Vísir - 19.10.1968, Blaðsíða 16
Nýjnr hugmyndir
um sfjórnarráðshús
Hugmyndir um nýtt stjórnarráðs
hús hafa verið uppi um alllangt
skeið, en ekki orðiö úr framkvæmd
um hingað til. í umræðum um
Stjómarráðið á Alþingi í gær upp-
lýsti forsætisráðherra, dr. Bjami
Benediktsson, að komnar væru
fram teikningar að nýju húsi, sem
væm í samræmi við aðstæður og
féllu vel inn i heildarskipulag
Rey kj a vík u rbo r g ar. Hann taldi
byggingu „hallar" ekki koma til
greina, eins og aðstæður væru nú.
Þess mun þó naumast að vænta,
?.ð framkvæmdir verði hafnar við
byggingu bessa innan skamms,
enda leitast ríkisstjómin við að
spara sem mest við opinberar fram-
irvæmdir.
Forsæfisráðherro
til Osló í gær
Dr. Biami Benediktsson, forsæt-
isráðherra, fór i gær til Osló til
að sitja fund forsætisráðherra
Norðurlanda og stjómaraefndar
Norðurlandaráðs, sem þar verður
haldinn í dag og sunnudag. For-
sætisráðherra mun koma heim á
mánudag.
Sigríður —
kom á óvart
Þórdís —
ekki nógu mikii persóna
of
Brynja —
mikill aldursmunur
Gunnsteinn -
skúffaður
Ástmar —
Onassis glaumgosi
Unnið að rafgeymahleðslunni i gær
PÓLAR h.f. semja við
erlenda rafgeymasamsteypu
Auka framleiðslu um þriðjung
Rafgeymaverksmiðjan Pólar h.f. <®-
befur hú hafið framlelðslu á Chlor- |
íde-rafgeymum. Samvinna hefur tek
izt ■íilli verksmiðjunnar og Chlor-
ide-samsteypunnar, sem SÍS hefur
umboð fyrir. Pólar h.f. geta nú
framleitt 30—40% fleiri rafgeyma
en áður, fleiri stærðir og í meira
úrvali. Auk þess hagnýtir verk-
smiðjan sér fjöldaframleiðslu hinn-
ar erlendu samsteypu.
Þjónusta fyrir rafgeyma verður
veitt í Reykjavík og á Akureyri.
Einnig geta umboðsmenn fyrirtækis
ins úti um land hlaðið rafgeymana.
Chloride-samsteypan hefur fram-
leitt rafgeyma í 75 ár. Þar eru
157 verksmiðjur og rannsóknar-
stofa, er 300 manns starfa við.
Samsteypan á blýnámur í Astralíu.
Gluggagægir
kominn á
kreik
9 Allar horfur eru á því, að
jólasveinarnir ætli að verða
snemma á ferðinni í ár. íbúar í
Grænuhlíð urðu varir við
gluggagægi í fvrrinótt, rétt eftir
miðnætti, en andlitinu á honum
brá rétt fyrir á glugga húss eins
þar í götunni.
Þeir, sem urðu hans varir, eru
þó ekkert sérlega trúaðir á jóla-
sveina og lögðu annan skilning í
þetta athæfi gluggagægisins. Gerðu
þeir lögreglunni viðvart, en „jóla-
sveinninn“ var þá horfinn,, þegar
hún kom á vettvang.
Kannski var það klæðnaður
gluggagægisins, sem vakti fyrst og
fremst tortryggni, því í stað rauð-
leitrar loðúlpu, sem búast hefði
mátt við, var hann klæddur græn-
leitri úlpu, sem var með skinn-
kraga.
Hálf öld frá
stofnun Sjóvátrygg-
Elzta og stærsta trygginga-
hlutafélag landsins, Sjóvá-
tryggingafélag íslands, verð
ur fimmtíu ára á morgun,
stofnað 20. október 1918. Að
stofnuninn5 stóðu þeir
Sveinn Björnss., yfirdómslög
maður, síðar forseti íslands,
og Ludvig Kaaber banka-
stjóri, sem varð fyrsti for-
maður félagsstjórnar. Stofn-
un þessa féiags var fyrsta
sporið, sem stigið var hér á
landi af einstaklingum til
þess að reka sjálfstætt inn-
lent tryggingahlutafélag.
