Vísir - 22.10.1968, Blaðsíða 7
VISI R . Þriðjudagttr 22. október 1968.
7
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
VÍNARBORG: Ungverska frétta-
stofan tilkynnir, að ungverska liöið
í Tékkóslóvakíu verði sent heim
bráðiega.
BRUSSEL: Embættismenn Evrópu-
ráðsins hafa látiö þá skoðun I
Ijós að undangenginni athugun, að
franska stjómin hefði ekki rétt tii
að banna, að eriend fyrirtæki eign-
ist meirihluta hlutabréfa í Citroen-
verksmiðjunum. Sameining Citroen
og Fiatverksmiðjanna ítöisku hefur
verið á dagskrá sem kunnugt er,
en de Gaulle hélt stjórnarfund um
málið og kvað hana ekki verða
leyfða.
5AIGON: Bandaríkjamenn skiluöu
í gær 14 norður-vfetnömskum sjó-
liðum, sem teknir vom til fanga
í sjóorrustu á Tonkinflóa 1. júlí
1966. Samkomulag var um 36 klst.
vopnahlé á landi meöan afhending-
in færi fram og var frá þessu geng-
:ð í Vientiane. Bátur frá banda-
rísku herskipi flutti sjóliðana á land
nálægt bænum Vinh og sveimuðu
þyrlur yfir á meðan. Þessi afhend-
ing á að sýna velvildarhug og hef-
ur aukið getgátur um, að sam-
komulag náist um stöðvun sprengju
árása.
Bandarlkjastjórn hefir fellt úr gildi
bann við sölu hergagna til Grikklands
■ Bandaríkjastjórn hefur
fellt úr gildi bannið við
sölu hergagna til Grikk-
lands.
■ Meðal þess fyrsta, sem
Grikkir fá eftir afnám
bannsins sem var sett, er
hernaðarlega stjórnin náði
völdunum í sínar hendur,
eru tveir tundurduflaslæð-
arar og flugvélar.
Ekki er vitað um hve margar
flugvélar er aö ræða. Bannið var
sett fyrir 3 misserum.
Enginn vafi er, að það á sinn
mikla þátt í, að banninu var aflétt,
að Sovétríkin hafa eflt mjög hern-
aðarlega stöðu sína á austurhluta
Miðjarðarhafs.
í frétt frá Washington er lögð á
það áherzla, að það sé hlutverk
Grikklands, að verja Evrópu á þess-
um hjara.
Fyrir nokkru voru. birtar fréttir
um þaö, aö ef ekki tækist samkomu
la-g um þaö milii ríkisstjórna Banda-
ríkjanna og Spánar, aö Bandaríkja-
menn heföu áfram hersveitir á
Spáni, myndu þeir flytja þær til
Grikklands.
Onussis og frú
fara til New York
New York: Aristoteles Onassis
or kona hans, fyrr frú Jacqueline
Kennedy eru væntanieg til New
York eftir hálfan mánuð.
Þau munu búa í íbúö þeirri í
New York, sem frúin hefir búið í
undangengin ár. Þetta er haft eftir
aðalritara hennar.
Aþenu í gær: Veðurs vegna
hefir ekki orðið af fyrirhugaðri
skemmtisiglingu á snekkjunni
Ohristina, Hún liggur í höfn á
eynni Scorpios.
Um hvað er rætt
á leynifundunum?
SAIGON: Bandarísk flugvél af gerð
inni C-47 hrapaði til jarðar í gær
á flugi frá Saigon til DaNang og
biðu 24 Bandaríkjamenn bana.
Bandarísk björgunarþyrla var skot
in niður í fyrradag, er veriö var
að reyna að bjarga flugmönnum
úr Phantom F4 þotu sem skotin
hafði verið niöur úti fyrir strönd
Norður-Víetnam nálægt Tiger-eyju. j
>etta var fjögurra manna áhöfn, j
n í hinni voru tveir. Öllum sex;
'ar síðar bjargað af tveimur björg
unai'þyrlum.
