk inga, sem þar virtust eiga sér stað milli einhverra manna. Rétt í þann mund, sem lögreglu- þjónamir voru komnir að hópnum til þess að skakka leikinn, sáu þeir, hvar annar þeirra tveggja manna, sem mest virtust.hafa sig í frámmi 1 ryskingunum, vatt sér skyndilega að rosknum áhorfanda sém stóð i þrönginni með henc .r í vösum — vitandi sér einskis ills von — og varpaði honum án nokk- urra umsvifa beint á höfuðið í göt- una. Hinum roskna manni vannst eng inn timi til þess að taka hendur úr vösum og gat því ekki borið þær fyrir sig, til þess að taka úr fallinu. Skall hann beint á andlitið í götuna og síðar kom i Ijós, að hann hafði hlotið tvo skurði i andlitið, sem iæknar þurftu að sauma saman, en auk þess brotnuðu gervitennur í munni hans. Árás þessi kom flatt upp á alla nærstadda og fékk enginn hreyft M->- 10. síða. Gangið frá lóöum tyrir norræna byggingardaginn: Ódýrara að byggja með snyrtimennsku — segir byggingafulltrúinn • Odýrara er að byggja með snyrtimennsku er kjörorð, sem byggingafulltrúi borgarinn- ar, Sigurjón Sveinsson, bendir húsbyggjendum á. Fór hann og Gunnar Sigurðsson deildarverk- fræðingur með fréttamenn í fróð Iega könnunarferð um þau svæði borgarinnar, sem mest er byggt á um þessar mundir, Fossvoginn og Breiðhoit. Á flestum stöðum blöstu við moldarhaugar, gapandi rásir við útveggi, sumar fullar af drasli, járnarusl í bendum, timbur á víð og dreif. Einstaka undan- tekningar sönnuðu þó ágæti þess að hafa snyrtilegt á byggingar- svæðum. Taldi Sigurjón það vera öruggt mál að vinnuafl og fjár- magn nýttist mun betur á þeim lóðum, sem vel er gengið frá strax frá byrjun. Nefndi hann dæmi því til staðfestingar. Ef húsbyggjendur fylltu upp að út- veggjum strax, þegar kjallari hef ur verið byggður upp og skolp- ræsalögn lögð er hægt að hag- nýta vinnutæki og mannafla í eitt skipti fyrir öll í stað þess að vinna verkið í tvígang. Við jætta bætist að hægt er að aka bilum með hlutum í innréttíngar beirit að húsdyrum í stað þess að klöngrast með þá yfir gapandi 10. síða. Mikil eftirspurn eftir hátíðarljóðum Visir mun birta Ijóð, sem ekki eru i bókinni annað þessara ljóða á næstunni, þar sem höfundurinn hefur þegar géfið leyfi sitt til þess. Sala hinna 26 óverðlaunuðu há- tiðarljóða gengur mjög vel, eftir því sem útgefandinn, Sverrir Kristins- son tjáði blaðinu. í fyrstu vikunni eftir að bókin kom út seldist helm- ingur af upplaginu, og af hinum tölusettum eintökum eru nú aðeins örfá eftir. Á Akureyri hefur virzt vera sér- staklega mikill áhugi á bókinni og gerir Sverrir ráð fyrir að upplagið muni þrjóta um miðjan næsta mán- uð. Sverrir Kristinsson hefur nú und ir höndum tvö ljóð eftir höfunda, sem ekki höfðu samband við hánn í tæka tíð til að koma ljóðum sin-1 ÞAÐ ER VINSÆL ÍÞRÓTT þessa þykkt hefur verið, að gefa leyfi til um í keppnina. I dagana að leita austur í land og fá að feila alls sex hundruð dýr í ár. Vísir mun að minnsta kosti birta ' þar leyfi til hreindýraveiða, en sam Auk þess sem drasl eykur kostnaö og vinnu við husin, það loða við byggingarnar árum saman. Hreindýraveiðar mikið stundaðar þessa dagana Þrjú gallerí opna á næstunni Stófnun þriggia nýrra gallería hér í borginni er nú á döfinni og mun koma til framkvæmda á næstu vikum. Eitt þeirra er Hliðskjálf, sem rekið er í sam- bandi við bókaútgáfuna Þjóð- sögu og er til húsa að Lauga- vegi 31, 4 hæð. Tekur sá list- sýningasalur til starfa um næstu mánaðamót með sýningu Sveins Bjömssonrr listmálara. I