Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 3

Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 3
V1SIR . Þriðjudagur 22. október 1968. 3 TZúrið ykkur niður eins og ** fræ og reynið svo að vera eins falleg og fallegustu blóm, sem þið hafið séð.“ Hópurinn beygir sig niður og rfe hægt upp eftir hljóðfalli, teygir sig á tá og réttir upp hendumar. Þetta eru 7 ára böm, sem eru í Bamamúsfk- skólanum og kennarinn Lena Rist segir fyrir. 1 forskóla Bamamúsikskólans em 6—8 ára böm og þeim er kennd tónfræði á mjög léttu stigi með hreyfingum. „Það losar um þau, gerir þau frjálsari," segir Lena, „og flautan, sem er hljóðfærið, sem kennt er á, er meira sem hjálp- artæki. í lok vetrarins em þau farin að spila 5 tóna lög við alla þá leiki, sem notaðir em við kennsluna." Lena segir einnig frá því að í byrjun vilji bömin hópast saman í einn hnapp og kennsl- an miðast einnig að því að fá þau til að losna úr honum og hreyfa sig frjálslega. í sex ára hópnum era notaðar gjaröir, sem settar eru á gólfið til þess að halda böraunum dreifðum. Það ætti að gera börnin frjáls- mannlegri og óhræddari við það að koma fram eitt í senn. Sex ára bömin eru samt enn óþving- uð og ófeimin til þess að gefa sig fram til einsöngs og annarr- ar þátttöku í leikjum. í lok forskólans er próf, sem ætti aö leiöa í ljós hverjir halda áfram á tónlistarbrautinni. For- skólinn er undirbúningstími, sem hefur uppeldisleg áhrif að einhverju leyti á öll börnin. Flautan er notuó sem hjálpartæki. „Litli fugl í búri hver leysir þig, Iitli fugl í búri þekkirðu mig?“ Þau eru mörg, sem vilja syngja einsöngslag, og þessi varð fyrir valinu í þetta sinn. ujaroirnar eru noiauar ui leiKja. SKÓLINN, SEM GERIR BÖRNIN FRJÁLSARI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.