Sjóvátryggingafélagið ann-
ast sjóvátryggingar, brunatrygg
ingar, líftryggingar, bifreiða-
tryggingar og frjálsar ábyrgða-
tryggingar. Auk þess allflestar
tegundir annarra trygginga,
svo sem flugvélatryggingar,
jarðskjálftatryggingar, ferða- og
slysatryggingar, rekstursstöðv-
unartryggingar, byggingatrygg-
ingar, striðstryggingar o. fl.
Iðgjöld síðustu ára hafa num
ið rúmum milljarði króna sam-
tals. Um síðast liðin áramót
nam samanlögö skuldabréfa-
eign félagsins og eign I fast-
eignum 105 milljónum króna.
Núverandi stjórn skipa:
Sveinn Benediktsson, formað-
ur, Ágúst Fjeldsted, Ingvar Vil-
hjálmsson. Björn Hallgrímsson
og Teitur Finnbogason.
hefur verið of mikið bendlaður
við vafasöm mál og er ekki
nógu mikil persóna.
Brynja Janusdóttir, hár-
greiðslukona: Ég veit ekki
hverju maður á að svara. Fyrir
mitt leyti lízt mér ekki á hann.
Aldursmunurinn er allt of mikill.
Það hefur verið geysilega mikið
talað um þetta.
Gunnsteinn Jóhannsson: Ég
varð ákaflega skúffaður. Mér
finnst að fólk i heiminum hafi
sýnt henni anzi mikla samúð
í hennar raunum og mér finnst
hún hafa tapað mikið á j>essu.
Það hefur mikið verið talað um
þetta jafnvel frekar af karlmönn
um en kvenfólki, já mér heyrist
að þeir séu dálítið skúffaðir.
Ástmar Ólafsson, auglýsinga-
teiknari: Ég hugsa að Onassis
verði aliavega lélegur fóstur-
faðir. Þetta er náttúrlega glaum-
gosi, sem hefur hlaupið frá
hjónabandi og annarri konu.
Þétta er kaupsýslumaður, sem
virðist hafa litinn tíma til þess
aö sinna fjölskyldu og heimili.
En ef hún ætlar að komast
undan þessari Kennedyætt með
þessu móti virðist þetta vera
maður til þess að styrkja hana
í því. Menn eru yfirleitt hissa.
Grikki — það hefur náttúrlega
alltaf sína merkingu, ég held að
menn séu almennt mjög hissa.
Ragnar Lár: Ég hafði ekki
grun um að hún hefði verið
svona blönk manneskjan, ég
hélt að hún hefði verið á eftir-
launum. Þetta er alveg fráleitur
ráðahagur. Þetta er gamall karl-
skarfur, margþvældur í hjóna-
böndum og utan.
... og þetta hafði
Walter Schirra að
segja utan úr geimnum
um sama mál:
Walter Schirra geimfari í Ap-
ollo 7. var spurður í sjónvarps-
viðtali um hjúskaparáform
Jacqueline Kennedy og Onassis
,iins gríska, og brá hann fyrir
sig orðatiltæki, sem algengt er
í daglegu ensku máli: It is Greek
to me, eða: Það hljómar sem
gríska í mínum eyrum.
HAG ÁRSINS ?
Spjallað við fólk á g'ótunum um giftingu
Jackie Kennedy og Onassis skipakóngs
greiðslufólkið, sömuleið
is var hún umræðuefnið
þegar fólk hittist á götu
og á fjölmörgum vinnu-
stöðum.
Yfirleitt var fölk mjög undr-
andi yfir tíöindunum og höfðu
rnargir sitthvað til málanna að
leggja, þegar Vísir spurði þá
um það hvernig þeim litist á
þennan ráðahag ársins.
Sigríður Aradóttir, afgreiðslu-
stúlka sagði: Mér kom þetta á
óvart og leizt nú ekki of vel
á það. Ég held hún minnki mik-
ið í áliti við þetta. Þetta hefur
veriö mikið rætt bæði af við-
skiptavinum og starfsfólki.
Þórdís Hlöðversdóttir: Mér
lízt ekki vel á þetta. Onassis
Fréttin um ráðahag
Jacqueline Kennedy og
Onassis hins gríska
skipakóngs hefur vakið
mikla athygii. Hún var
aðalumræðuefni manna
á milli í gær. í verzlun-
um töluðu viðskiptavin
ir um þetta við af-
HVAÐ SEGIR FÓLK UM „RÁÐA-