Vísir - 12.10.1968, Síða 16
Laugardagur YÍ. október 1968,
Bifreiða-
rétiingar ekki
iðngrein
Bifreiöaréttingamenn hafa vilj-
að gera grein sína að sérstakri lög-
■ giltri iðngrein. Lagði félag þeirra
' erindi þess efnis fj'rir iðnþing. Þing
•5 lagöist gegn málinu og benti á,
að bifreiðaréttingar tilheyrðu nú
tveimur íðngreinum, bifreiðasmiði
, og bifvélavirkjun. Var álit allsherj
■ arnefndar þíngsins samþykkt sam-
!hljóða eftir miklar umræður. Iðn-
. þinginu lýkur í dag.
FLUGSLYS HÉR MARGFALT TlÐARI
— Samanburður a tölum frá Bandarikjunum
og Islandi gefur ástæðu til að álita svo
„Ég get því miður
ekki gefið upp tölur um
flugslys á íslandi frá
1927 til þessa dags eða
neinar tæmandi tölur um
tíðni flugslysa“, sagði
Sigurður Jónsson, for-
stöðumaður Loftferða-
eftirlitsins í viðtali við
Vísi í gær. „Það eru eng-
ar skýrslur til um flug-
slys hér á landi, sem
mark er takandi á“,
bætti hann við.
Vísir fékk áhuga á þessum
tölum, vegna þess gruns, sem
lengi hefur verið fyrir hendi, að
flugslys hér séu mun tíðari en
ví jast hvar erlendis.
Bandaríska flugmálastjórnin
hefur nýlega sent frá sér tölur
um þann fjölda manna, sem hafa
farizt í flugslysum í Bandarikj-
unum frá árinu 1927. Um 30.000
manns hafa farizt á þessu tíma
bili, en það myndi samsvara um
30 mönnum hér á landi ef hlut-
fail mannfjölda er haft í huga.
Bandaríkjamenn eru um þúsund
sinnum fleiri en Islendingar.
Það kom hins vegar í Ijós i
lauslegri athugun, sem Sigurður
Ágústsson hjá Slvsavarnafélag-
inu gerði fyrir blaðið, að frá
árinu 1942 hafa hátt í hundrað
manns farizt í flugslysum hér
á landi eða um þrisvar sinn-
um fleiri að tiltöiu en í Banda-
rikjunum .
Þessar tölur segja í sjálfu sér
ekki nema hluta sögunnar. Veru
legu máli skiptir að fá að vita
um flogna farþegakílómetra á
þessu tímabili í báðum löndun-
um, þar sem slysatalan verður
að miðast við það til þess að
réttar niðurstöður fáizt. Einnig
þurfa skýrslur að sundurliða i
hvers konar flugi slysin hafa orð
ið og margt annað kemur til.
Hinn hlutfallslega miklu meiri
fjöldi manna, sem hér hafa far-
izt í flugslysum gefur hins vegar
ástæðu til að óttast, að flugslys
'■ér séu mun algengari en t.d. f
Bandaríkjunum.
Brúin yfir Tungnaá tekin í notkun
• Vegagerð ríkisins hefur í
sumar unnið að byggingu brúar
á Tungnaá fyrir Landsvirkjun,
og lauk brúarsmíðinni um s.l.
mánaðamót. Áætlast kostnaður
við hana uni 5 miiljónir króna.
Vígði Guðmundur Jónasson ör-
æfabílstjóri brúna þann 10. okt.
Brúin er byggð skammt fyrir
ineðan Sigöldufoss í um 440 m
hæð yfir sjó. Á brúarstað fellur
áin í gliúfri, og er brúargólf um
20 m yfir vatnsborði árinnar.
Brúin er stálbitabrú og heildar-
lengd hennar 68 m. Stálbiti hvilir
á steyptum stöplum til endanna, en
milliundirstöður eru stálstoðir.
Með hliðsjón af virkjanafram-
kvæmdum, er brúin reiknuð fyrir
70 — 90 tonna þunga. Stálbitar eru
fluttir inn frá Englandi og smíðað
ir í Stálsmiðjunni hf. Framkvæmdir
hófust um 20. júlí, og hafa að jafn
aði starfað um 25 manns að smíð-
inni. Verkstjóri var Hugi Jóhannes
son.
Verkfræðingar Vegagerðar rikis-
ins hafa hannaö brúna og haft á
hendi verkfræðilega stjórn við brú
argerðina. Brúin er gerð í þágu fyr
irhugaðrar miðlunar úr Þórisvatni,
en slík miðlun er einn liður í stækk
un Búrfellsvirkjunar. Jafnframt auð
veldar brúin virkjunarrannsóknir á
svæðinu innan við Tungnaá, en í
því sambandi má nefna, að Lands-
virkjun er nú að ganga frá áætlun
um virkjun Tungnaár við Sigöldu.