BELGR.4D: Tito forseti ávarpaði
100.000 manns í gær á fundi í
Prokuplje, 180 km sunnan Belgrad
og endurtók að Júgóslavar væru
reiðubúnir að berjast, ef til innrásar
kæmi. Hann flutti einnig ræðu
sama efnis í fyrradag (sunnudag).
íbúatala heims
3420 mllBjénir
New York: íbúatala heims eykst
um 180.000 á dag eða 65 milljónir
á ári, að því er seinustu skýrslur
Sameinuðu þjóðanna herma. Hin
mikla fjölgun stafar ekki aðeins
af fæðingafjölgun heldur og af
batnandi heilsufari, sem aftur leiðir
af, að menn ná hærri aldri. Hinn
1. júlí s.l. var íbúatala heims 3420
milljónir og var það 60 milljónum
meira en ári áöur.
JAKARTA: Mikil ólga er í Indó-
nesíu út af aftöku tveggja Indó-
nesa i Singapore, sem sekir voru
fundir um hermdarverk, er átökin
voru fyrir nokkrum árum milli
Malajsíu og Indónesíu. I Surabaja
á Austur-Java fengu hermenn fyrir-
skipun um að beita skotvopnum
þegar 200 stúdentar og annaö náms
fólk æddi um götur, framdi rán
og barði á kínverskum mönnum.
— Áður hafði sendiráð Singapore
í Jakarta verið lagt í rúst í óeirð-
um út af aftökunum.
Um hvaö er rætt á leynifund-
unum? Hvaöa skilyröi eru sett af
hálfu Bandaríkjastjórnar, sem
farið er fram á aö stjórn N.-Víet-
nam gangi aö, áöur en sprengju-
árásii-nar veröi algerlega stöðvað-
ar?
í sjónvarpi í Bandaríkjunum
(CBS) eru skilyröin sögð vera
þessi:
1. Þjóðírelsishreyíingin (Víet-
cong) í Suður-Víetnam og stjóx-n
in i Hanoi fyrirskipi, að hætt
verði að skjóta á bæi, þar sem
ekki eru herstöðvar.
2. Herliö N.-V. og Vietcong
hverfi frá hinum þéttbyggðu
svæöum S.-V.
í
3. Suður-Víetnam fái að i
hafa fulltrúa á Parísarráðstefn-
unni um Víetnamstyrjöldina.
í frétt urn þetta í „Information"
í Khöfn segir, að vitað sé til að
þriðja skilyrðinu hafi stjórn N.-V.
„hafnað til þessa“. Ennfremur seg-
ir þar, að stjórnin í Hanoi hafi á-
vallt fylgt þeirri stefnu að líta á
þjóöfrelsishreyfinguna sem hina
einu sönnu talsmenn fólksins í
S.-V., og væri það því „pólitísk
kúvending“, ef hún féllist nú á að
setiasf að samningaborði með
"-Víetnam.
Dregið hefir úr liðflutningum til
Suður-Vietnam seinustu vikur og
dregið hefir úr manntjóni Banda-
ríkiamanna.
Ýmsar getgátur eru uppi um
þetta — og sumt kann að skýr-
ast fyrir forsetakjör í Bandaríkjun-
um 5. nóvember — en sumt ef til
vill ekki fyrr en að þeim loknum.
4 forstjérar
fyrir rétti í
Khöfn: Þrír lögfræðingar og
fjórir forstjórar verða brátt leiddir
fyrir rétt, sakaðir um þátttöku í
hinu svonefnda Boss-hneyksli, sem
NTB kallar í frétt um þetta mesta
iðnaðarhneyksli Danmerkur. Sak-
irnar fjalla um ólögleg gjaldeyris-
viðskipti, tékkafölsun o. fl. Lög-
fræðingarnir hafa þegar veriö svipt-
ir rétti til málflutnings. Allir segj-
ast sakborningar vera saklausir,
en ef þeir yröu sekir fundnir eiga
þeir yfir höföi sér frá 2ja til 8 ára
fangelsisvist.
ieðri múlstofan
ræðir Rhédesia
Umræöur um tillögur Wilsons til
lausnar Rhodesíudeilunni hefjast í
neðri málstofu brezka þingsins í
dag. Aöalræðumenn af hálfu brezku
stjórnarinnar verða Wilson forsæt-
isráðherra og Thompson, ráöheri-a,
án umráða yfir sérstakri stjórnar-
deild, en hann var samveldisráö-
herra þar til fyrir nokkrum dögum,
er embættið var sameinað embætti
utanríkisráðherra.
