Vísir - 12.10.1968, Blaðsíða 10

Vísir - 12.10.1968, Blaðsíða 10
10 V 1 S I R . Laugardagur 12. október 1968. Nýsfárleg tónlist og dansar í Þjóðleikhúsinu Næstkomandi mánudagskvöld, þann 14. október, verða haldnir hljómleikar og danssýning í Þjóð- leikhúsinu. Er þetta framlag Mus- 'ica Nova og Félags íslenzkra list- dansara, i tilefni 40 ára afmælis Bandalags íslenzkra listamanna. Öll verkin á leikskránni eru íslenzk, og hefur ekkert þeirra verið flutt hér á landi áður. Tónskáldin sem barna eiga verk eru Þorkell Sigur- Wjörnsson, Gunnar Reynir Sveins- *on, Leifur Þórarinsson, Páll Pamp ichler Pálsson, Atli Heimir Sveins- son og Magnús Bl. Jóhannsson. iÞungamiðja kvöldsins er ballett, sem Ingibjörg Björnsdóttir hefur 'l'amið við tónlist eftir Magnús Bl. Jóhannsson. Er þar margt óvenju- ','egt á ferðinni, enda vart við öðru að búast, þar sem höfundur tónlist- árinnar við kvikmyndina „Surtur fer sunnan“ á í hlut. Tónlistin sjálf er ,,mixtúra“ hljöð- færa- og rafmagnstónlistar. Magnús hefur síðan samið við þetta eins konar ijósatónverk þar sem sviðs- ljósakerfið er tengt við píanóhijóm- borð, sem einn hljóðfæraleikar- . anna leikur á. Dansinn sem Ingi- 1 björg Björnsdóttir hefur samið er einnig mjög í anda nútímans, en hann flytja 9 stúlkur úr ballettskóla Þjóðleikhússins. Að tónlistarflutningi standa 15 hljóðfæraleikarar ásamt söngkon- unni Ruth Little Magnússon. Viða- mesta tónverkið að frátöldum ballettinum eru 3 sönglög við kvæði eftir Jón Óskar, eftir Atla Heimi Sveinsson. Auk strengja, blásturs og slaghljóðfæra, koma fram fjórir píanóleikarar í þessu verki, þau Gfsli Magnússon, Guörún Kristins- dóttir, Halldór Haraldsson og Þor- kell Sigurbjörnsson. Þorkell leikur þá tvö píanóverk, Etyðu eftir sjálf- an sig, og Svítu eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Þessi tvö verk'frumflutti hann á tónleikum í Stokkhólmi fyr ir skömmu. Verk Leifs Þórarins- sonar heitir „Ég á lítinn skrýtinn skugga“, og er tilbrigði fyrir klarin- ett cello og píanö, samið að tilhlut- an skóladeildar Rikskonserter í Svíþjóð. Páll Pampichler Pálsson á þarna verk, sem hann nefnir „Hringspil 11“ og var það samið á s.l. sumri, fyrir þá hljóðfæraleikara sem flytja það nú í fyrsta sinn: trompetleik- arana Jón Sigurðsson og Lárus Sveinsson, Stefán Þ. Stephensen hornleikara, og básúnuleikarann Björn R. Einarsson. Þetta kvöld í Þjóðleikhúsinu er hið síðasta á af- mælishátíð Bandalags íslenzkra listamanna, en áður hafa verið leik- sýningar, myndlistarsýningar, upp- lestra og tónlistarkvöld o. fl. 'IBÚÐIR TIL SÖLU bæði i vestur og austurbæ. nýtt og eldra. — Hagkvæm- ir skilmálar. Uppl. á kvöldmatartíma í síma 83177. LÆKNARITARI Staða læknaritara við skurðlæknadeild Borg- arspítalans er laus til umsóknar. Umsækjandi þarf að hafa starfsreynslu sem læknaritari eða vera vanur vélritun og hafa nokkra málakunn áttu. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri. Um- sóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgarspítalanum Fossvogi fyrir 20. okt. n.k. Reykjavík, 11. okt. 1968. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Athugasemd í tilefni frétta i blöðum og út- varpi vegna vígslu hinnar nýju dráttarbrautar á Akureyri, óskum vér eftir aö koma eftirfarandi at- hugasemd á framfæri: Það er ekki rétt eins og fram kemur i fréttum aö aldrei hafi verið tekið upp i slipp hér á landi svo stórt skip sem m.s. „Helgafell“, því að fyrir rúmum 12 árum eða þann 22. júní 1956 var m.s. „Helga- fell“ dregið á land á stærstu drátt- arbraut Slippfélagsins, en hún var tekin í notkun í desember 1954. Þá var skipið meö um 500 tonna farm um borð. Síðan hefur m.s. „Helgafell" verið tekiö í slipp hér tvisvar sinnum. Slippfélagið starf- rækir nú 3 dráttarbrautir, þá sem áöur er nefnd, sem tekur rúm 2000 þungatonn, ennfremur 1500 tonna hliðarfærslubraut meö 3 hliðar- stæðum fyrir 1000 tonna þung skip, byggö 1948 og eina dráttarbraut fyrir 500 tonna þung skip með 2 hliðarstæðum, byggð 1955. Vér væntum þess, að þér birtið þessa stuttu athugasemd sem fyrst, þar sem alltaf er skemmti- Iegra að hafa það sem sannara reyn