byrjun september opnar galleríið á Niálsgötu 49 fyrstu sýningu sína.. Er forstöðumaður þess Sigurður Jóhannesson erlendis um þessar mundir að kynna sér rekstur slíkra myndlistar- sala. Ingi Hrafn Hauksson sýn- ir verk sín á fyrstu sýningunni 18—20 upphleyptar veggmyndir og 2 standmyndir. Þá ætlar SUM að tara á stúfana og stofna galierf. Talaði blaðið við Kristján B. Sigurðsson sölustjóra bókaút- gáfunnar Þjóðsögu, sem sagði, að listsýningarsalurinn Hlið- skjálf yrði innan við söluskrif- stofu bókaútgáfunnar og 1 tengslum við hana. Kvað hann eingöngu verða um sérsýningar að ræða í nýja sýningarsalnum og ætlað væri að þær stæðu hver um sig í hálfan mánuð. Sagði hann salinn verða opinn fyrst og fremst listamönnum úr félögum myndlistarmanna að svo miklu leyti, sem þeir vildu notfæra sér það. Ingi Hrafn Hauksson vinnur við frágang að verkum sínum í húsnæði sýningarsalarins að Njálsgötu 49. Álítur hann stað- inn vera þann ákjósanlegasta 10. síða. I Egill Gunnarsson, hre>ndýraeftir- i litsmaöur á Egilsstöðum i Fljótsdal, | sagði í viðtali við Vísi, að sér virt- ust dýrin mjög vel gengin undan vetri, feit og vel haldin. Hann kvað marga hafa sótt um leyíi til veið- anna, sem leyföar eru á ákveðnu svæöi til 20. september. Til að fá veiðileyfi verða menn að uppfylla viss skilyrði og hafa undir höndum fullkomin skotvopn til veiðanna. Algengast br að menn séu á veiðum í einn til tvo daga, en sjaldan lengur. Ýmsir góökunnir menn leggja stund á þessa íþrótt, en ekki vildi Egill þó nefna nein nöfn f því sam- bandi. Hann sagðist ekki eiga gott með að segja um, hversu mörg hreiiidýr hefðu nú þegar verið lögð að velli, þau væru orðin allmörg. Það er ýmist að menn selja hrein 'rakjötið, eða flytja það heim til n, sem björg í bú, en hreindýra- kjöt þykir mörgum hið mesta lost- æti. „Fákur## þarf ekki meira hey úr Reykjavík Hestamannafélagiö Fákur hefur nú þegar aflað sér nægilegra hey- birgða fyrir veturinn, keypt eöa pantað. Samkvæmt upplýsingum Bergs Magnússonar, framkvæmdastjóra Fáks, þarf félagið 4—5000 hesta alls. Reykvíkingar hafa boðið fram gnótt heys og meira en þörfin er. Bergur kvað nú allt annað og betra útlit um heyfeng á landinu en verið hefði fyrir fáum vikum. Bændur á kalsvæðunum mundu væntanlega geta fengið hey úr nærsveitum. Ó- víst væri, að not yrði að heyi, sem flutt væri langan veg. Hvar fær flugvélin griðastað? Flugvélarskrokkur innréttaður sem veitinga- staður settur upp við Sandskeið í vetur bar það til, eins og menn muna, að bandarisk flugvél stakkst á endann á Reykjavíkur- flugvelli, og eftir það stóð flak hennar um hríð ónýtt. Nú hafa nokkrir menn fest kaup á flakinu og flutt það upp í Mos- fellssveit i nágrenni Hafravatns, þar sem jæir hugöust innrétta það og nota til klúbbstarfsemi, en ekki fá þeir leyfi til að hafa flugvélarskrokkinn á þessum stað. Vlatthías Sveinsson sveitarstjóri í osfellssveit tjáði blaðinu, að menn irnir hefðu að vísu ráðstöfunarrétt yfir landinu, þar sem flakið stend- ur, en aftur á móti hefðu þeir eng- an rétt til að setja þar upp nein mannvirki án fengins leyfis. Þess vegna verða þeir að flytja flugvélar- skrokkinn burt. Matthías sagði einnig, að menn- irnir hefðu nú nýverið sýnt sér bréf undirskrifað af bæjarritaranum í Kópavogi, þess efnis að þeir heföu heimild til að koma flugvélinni fyr- ir í landi Kópavogskaupstaðar í námunda við Sandskeið, og þangað veröur flakið flutt innan tíöar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.