„Hlutí afkjarabót góSœr-
annaþarfaS hverfa aftur"
sagði viðskiptamálaráðherra á
aðalfundi Verzlunarráðs
Viðskíptamálaráðherra, dr. Gylfi
*Þ. Gíslason, talaði á aðalfundi Verzl
' unarráðs í gær og ræddi meöal ann
,ars efnahagsvanda þjóðarinnar. 1
pvi .'amtMriGl sagði hann, að veru
.legur hluti þeirrar kjarabótar, sem
■ orðið hefði á góðærunum 1962—66,
'yrði að hverfa aftur, svo að jafn-
■vægi tækist í greiðsluviðskiptum
við útlönd. Honum fórust svo orð:
„Umbúðalaust og í hreinskilni talað
er kjarni vandans augljóslega sá,
að vegna þess, hversu mikinn hluta
tekjuaukans í góðærinu þjóðin not
aði til neyzluaukningar, þá verð
ur þjóðin nú um sinn að sætta sig
við minnkaða neyzlu. Sem betur
fer þarf ekki öll kjarabót góðær
anna 1962—1966 aö hverfa aftur
vegna áfalla síöustu tveggja ára. En
nokkur hluti hennar hlýtur að
hverfa. Það er staðreynd, sem ekki
verður umflúin."
Fyrr í ræðu sinni hafði við* *
skipUmálaráðherra ininnzl á það,
aö þjóóin heröi noraö % hluta af
allri þjóðarteknaaukningunni á þess
um árum til aukinnar neyzlu. Æskil.
hefði verið, að nokkru meiri hluti
tekjuaukans á góðærisskeiðinu
hefði lent í varasjóðum atvinnulifs
ins en raun varð á.
Ráðherrann taldi Jrað þjóóarhags
muni, að full atvinna verði í land-
' inu, — að ekki sé rekstrarhalli i
framleiðslu og viðskiptum, — að
. launþegar allir fái réttmætan skerf
: af framleiðsluaukningu, er sigrazt
1 hefur veriö á erfiðleikunum og að
fjárhagur landsins út á við verði ör
uggur og þjóðin eignist gjaldeyris-
I varasjóð að nýju.
Simtal við islenzku olympiufarana:
Hafa aðeins
kynnzt óeirðunum
í bréfum að heiman
„Við höfum bara orðið vör við
óeirðirnar í gegnum bréf frá vin-
um og kunningjum heima", sagði
Jón Þ. Ólafsson, frjálsíþróttamaður
í símtali við Vísi í gær, en hann
var þá í hinum þægilega bústað
íslands í Olvmpíuþorpinu.
I dag hefjast Olympíuleikarnir í
Mexikó, en undanfarna daga hefur
íþróttafólkið reynt að venjast lofts
laginu í háfjallaborginni.
fslendingarnir hafa haft náðuga
daga í þorpinu að sögn Jóns og hef
ur liðið vel utan það að sumir
fengu magakveisu eins og oft vill
verða i ókunnu landi.
Á æfingrmótum hefur Jón Þ.
stokkið 2.03 métra og 2.04 metra
og varð hann 9. af 17 keppendum
með 2.03. Til þess að komast í að
alkeppnina þarf að stökkva 2.14
metra, en engum tókst það i þessu
móti. Jón átti ágæta tilraun við 2.08
metra, en tókst ekki £ þetta sinn.
Guðmundur Hermannsson hefur
verið að kasta um 18 metrana og
lengst 18.20 metra, og Óskar Sig-
urpálsson hefur lyft þyngdum á við
það bezta sem hann á, — án þess:
þó að taka tiltakanlega mikið á.
1 Mexíkó var klukkan rúmlega 1
eftir hádegi, þegar við töluðum við'
Jón. Þá var 25 stiga hiti og bliða,
en hér norður á „hjara veraldar"
var klukkan rúmlega 8 og öllu
kaldara þótt okkur þætti e.t.v. veðr
ið í hlýrra Iagi.
•••■•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«
o
• •
^ •
j//Alltaf ánægjulegt aðj
I koma til Islands" |
• •
; — sagði Filipus drottningarmaður við •
• komuna til KeflavikurflugvaUar i gær
• Filipus, hertogi af Edinborg,
• Kom til Keflavíkurflugvailar í
J „ær og staldraði þar við í um
• klukkustund meðan flugvél hans
a tók eldsneyti. Ráöuneytisstjóri
J utanrikisráðuneytisins, Agnar
i Kl. Jónsson og brezki sendiherr
J ann, Halford McLeod, tóku á
• móti honum og ræddu við hann
• um landsins gagn og nauðsynjar
J meðan hann staldraði við.
• Hertoginn lét vel af því að
J staldra hér við, og minntist
• heimsókna sinna til íslands og
• lét þau orð falla, að hingað væri
J ávallt ánægjulegt að koma.
• Hann r á leið til Olympíu-leik-
J anna í Mexíkó með tveggja
• hreyfla flugvél brezka flughers
• ins, RAF. Héðan hélt hann til
J S-Straumsfiarðar i. Grænlandi,
• þar sem hann dvaldi í nótt, en
J ætlunin var að fljúga til Mont-
• real og síðan til Mexíkó.