Vísir


Vísir - 07.09.1968, Qupperneq 8

Vísir - 07.09.1968, Qupperneq 8
V í SIR . Laugardagur 7. september 1968. 8 VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent h.í • Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson l Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson )/ Fréttastjóri: Jón Birglr Pétursson 1 \ Ritstjórnarfulltrfli: Valdimar H. Jóhannesson / Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson \ Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 / Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660 ] Ritstjóm: taugavegi 178. Simi 11660 (5 iínur) / Áskriftargjald kr. 115.00 á mánuöi innanlands ) í lausasölj kr. 7.00 eintakið / Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. j Heilaþvegnir menn Auðsætt er á skrifum Þjóðviljans, að forustumenn y íslenzkra kommúnista ætla ekki að játa hina raun- í( verulegu ástæðu fyrir hernámi Tékkóslóvakíu. Þeir II vilja ekki játa þá augljósu staðreynd, að kommúnismi / og frelsi geta ekki farið saman. Jafnskjótt og nokkuð ) verulega er slakað á einræðis- og harðstjórnarfjötrum ) kerfisins tekur það að gliðna og harðstjórarnir missa ) tökin á fólkinu og stjórnartaumunum. Þjóðviljinn er \ alltaf að tönnlast á því, að framtíðar-skipulagið sé / „lýðræðislegur sósíalismi" og að því sé stefnt, m. a. / í Tékkóslóvakíu. Ekki er fullkomlega ljóst af skrif- J um blaðsins, hvað við er átt þegar það talar um lýð- \ ræðislegan sósíalisma, en næst liggur að álykta, að \ það sé eitthvað í líkingu við stjórnskipulag jafnaðar- ( manna á Norðurlöndum og í Bretlandi. ( Þetta skýtur þó dálítið skökku við, því að hingað / til hafa forustumenn kommúnista víðast um heim ) ekki átt nógu sterk orð til þess að lýsa fyrirlitningu )) sinni á jafnaðarmönnum og kallað þá „svikara við \\ verkalýðinn“ og öllum illum nöfnum. Lýðræðislegur ( sósíalismi getur þó varla verið annað en jafnaðar- ( stefnan eins og hún hefur verið framkvæmd í fyrr- / nefndum löndum. Það sýnir hins vegar, að 50 ára j ógnarstjóm kommúnista í Rússlandi hefur verið með ( öllu ónauðsynlegur undirbúningur eða inngangur að / lýðræðislegum sósíalisma, enda erfitt að skilja hvern- ) ig slíkt mætti vera. ) Rithöfundúrinn og útvarpsfyrirlesarinn Eugene ) Lyons, sem er heimskunnur sérfræðingur í öllu, sem ( Týtur að þróun ráðstjómarskipulagsins í Rússlandi, ( segir í bók sinni „Paradísarmissir verkalýðsins“ / (Workers Paradise lost): „Sannleikurinn er sá, að hin ) svokallaða „Mikla tilraun“ hefur mistekizt svo hrap- (( allega, að þar er um að ræða ein mestu mistök mann- -/ kynssögunnar, sé tillit tekið til þess, að tilraunin hef- |/ ur kostað milljónatugi mannslífa, ómælanlegar þján- - ingar, upplausn í heimsmálum og eyðileggingu sið- ferðilegra og andlegra verðmæta“. T Þessi „mikla tilraun“ er það stjórnarfar, sem for- U ustumenn íslenzkra kommúnista og málgögn þeirra U hafa verið að lofsyngja undanfarna áratugi. „Sovét- /) ísland, hvenær kemur þú?“ var ákall eins hinna V sanntrúuðu hér fyrr á árum. Þar var fyrirmyndin, hið y fullkomna skipulag, sem allar þjóðir skyldu stefna að. Er hægt að hugsa sér óhugnanlegri heilaþvott en ?