Um 70 þingmenn úr Verkamanna
flokknum, sem andvígir eru tillög-
um Wilsons hafa sameinazt um á-
lyktunartillögu.
Forsætisráðheira Ihaiiands vill
herSa sprengjuárásir á N- Vietnam
3 Bangkok í gær: Thanom
littikachorn forsætisráðherra
Thailands vill, að Bandaríkin
xerði sprengj’uárásirnar á Norð-
ur-Víetnam, í stað þess aó draga
úr þeim eða hætta þeim.
Forsætisráöherrann sagði þetta á
’undi með fréttamönnum. Hann
cvað Suður-Víetnam og bandamenn
Suður-Víetnama hafa sterkari að-
stöðu nú en áður og væri það vegna
sprengjuárásanna, ekki sízt vegna
þess að vopnabirgðir hefðu verið
eyðilagöar. Þá hélt hann því fram,
að þaö væri stjórnin í Hanof, sem
ætti að fara fram á stöðvun
sprengjuárása, þá fyrst gætu banda
menn tekið til athugunar að draga
úr hernaðaraðgerðum.
Loks sagði forsætisráðherrann,
að hann liti svo á, að Norður-Víet-
na-m óski ekki eftir friði og vilji
því ekki draga úr hernaðaraðgerö-
um.
Thailand er eitt þeirra landa, sem
hefur sent hersveitir til S.-V. og
Bandaríkjamenn hafa flugvelli fyrir
B-52 sprengjuflugvélar í Thailandi.
Japanskir stútíentar mót-
mæla sprengjuárásunum
í gær efndu 730.000 japanskir
stúdentar í 363 bæjum til mótmæla
gegn spréngjuárásunum á Víetnam
og kom víða til harðra átaka milli
þeirra og lögreglu. Margir særðust
og á þriöja hundrað stúdenta voru
handteknir. Notaðar voru vatnsfall-
byssur og sprautað litúðu vatni á
stúdenta til þess að auövelda hand-
tökur.
PPcV
Per Borten
forsætisráöherra Noregs.
K©rfen fersæfis-
í heintsclin í Sann
og Vesfnr-^eí'lín
Forsætisráðhex-ra Noregs, Per
Borten, er i fimm daga heimsókn
í Vestur Berlín og Vestur-Þýzka-
landi.
Flugvél hans lentj í gær á flug-
vellinum við Köln, sem er bæði
fyrir Köln og Bonn. Borten var
þegar ekið til Heinrichs Lubke for-
seta, sem haföi morgunverðarboð
inni í heiðursskyni viö hann.
Síðdegis í gær ræddust þeir við «
Borten og dr. Kiesinger kanzlari
sambandsríkisins. Þeir munu ræða
stjórnmál Evrópu og varnamálin
eins og þau nú horfa við eftir her-
nám Tékkóslóvakíu.
Breiksi lífvnrpið
njéfi áfram
fulls frelsis
Miklar deilur eru hafnar á Bret-
landi að því er virðist um stöðu t
útvarps og sjónvarps til áhrifa á
stjómmálaskoðanir almennings.
síðan er Wedgwood Benn tækni-
málaráðherra flutti ræðu á dögun-
um, sem margir skilja svo að hjá
stjóminni séu uppi skoðanir um,
aö frelsi fjölmiölunartækja megi
ekki vera ótakmarkaö, og hefur nú
annar ráðlierra, Crossman. rætt
málið og haldið fram hefðbundnum
brezkum venjum um algert rit- og
skoðanafrelsi, og frelsi sjónvarps
og blaða, og að þetta frelsi megi
ekki skerða. Stjórnarandstöðu
flokkurinn mun krefjast yfirlýsing-
ar frá stjóminni um óskert hlut-
leysi og frelsi brezka útvarpsins.