ist. Reykjavík, 7. október 1968. Slippfélagið í Reykjavík h.f. mikið og hafa þvingað verðið langt niður fyrir það, sem eðli- legt má teljast. Lýsi hefur nær eingöngu ver- ið notað í smjörlíki og matar- feiti, en í Bandaríkjunum, þar sem framleiðsla smjörlíkis er mest, hefur hingað til verið ó- heimilt að nota lýsi i þessu skyni. Tilraunir eru nú gerðar til að fá þessu ákvæði matarlög- gjafar Bandaríkjanna breytt. Fengist það framgengt, myndi það hafa veruleg áhrif á lýsis- sölur. Af Islands hálfu sátu dr. Þórður Þorbjarnarson, Sveinn Benediktsson, Páll Ólafsson, dr. Jónas Bjarnason, Valgarð Ólafs- son og Tómas Pétursson fund- inn. Fréttin er unnin úr frétta- tilkynningu frá Félagi ísl. fiski- mjölsframleiðenda. Flýgur ein — ->- 1. síðu. Murkuðshorfur — 1. síðu. Verðinu á fiskimjölinu er nokkur hætta búin vegna met- uppskeru á soyabaunum í Bandaríkjunum og sömuleiðis vegna mikilla birgöa af þurr- mjólk, sem hafa safnazt fyrir, einkum í löndum Efnahags- bandalagsins, en þessar vöru- tegundir eru seldar í samkeppni við fiskimjölið. Erfiðleikar í lýsissölu munu aftur á móti að miklu leyti stafa af því hve lýsisframleið- endur eru margir og smáir og lítil samvinna þeirra á milli. Kaupendur lýsis eru hins vegar sárafáir og sá stærsti þeirra notar 70—80% af heildarfram- leiðslunni. Þetta hafa þeir fært sér í nyt, þegar framboðið er síðustu 3-4 árin verið hjá flug- vélaflutningsfyrirtækinu West London Air Charter. 1 Englandi séu núna 3 stúlk- ur sem vinni sem atvinnuflug- menn með farþegavélar eins og aðrar vélar. Hafi þær komizt inn í þessa atvinnugrein þegar skortur var á flugmönnum þar í landi, fyrir 2-3 árum. Eins séu margar sem fáist við kennslu eins og hún gerði á sínum tíma. í Bandaríkjunum séu margar konur með flugmannsréttindi. en þær hefðu ekki vinnu við að fljúga flugvélum. Ungfrúin hefur flogið De Havi land 125 þotum og var reynd- ar á ferðinni hér fyrir skömmu með eina slíka. Einnig hefur hún flogið DC. 3 vélum. Hún býst við að verða aftur hér á ferðinni eftir 2 vikur, ef allt gengur að óskum með aðra litla vél. Ekki hefur hún getað kynnzt Islandi neitt að ráði því dvölin vill verða stutt þótt oft sé höfð viðkoma hér. Um þetta ferða- lag sagði hún að lokum: „Þetta verður hæg ferð, ef bíða þarf eftir veðri.“ Faðir okkar Hálfdán Halldórsson fyrrum verzlunarmaður í Viðey lést að Sólvangi 10. þ.m.. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 14. þ.m. kl. 10.30 f.h. Sveinn B. Hálfdánarson Örlygur Hálfdánarson. BÍLAKAUP - BÍLASKIPTI i, o ' ^ > " ' Skoðið bilann, gerið góð kaup — Óvenju glæsilegt úrval Vel með farnir bílar í rúmgóðum sýningarsal. Umboðssala Við tölcum vclútlitandi bila í umboðssölu. Höfum bilana tryggða gegn þjófnaði og bruna. SYNINGARSALURINN SVEINN EGILSS0NH.E LAUGAVEG 105 SlMI 22466 BORGIN BELLA Ég held bara að hann Jón sé , líka skotinn í mér — hann hefur samþykkt það, að við verðum sam an, er hann skyldi einhvem tfm ann hætta að vera með Hbimu. VISIR 50 Öskufall varð hér nokkurt sið : ari hluta dags í gær. Ekki dimntdi * 1 teljandi af því í húsum, e» þegar , það var mest, mátti varla gremtL , Álftanes héðan úr bænum og 8H ‘ fjöll hurfu í sortann, en ekki var ' mökkurinn þykkri en svo, að aftt 1 af sást upp í heiðan himinn. Visir 12. okt. 1918. flÍÍÍSMET Stytztu staðamöfn i heimi eru heiti franska þorpsins Y og , norska þorpsins Á. TILKYNNINGAR 5 Kvenfélag Langholtssafnaðar > heldur fyrsta fund sinn á starfs-) árinu þriðjudaginn 15. okt. kl. i 20.30. Sigríður Þorkelsdóttir' snyrtisérfræðingur kemur á fund-' inn. — Stjómin. FELAGSLIF K.F.U.M. á morgun: Kl. 10.30 f.h. Sunnudagaskólinn viö Amtmannsstíg. Drengjadeildirn ar í Langagerði og í Félagsheimil- inu við Hlaðbæ í Árbæjarhverfi. — Barnasam ma í Digranesskóla við Álfhólsveg í Kópavogi. Kl. 11.45 Drengjadeildin Kirkju- teigi 33. Kl. 1.30 e.h. V.D. og Y.D. við Amtmannsstíg. Drengjadeildin við Holtaveg. Kl. 8.30. Almenn samkoma í húsi félagsins við Amtmannsstíg. Sigur sjöm Guðmundsson, verkfræðingur talar. — Allir velkomnir. ,nj3tabJmmJMíHií.S3ua^-- utuiUsfKwníu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.