Vísir - 18.10.1968, Síða 4

Vísir - 18.10.1968, Síða 4
Hann fær 96 þúsund kr. á kvöidi, en vill ekki verða pop-stjarna Bandarískur prestur, 42ja ára gamall, var fyrir skömmu hand- tekinn í New York fvrir að hafa tekið tuttugu og þriggja ára stúlku með valdi og haldið henni í átta mánuði. Presturinn, sem héitir De Vemon Le Grande hafði haldið stúlkunni, Kathleen Kenne dy, í einangraðri íbúð, sem er i viðbyggingu við kirkju hans í New York. Fyrir stuttu fór hann með hana í stutta ökuferð og þá lánaðist henni að sleppa frá honum. Henni tókst með naumindum að gera lög reglunni viðvart, þvi Le Grande bar að er hún var að tala við lögregluna i sima. Handtók klerk- ur hana öðru sinni og hélt heim á leið. En lögreglan komst á spor- ið og frelsaði stúlkuna frá honum. Við rannsókn á heimili klerksins kom í ljós, að hann rak þar barnaheimili og voru þar 45 böm. Á hann sjálfur 22 barnanna og það sem meira er, nunnurnar sem gæta allra barnanna ganga með skammbyssur á sér. Mál klerksins var strax tekið fyrir og var hann látinn laus eftir að hafa lagt fram 1400 þúsund króna tryggingu. lögum, sem aðeins standa yfir í litlar fimmtán mínútur, en þá verð ég lika að stytta lögin mjög mik ið og það krefst mikillar vand- virkni, ef vel á að vera. Ravi Shapkar vill ekki kyrr- setja sig í neinu landi, heldur vera ávallt á ferðalagi. Þó eyöir hann mestum tíma ársins í Banda ríkjunum, en vill alls ekki búa þar. Hann segir, að Kalifornía sé dásamleg borg og fólkið mjög skemmtilegt og aðlaðandi. En því miður er allt of mikið lika nei- kvætt við Bandarikin, svo ég get ekki hugsað mér að setjast þar íð. — Um unga fólkið i hinum ve6træna heimi segir hann. Það er mjög frjálslegt, en getur aldrei slakað á. Einnig er það mjög í- stöðulaust. Nemendur minir í cit- arskólanum í San Francisco skera sig oft í finguma fyrstu dagana, sem þeir eru við námið, og hætta að læra við svo búið. Ef unga fólkið lendir í verkefnum sem eru erfið viðureignar, þá hleypur það bara í burtu frá þeim. Það vill aöeins ná fullum ár- angri á einum og sama deginum. — Auðvitað krefst það um- hugsunar að skilja indverska tón- list, segir hann. Á Vesturlöndum finnst fólki þetta aðeins vera góö tilbreyting frá þeirri hljómlist, sem það hefur vanizt. Fólkið vill heyra sem flestar tegundir hljóm- listar og er reiðubúið að snúa evr- unum að hverju sem vera vill. — Shankar segir að engra á- hrifa frá Evrópu gæti í útsetning um hans á hinum indversku lög- um. Hann skrifar aldrei upp nót- ur við lög sem hann semur. Að- eins ef hann semur hljóinlist fyr ir kvikmyndir. Ennfremur segir hann, að mik- ill hluti peninga sinna fari í ferða kostnað og uppihald. Ekki víl ég vera fátækur, en ég vil heldur ekki hafa einka-sundlaug eða aka í stórum og dýram bílum. Eitur- lyfjaneyzla er mikið vandamái og lætur hann það sig skipta miklu máli. Meðal hinna mörgu milljóna á vesturströnd Bandaríkjanna eru allt of margir sem reykja Mari- júana eöa þess háttar sígarettur. Þessu unga fólki vil ég hjálpa. De Vernon Le Grande. Á sjálfur 22 af 45 börnum sem hann hefur á barnaheimili sínu. — Ravi Shankar, fremsti citar leikari Indveria, fær 96 þúsuná krónur fyrir hverja hljómleika, sem hann heldur f Evrópu. í Ame riku þar sem hann dvelur mik- inn bluta ársins eru tekjur hans talsvert hærri á hveriu kvöldi. Sæmilegt það! Hann kenndi George Harrison, bítlinum fræga, að leika á citar og siðan hefur hann verið einn eftirsóttasti Iista maðurinn I hinum vestræna heimi. — Ég vrl ekki verða nein pop- stjarna, segir Shankar. Harrison kom mér ekki á