Vísir - 13.09.1968, Blaðsíða 16
t
VISTR
ð»rjár myndðgstar-
sýningar opna á
morgun
í sambandi við 40 ára afmæli
Bandalags íslenzkra listamanna,
verður opnuð yfirlitssýning á verk-
um Jóns Stefánssonar á morgun
kl. 4. Sýningin verður í nýjum sal
að Brautarholti 2, annarri hæð.
Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð-
herra opnar sýninguna, sem verður
opin í tíu daga.
Björgvin Sigurgeir Haraldsson
opnar sýningu á teikningum í Unu-
húsi, Veghúsastíg 7, á morgun. Þar
sýnir hann 33 myndír, kol- pg krít-
10 síðá
Rannsókn beinist að (jármálameð-
ferð formanns Neytendasamtakanna
■ Sakadómur Reykjavíkur hefur nú sent bókhald Neytenda-
samtakanna til endurskoðunnar hjá Ragnari Ólafssyni, Iög-
fræðingi og endurskoðanda, en taliö er að mikil óreiða sé á
fjármálum samtakanna. Rannsóknin beinist að fyrrverandi
formanni og framkvæmdastjóra samtakanna, Sveini Ásgeirs-
syni, en hann hefur einn komið nálægt fjármálum samtakanna
— aðrir hafa ekki fengið þar nálægt .:ð koma. Er grunur um
að eitthvað vanti í kassann eða þar séu reikningar, sem engan
veginn geti talizt eðlilegir.
Það var nýkjörin stjórn, sem
kærði fyrrverandi formann fyrir
Sakadómi Reykjavíkur vegna
grunsemda unvað ekkl væri allt
með felldu. Sakadómur brá við
skjótt og lét innsigla skrifstofur
samtakanna, þar til hægt var
að hefja rannsóknina. Jafnframt
því sem hin nýja stjóm kærði
fvrrverandi formann fyrir fjár-
málaóreiöu, var nýr fram-
kvæmdastjóri ráðinn og nýr for-
maður kjörinn.
Það eru ekki allir á eitt sátt-
ir um, að hin nýkjörna stjórn sé
lögleg. Eins og lesendur Vísis
rekur minni til fjölmenntu
kommar á aðalfund Neytenda-
samtakanna. Ákveðið var að
fresta fundinum, þar sem reikn-
ingar lágu ekki fyrir, en í lög-
um samtakanna er gert ráð fyrir
að þeir liggi frammi á skrif-
stofunni í eina viku fyrir aðal-
" 10 siða
REKSTRI SÓL-
HEIMA HÆTT
■ Ákveðið hefur verið, að um
áramótin verði sjúkrahúsið Sól-
heimar í Reyfcjavík lagt niður.
Það var dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið, sem þessa ákvörðun
tók, eftir að hafa ráðfært sig við
hfdlbrigðiseftirlitið.
Ráðuneytið hefur afturkallað
Ievfiö sem gilti um rekstur
siúkrahússins og verður starf-
seminni hætt i. janúar. Talið er,
að með tilkomu Borgarspítalans
séu næg sjúkrarými fyrir þá
sjúklinga, sem dvalið hafa á Sól-
heimum og Hvítabandinu. Einnig
er húsnæði það sem sjúkrahúsið
hefur haft ekki talið fullnægja
heim skilyrðum, sem nauðsyn-
'eo eru fyrir sjúkrahússrekstur.
Þessari ákvörðun ráðuneytisins
hefur ekki verið tekið þegjandi og
hljóðlaust, heldur hafa vistmenn
Sólheima sent borgarstjóra bréf
þess efnis, að sjúkrahúsið verði
áfram starfrækt eins og áður.
Matthildur Ellingsen, sem veriö
hefur sjúklingur á Sóiheimum i
fjöldamörg ár tjáði blaðinu, að ó-
kleift væri að hætta sjúkrahús-
rekstri á Sólheimum. Þeir sjúkl-
ingar sem þar dveldu, væru yfir
leitt með sjúkdóma, sem krefðust
iangrar legu og ættu þeir ekki i
Wr—> 10, síða
Mikill aregrúi dómsskjala
ímáli Páls á Lambastöðum
■ Rúmlega 1100 dómsskjöl
hafa nú alls verið lögð fram í
rannsókn á máli Páls Jónsson
ar frá Lambastöðum. Rann-
sókn hefur staðið yfir í all-
langan tíma, enda málið við-
amikið og sum gögn málsins
tengd rannsókn dönsku lög-
reglunnar á Elmo Nilsen-mál-
inu.
