Vísir - 07.09.1968, Page 10
m\
V1SIR . Laugardagur 7. september 1968.
Frá æfingu söngkennaranna í gær.
®---------------
Námskeið til að lífga upp
á söngkennslu í skólum
9 Um 40 söngkennarar víðs
vegar af landinu sóttu nám-
skeið í söng, sem haldiö var
i Tónlistarskólanum. Var stofn-
að til námskeiðsins í því skyni
að lífga upp á söngkennslu í
skólum, sem hingað til hefur
mest megnis verið bundin viö
tónfræði. Talaði blaöið viö Guö-
mund Guðbrandsson formann
Söngkennarafélags^ íslands, sem
veitti þessar upplýsingar og
skýrði nokkuð frá námskeiðinu.
Sagöi hann, að söngkennara-
námskeið væru haldin á a.m.k.
tveggja ára fresti og í þetta
Auglýsið
í Vísi
f! J. r PT'
skipti hefðu þrír Danir veriö
fengnir til aö annast kennslu
þau Sven G. Asmussen, kona
hans Hanna og Klare Fredborg.
Hafa þau haldið fjölda sambæri
legra námskeiða í Danmörku.
Aðalefni námskeiðsins að þessu
sinni væri kórsöngur, notkun
litlu slaghljóðfæranna, dansar
og leikir við tónlist.
Kvað Guðmundur söngkenn-
urum vera úthlutaður einn tími
í viku til kennslu í barnaskólun-
um og væri lítið hægt að gera
á þessum eina tíma og kennslan
þvi til þessa mest megnis verið
miðuð við nótnakennslu og
fræðilega hlið söngsins. Kvað
hann vera skort á söngkennur-
um þar sem söngkennslan þætti
vera erfiðari en önnur kennsla
og fáir útskrifuðust frá söng-
kennaradeild Tónlistarskólans.
Sagðist hann vona að hægt yrði
að fjölga kennslutímum í söng
í tvo tíma á viku í framtíðinni
og nægilegt framboö yrði af
menntuðu fólki, sem vildi taka
söngkennslu að sér.
Froskittenn Óðins
nðstoða G. 0. Sars
■ Varðskipiö Óöinn aöstoöaöi í
gær norska rannsóknarskipið G.
O. Sars, sem statt var noröur við
Bjarnarey. Skipið stundar rannsókn
ir með flotvörpu og hafði varpan
flækzt í skrúfu þess. — Froskmenn
af Óöni losuðu vörpuna úr skrúfu
norska skipsins. Var því verki lok-
ið um kiukkan hálf eitt í gærdag.
G. O. Sars hafði þá rekið vélarvana
mestaila nóttina.
Óöinn fór aftur í átt til síidar-
flotans í gær, þar sem skipiö er
til aðstoöar íslenzkum skipum. Óð-
inn er sem kunnugt er nýkominn
á síldarmiHin.
FELAGSLIF
Ferðafélag íslands ráðgerir tvær
1 y2 dags ferðir um næstu helgi, nú
eru haustlitirnir komnir.
Þórsmörk
Hlöðuveliir.
Lagt af stað kl. 2 á laugardag
frá Umferðarmiðstöðinni við Hring-
braut. — Upplýsingar í skrifstofu
félagsins, símar 11798 og '9533.
AUGLÝSING
Athygli innflytjenda, er höfðu afhent toll-
skjöl til tollmeðferðar fyrir 3. september 1968,
er vakin á því, að hinn 9. september 1968 er
síðasti dagur, sem unnt er að afgreiða vörur
án greiðslu innflutningsgjalds samkvæmt lög-
um nr. 68/1968.
Fjármálaráðuneytið 5. sept. 1968.
Forsetahjónin
heimsækja sýningu
húsgagnaarkitekta
Föstudaginn 6. september heim-
sóttu forseti íslands, Kristján
Eldjárn, og frú Halldóra Eld-
jám sýningu Húsgagnaarki-
tektafélags íslands. Á meöfylgj-
andi mynd sjást húsgagnaarki-
tektar sýna þeim húsgögnin á
sýningunni. Sýningunni lýkur á
sunnudagskvöld. Hún hefur ver-
ið mjög vel sótt.
AUGLÝSING
um innheimtu gjalds á útgjöld
til ferðalaga erlendis.
Samkvæmt heimild í 5. gr. bráðabirgðalaga
nr. 68 frá 3. september 1968 um innflutnings-
gjald o. fl. og í framhaldi af bréfi viðskipta-
ráðuneytisins til gjaldeyrisbankanna dags. 3.
september 1968 setur ráðuneytið hér með
svofelldar reglur um tilhögun og inn-
heimtu gjalds á útgjöld til ferðalaga erlendis.
1. gr.
Frá og með 4. september 1968 skulu gjaldeyr-
isbankarnir og umboðsmenn þeirra innheimta
fyrir hönd ríkissjóðs 20% gjald af andvirði alls
selds gjaldeyris til hvers konar ferðalaga í
einka- og opinberum erindum svo og í við-
skiptaerindum. Skal gjaldið innt af hendi um
leið og sala gjaldeyrisins fer fram.
2. gr.
Gjaldeyrisdeild bankanna á vegum Lands-
banka íslands og Útvegsbanka íslands hefur
umsjón með innheimtu og skilum til ríkis-
sjóðs á andvirði gjaldsins skv. 1. gr.
Viðskiptamálaráðuneytið, 6. september 1968
Gylfi Þ. Gíslason
(sign)
/Ejörgvin Guðmundsson
(sign)
Hjálmar, Iízt þér ekki vel á nýju
kápuna mína. Jú. Ég hélt að þér
myndi líka hún og lét þess vegna
skrifa hana hjá þér.
HIISMET;
Lengsta stríð sem staðið hefur
yfir af óteljandi sem mannkynið
hefur þurft að ,fða var „hundrað
ára stríðið“ sem var á milli Eng-
lendinga og Frakka og hófst árið
1338 og stóð til ársins 1453 (115
ár).
Surprise —
m-> i6. síöu.
Um fjöruna f gær var gert ráð
fyrir að farið yrði um borð í skip-
ið og athugaö hvort skemmdir heflV'j
orðið á því. Ef það reyn^st heilt
verður biörgunarstarfinu haldið á-
fram og reynt að koma taug á
milli viö fyrsta tækifæri. Er álitið
að þá yrði auðvelt að draga skipið
út um háflæði.
Arekstur —
m—> i -iiðu
manninn til blóðrannsóknar, en
niðurstöður hennar liggja ekki
fyrir enn.
Á leiðinni í fangageymslur lög
reglunnar að lokinni blóörann-
sókninni skerptist allt f einu
minni ökumannsins, sem þá rám
aði í að hafa setið aö drykkju
kvöldið áður og vaknað með
eftirköstum um morguninn, sem
leiddi til bess að hann hafði
fengið sér einn gráan til hress-
ingaf. Síðan var liðinn langur
tími, því áreksturinn varð um
kl. 3 í gærdag.
Ekki bar ökumönnum saman
um öll atvik. Sá, sem blöðruna
blés, taldi, aö sendibíllinn hefði
verið á allt of miklum hraöa.
Hefði hann ekki meö nok>““-
móti getað komið i veg fyts?
áreksturinn.