framfæri, eins og svo margir halda. Ég átti mikinn aðdáendahóp á Vesturlöndum áð- ur en við hittumst. Ég hef ákveð- ið að læðast hljóðlega út úr hin tim ofsafulla stjömuheimi, sem far ið hefur illa með margan kapp- ann. Eftir eitt ár verð ég ekki nefndur á nafn og algjörlega gleymdur og það er einmitt það sem ég vil. — Þegar blaðamenn ræða við hinn 47 ára gamla Shankar bros- ir hann ávallt, en virðist samt vera talsvert hlédrægur. I Indlandi tíðkast það, að Ieikið sé f fimm til sex klukkustundir samfleytt, en það þýddi ekki mik ið að bjóða fólki upp á það á Vest urlöndum. En ég hef æft mig á Prestur tók unga konu með valdi og hélt henni í átta mánuði. Ravi Shankar: - Kenndi m. a. George Harrison að leika á citar, auk þess að vera sjálfur einn eftirsóttasti listamaður á Vesturlöndum. Umferðarrabb Vfða í borginni þarf aukinnar aðgæzlu við í umferöinnl núna með haustinu vegna skólafólks- ins, sem sums staðar streymir hópum saman til og frá skólum. Víða hópast unglingarnir einnig saman við greiðasölur og veit- ingastaði, sem falla unglingun- um f geð. Um hádegisbiliö, þeg ar umferðin er einna mest á að- alumferöaræðum borgarinnar, þá er einnig mest umferð þess- ara gangandi unglinga, sem einn ig eru aö flýta sér í skólann eða úr honum. Það krefst meiri varúðar hjá bifreiðgrstjórum gagnvart þess- um böraum og unglingum. f fyrsta iagi vegna eðlilegs galsa hjá þessu unga fólkl og svo vegna hins, sem er miklu alvar- lcgra, að ungiingarair sýna marg ir hverjir ökutækjum hina mestu lítilsvirðingu oft á tfðum f skjóli þess, að ökumenn vari sig. Til dæmis er það alit of algeng sjón aö sjá unglinga mis- nota gangbrautarrétt þannig að ganga hægt yfir hver á eftir öör um, þannig að bflar fái að bíða. Þetta er gert af hrekk i skjóli réttar hins gangandi vegfaranda. Einnig gera unglingar of mik- ið að þvf að ganga hiklaust út á akbrautir hvar sem er. Þó aðr ir vegfarendur geri þetta nokk- uð einnig, þá er þessi löstur ai- gengastur meðal ungs fólks. Lögreglan þarf að gera gang- skör að því að stemma stigu við þessu skeytingarleysi unglinga áður en slys verður af þvi að þeir storki ökumönnum. Það er ckki öruggt, að ökumenn seu alltaf nógu fljótir að víkja. Yngstu börnin vara sig betur i umferðinni, þvi þau taka það bókstaflega sem þeim hefur ver ið kennt. Aftur á móti sýna þau hálfkæring í umferðinni um leið jg þau vaxa úr grasi, gegn betri vitund. Umferðin er svo varasöm og hættuleg, að unglingum má ekki líðast að ganga rnn umferðargöt- umar uppfullir af prakkaraskap. Umferöin er viða svo. þétt og flókin og ökumennirnir misjafn- ir. Hafa ber í huga, að sumir verða að beita allri sinni athygli svo ekkert komi fyrir. Nokkur brögð eru að þ’d, sér staklega sums staðar í úthverf um, að eötur séu notaðar sem leikvellir. Eru þá iafnvel ung- ’jörn á þríhjólum eftirlitslaus á ferðinni. Er furðulegt, hvað fólk sýnir mikið kæruleysl að þessu leyti. Víða er það þannig við hús, að lóöimar eru svo ffnar á sumrin vegna sumarblómanna, að börnin mega ekki leika sér þar, og verða þvf að vera á göt unni. Einhvern tíma var það til- kynnt, að lögreglan mundi senda eftirlitsiaus böm inn til sín með áhangandi' sérstöku spjaldi, sem á stæði að viðkomandi bam hefði fund- izt eftirlitslaust á götunnl. Af einhvjrjum ástæðum hefur það ekki farið hátt, að gang- skör hafi verið geið að þessu leyti. En þó manni finnist umferðar málunum meira ábótnvant á einu sviðinu en öðru, þá er umferðin orðin slík, að öllum er nauðsyn að gæta ýtrustu varkámi. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.