Síöast bárust viðbótarskjöl
frá dönsku lögreglunni í janú-
W. >10. sfða.
Hljómar til
Englands í
upptöku
I ÞESSI skrítna og skemmti
lega mynd er af Hljómum
og söngkonunni þeirra Shady
Owens. Þau hafa sannarlega
nóg að gera um þessar mund-
ir. Dansleikir hér og dansleik-
ir þar. Og á næstunni heldur
hljómsveitin utan til að taka
upp enn nýja plötu í London.
/WWWWWSAAA/WWVW
Ný verksmiðja hefur
starfsemi á Akureyri
— framleiðir hluti i raflagnir úr plasti
Þessi mynd var tekin af einni ströndinni á Mallorca fyrir nokrkum dögum — íslendingar eru vin-
sælir þar um slóðir. ,
Ný verksmiðia Jióf nýlega starf-
semi sína á Akureyri. Þetta er
verksmiðjan Bjarg, sem Sjálfsbjörg,
félag lamaðra og fatlaðra á Akur-
eyri og nágrenni, stendur að. Verk-
smiðjan hefur þegar hafið fram-
leiðslu á tengidósum úr plasti i raf-
ALDREI FLEIRI TIL MALL0RCA
— „Ráðstafanir" gera jbað að verkum að fólk velur ódýrustu ferb-
irnar — litið um ferðalög Islendinga til annarra landa
fl Þessa dagana spranga 240 -
250 lslendingar um strendur
Mallo.ca og hafa raunar verið
svo margir frá því um miðjan
ágúst og verða það fram í miðj-
'in október. Á hverjum miðviku-
degi fer þota Flugfélagsins full-
hlaðin farþegum í sólarleit, alls
114 farþegar, sem dvelja syðra f
tvær vikur. Að auki er alltaf eitt
hvað af fólki, sem fer ekki með
hópferðum, en notar almennar
ferðir flugfélaganna.
Guðni Þórðarson í Sunnu gaf
blaðinu þær upplýsingar í morg-
un að algjört metár yrði í Mall-
orcaferðunum í ár. Alls munu far
þegar Sunnu veröa um 2000, eða
helmingi fleiri en fyrr. Guðni sagöi
m.a.: „Ferðalög eru orðin algjör
staðreyqd, fólk vill ferðast og þeg-
ar erfiðleikar steðja að verður að
leita að því ódýrasta og hagkvæm
asta. Þess vegna hefur verið sára
lítið i sumar af dýrari ferðum.
Ferðirnar okkar hafa verið farn-
ar með íslenzkum farartækjum all
ar leiðir, hótelkostnaður á Spáni
1 sáralítill og gjaldeyrisevðslan því
minni en el!a.“
Guðni kvað það ætlunina að halda
Mallorcaferðum áfram i vetur og
ekki sízt reiknað með viðskiptum
frá Bandarikjunum. Er Guðni nú
á förum til Puerto Rico tii að sitja
þing bandarískra ferðaskrifstofu-
manna, en hann er nú að hasla sér
völl á þeim markáöi.
lagnir, en seinna mun hún bæta
við framleiðsluna ýmsum öðrum,
hlutum úr plasti í raflagnir.
Plast er nú notað mjög í aukn-
um mæli í raflagnir í mörgum
löndum, en i.ár á landi, hefur
plastið ekki rutt sér verulega til
rúms, nema á Akureyri, þar sem
notkun þess hefur farið mjög í
vöxt.
Verksmiðjan er til húsa í vinnu-
sal, sem byggður var við hús
Sjálfsbjargar. Keypt var til lands-
ins mjög fullkomin plaststeypu-
vél frá'■Austurríki, en i vélinni er
hægt að steypa alls konar hluti,
þó að framleiðslan muni í fyrstu
eingöngu beinast að framleiðslu
hluta í raflagnir.
Þegar fram líða stundir er búizt
við að margir geti fengið atvinnu
i verksmiðjunni við samsetningar
á ýmis konar hlutum, en plast-
steypuvélin sjálf er algjörlega sjálf
virk.
Gunnar
I Verksmiöjustjóri er
Helgason, rafvélavirki.