Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 2

Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 2
VISIR . Þriðjudagur 22. október 1968., Skaut sig á marklínunni ' Óhugnanlegur atburður átti sér ' stað í hjólreiðakeppni ÓL. Mexí- kanskur maður skaut sig á mark- ' Hnu i þann mund sem keppendur voru að leggja upp í 100 km hjól- , reiðakeppnina. Mexíkaninn setti byssu skyndilega upp að gagn- auganu og hleypti af. Hann var þegar látinn, er 20 hermenn þustu , að og slógu hring um líkið. Þar stóöu hermennimir í klukkutíma en þá fyrst var líkið sótt. Hnefaleikar: Ólympíuleikar < geta líka verið hlægilegir Ólympíuleikar bjóða upp á margs * konar skemmtun. Það geta áhorf- -endur að hnefaleikunum borið vitni um. Þeir hlógu sig máttlausa ^þegar hinn 29 ára gamli Pólverji ‘Kasprzyk og Bandaríkjamaðurinn /Muniz slógust. Bftir örfáar sekúndur af hörku 'keppni höfðu buxumar tætzt utan yaf Pólverjanum og stóð hann eftir ^heldur kindarlegur, en varð að hverfa til búningsklefa til að skipta ''um buxur. •' Kannski var það þessu að kenna , að Bandaríkjamaðurinn vann mjög ■óvæntan sigur, því Pólverjinn var ÓL-meistari í Tokyó. 1 hnefaleika- ‘keppninni virðast Bandarfkin og íSovétrfkin ætla að skipta á milli sin verðlaununum. • Þéssl skemmtilega mynd gæti vérið táknræn fyrir Mexikóleikana. BOB BÉAMON stekkur hér í langstökki. Stökk hans á leikunum 8.90 vakti al- heimsathygli og er dæmigert Fyrir árangur bandarísku negr- anna á leikunum, en þeir hafa unnið meira en helming gull- vérðlauna Bandaríkjanna i Mexíkó. 2 GULL TIL USA I ÞREM SUNDGREINUM í GÆR ÁSTRALSKA SUNDFÓLKIÐ hefur til þessa komið betur út í keppni sundfólksins í Mexíkó en fyrirfram var gert ráð fyrir. I nótt unnu Ástralíumenn sitt ann að guil, það var hin 14 ára gamla Lycette McClemecos, sem vann 100 metra flugsundið á 1.05.5 mín, Ellie Daniel, USA, varð önnur á 1.05.8, bandaríska stúlk- an Shields varð þriðja á 1.06.2 og Ada Koch, Holland, á sama tima f 4. sæti. Bandaríkjamaðurinn Russell Hickco vann 100 metra flugsundið á 55.9 sek., Mark Spitz varö annar á 56.9. Gullverðlaunin fyrir 4x200 metra skriðsund fóru til USA, lið þeirra synti á 7.52.3 en Ástralíumenn fengu tímann 7.53.7 min, Sovét 8.01.6 mín. Gull til Dana, en „sig- urinn ' varð súrsætur • Danir unnu sitt fyrsta Ólympiu gull, — og jafnframt liklega hið eina, þegar V-Þjóðverjar voru dæmdir úr leik i Mexíkó í gær í hjólreiðakeppni, 4000 metrunum. Yfir sig gláður hljóp einn af Þjóðverjunum á móti félaga sínum, sem var greinilega búinn að vinna keppnina með yfirburðum, stjakaði við honum, „ýtti honum að marki", sögðu dómarar, „( slíkt er bann að í hjólreiöakeppni“. Rætt uin Albert sem næsta formann KSI Þétta var hálf súr sigur fyrir Dani. Þjóðverjar mótmæltu en mótmæli voru ekki tekin til greina. Fyrstu gullverðlaun Frakka • Frakkar unnu fyrstu gullverð- launin i' skylmingum á Mexíkó- leikunum eða allt frá 1956 í Mel- bourne. Unnu Frakkar Sovét- ríkin með 9:6 i úrslitum. Keppt mun i skylmingum með þrenns konar svérðum, í einstakl- ings greinum og keppnum liða, bæði í kvenna og karlaflokkum. B Nýr leiðtogi verður kjörinn á þingi knatt- spymumanna landsins 23. og 24. nóvember n.k. Björgvin Schram hefur fyrir löngu tilkynnt, að hann muni ekki gefa kost á sér til starfans, en hann hefur þjónað KSÍ og knattspyrnu- mönnum í landinu mjög dyggilega í áraraðir. Mjðg mikið er rætt um nýjan leiðtoga, sem geti leyst Björg- vin Schram af hólmi og ber í þeim umræðum einna hæst nafn Alberts Guðmundssonar, sem um eitt skeið gerði garðinn fræg an í Bretlandi, Frakklandi og I’taliu, — og var raunar fræg- ur um alla Evrópu skömmu eftir stríö, fyrir knattspyrnu- getu sína. „Það er rétt“, sagði Albert Guðmundsson á skrifstofu um- fangsmikils verzlunarfyrirtækis sins í gær, „það hafa margir farið þess á léit við mig að undanförnu að géfa kost á mér til að verða formaður KSÍ, — hins vegar hef ég enga afstöðu tekið í málinu enn sém komið Albert kvaðst hafa tekið þá á- kvörðun að gera heimkomu sína hingað sem hljóðasta eftir að hann lauk knattspyrnuferl1 ytra, en svo hafi þó ekki orðið, eins og margir muna. Hins vegar kvaðst hann ekki hafa skipt sér af „stiórnmálum knattspyrnuríbar“ og hefði aldrei viljað „trufla“ þá starf- sémi, éins og Albert kómst að orði „Ég veit ekki hvort mönn um hér mundu falla í geð þær tillögur sem ég hugsanlega mundi hafa fram að færa og að auki kæmi ég sem algjðr ný- græðingur i knattspvrnuforust- una. Þess vegna m.a. hef ég ekki viljað gefa jáyrði mitt“ sagði Albert Albert kvaðst hafa verið ánægður með frammistöðu knattspyrnumanna hér í sum- ar, árangurinn væri lofsverður, — og þá einna raunhæfastur hiá KR-ingum. —ibn— A Ibert Guðmundsson. ■-~-gagBagBBB;

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.