/ þetta? Og enn eru til svo blindir menn, bæði meðal íslenzkra kommúnista og „nytsamra sakleysingja“ úr i öðrum flokkum, að þeir halda að eina bjargráðið gegn y yfirgangi Rússa sé að leggja niður varnarsamtök vest- ' tænna lýðræðisþjóða, Atlantshafsbandalagið, og bjóða ( þannig voðanum óbeizluðum heim. Hvað halda þessir ( vesalings menn að rússneski björninn væri kominn 7 með hrammana langt í vesturátt, ef engin varnar- ) samtök hefðu verið stofnuð. gegn ásælni hans? — En ) hvað skilja heilaþvegnir menn? \\ iltlö Tékkneskur heiðursvörður við St. Wenceslas-líkanið morgun útlönd í morgun útlond í morgun ♦ Það fór í taugarnar á sov- ézka hernámsliðinu, að tékk- neskir stúdentar og aðrir héldu fánavörð dag og nótt við sankti Wenceslas-líkanið í Prag og vildi það þessa fánabera burt. Þeir höfðu þar að vísu ekki ýkja mikið pláss, því að margt sovézkra skriðdreka er að stað- aldri á torginu, en nokkur hundr BELGRAD f GÆR: Stjórnar- völd Jflgóslaviu eru staðráðin í, að örlög Júgóslavíu veröi ekki hin sömu og Tékkóslóvakíu. Hafin er þjálfun ungs fólks, pilta og stúlkna, auk þess sem herafli landsins verður hafður reiðubúinn, ef til árásar á land- ið skyldi koma, hvort sem beitt yröi venjulegum vopnum eða kjarnorkuvopnum. Vladimir Peza, formaöur Kro- atiska ungmennasambandsins, sagði í gær f viðtali viö blaöið Vjesnek í Zagreb, að búið væri að stofna mörg hundruð vernd- arsveitir sjálfboöaiiða í Króatíu. Peza kvað alla þjóöina reiðu- búna til þess að taka þátt í vöm uð manns gátu þó safnazt sam- an nálægt styttunni, þar sem strætisvagnar nema staöar. Allt í einu skipuðu Rússar þessu fólki burt, en Tékkar dóu ekki ráðalausir frekar en góði dátinn Svejk, segir í textanum með þessari mynd. Garöýrkjumenn voru sendir á vettvang með mold og steina og blómaplöntur landsins og það yröi ekki herinn einn, sem myndi berjast í fremstu línu. í skólum landsins og háskól- um hefur þjálfun um ára- bil verið að nokkru hernaöar- leg og er þar undirstaða til þess að byggja á varnir allrar þjóðar- innar á hættutímum. Baráttuflokkar verða einnig stofnaðar meöal verkalýðsins og andspyrnuflokkar verða stofnað- ir bæði í bæjum og sveitum. Þrátt fyrir þennan viöbúnaö ríkir alger ró f landinu, en efst í allra hugum, að öll þjóðin verði viðbúin hverju sem fyrir kann að koma. og svo var tekiö til starfa og gengið þarna frá snyrtilegustu blómabeðum sem opinberri blómasýningu borgarinnar. Við þessu var ekkert hægt að gera. Blómin eiga að gefa til kynna, að fólkið mótmæli hernáminu, — og þar sem Rússar leyfa ekki lengur stúdentum að standa við styttuna með tékkneska fána og svarta sorgarfána eru blómin lát in tala þarna máli landsins barna, sem vilja vera frjáls en fá það ekki. Og nú Bolshoi Ákveðið hafði verið, aö kór úr Rauða hernum sovézka færi. tii hljómlelkahalds I Tókíó. Af því verður ekki, að því er tilkynnt var í gær f Moskvu Orsökin er, aö japanska stjórn- in telur óheppilegt að kórinn komi nú, vegna þeirra áhrifa. sem hernám Tékkóslóvakíu hef- ur haft í Japan. Áöur hafði hljómleikaferð kórs úr Rauöa hernum til Bret- lands verið frestað af sömu or- sökum. Og nú hefur heimsókn Bols- hoi-ballettsins til Parísar verið aflýst. Ákveðhar höfðu verið nokkrar sýningar í nóvember Heimsókninni var frestað „af efnahagslegum ástæðum“, segir f frétt frá Moskvu. Júgóslavar staðráðnir í að verja land sitt Ef til innrásar kæmi mundi 'óll þjóðin berjasf

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.