Vísir - 22.10.1968, Page 4
Tveggja ára drengur lokaðist inni og
stökk út um glugga í sex metra hæð
mSWtHSMW
Það gerðist i
að tveggja ára
Suður-Jótlandi,
snáði lokaðist
Robin Douglas Home kvæntist árið 1959 Söndru Paul og var
hjónaband þeirra hinn mesti skripaleikur.
inni á saleminu. Hann gat ekki
opnað dymar innan frá og stökk
þá út um gluggann á tveggja
hæða húsi, fallið var sex metr-
ar, en sá litli stóð upp og
hringdi dyfabjöllunni á heimili
sínu.
„Ég fékk taugaáfali,“ sagði
móðir hans á eftir,“ þegar hann
stóð allt í einu í dyrunum."
Móðirin er þrjátíu og fjögurra
ára og eiginmaðurinn, Harald
Sandholt Petersen, starfar við
sjúkrahús.
Þau hjón eiga tvíbura, Jb og
Bo. Bo fór inn á salemið, er
faðir hans var að leggja af stað
til vinnu sinnar. Allt í einu
heyröu foreidrarnir drenginn
æpa. Hann gat ekki snúið lykl-
inum í skráargatinu, og dyrnar
voru læstar. Faðir hans reyndi
að segja honum, hvað hann ætti
að gera, en snáðimj var svo
skeikaður, að hann skildi það
ekki. Þaö var ekki hægt að ýta
lyklinum út, því að hann var
festur með vír.
Sandholt Petersen reyndi af
fremsta megni að' róa drenginn,
en það tókst ekki. Faðirinn var
að verða • of seinn til vinnu.
Kona hans segir: „Maðurinn
minn varð að hlaupa til vinnu
sinnar. Hann gat ekki látið sjúkl
ingana á deildinni bíða. Hann
bað mig að reyna að róa dreng-
inn og ætlaði ,að koma strax
aftur heim.“ Allt í einu tryllt-
ist drengurinn. Móðirin stóð og
vissi ekki hvað hún átti til
bragðs að taka. Á meðan hún
hringdi á hjáip, varð allt hljótt. ■
Hún hélt að drengurinn hefði
jafnað sig. Þá hringdi dyrabjall-
an. Bo stóð fyrir utan.
Hann hafði komið niður á
mjúka grasflötina, nokkra senti-
metra frá steinsteypustéttinni.
Hola hafði myndazt, þar sem
hann kom niður. Læknir kom á
vettvang og kvað drenginn við
beztu heiisu.
Ætlaði að giftast prinsessunni
— en er
Hinn frægi píanóleikari Robin
Douglas Home er látinn. Hann
fannst látinn í rúmi sínu og voru
mörg eiturlyfjaglös á náttborði
hans og er álitið að eiturlyfja-
notkun hafi orðið honum ofraun.
Hann var 36 ára gamail og aflaði
sér heimsfrægðar sem rithöfund-
ur og píanóleikari. Árið 1958 ætl-
nú dáinn
aði hann að trúlofast sænsku
prinsessunni Margarethu, en kon-
ungsfjölskyldan var þeim ráða-
hag mótfallin og kom I veg fyrir
það.
Douglas Home var bróðursonur
fyrrverandi forsætisráðherra
Breta Sir Alec Douglas Home.
Hann fylgdi honum alltaf að mál-
um og ef til vill er það ósköp
skiljanlegt. Douglas gifti sig árið
1959 ensku tízkusýningadömunni
Söndru Paul, en hjónabandið var-
aði aðeins í eitt ár. Þaö þótti allan
tímann hinn mesti skopleikur.
Á þessu ári arfleiddi hann tvö
börn, þar sem hann taldi að auð-
ur sinn væri bezt geymdur hjá
komandi kynslóð.
Prinsessan er nú gift i Lundún-
um og ber titilinn frú Amber.
Bo litla tókst að opna þakgluggann og stökk út. Hann kom niður
rétt við gangstéttina. Hér sést Bo til vinstri með tvíburabróður
sínum Ib.
!
!
)
Rabbað um heimsins
frægasta hjónaband
Fregnin um að Jacqueline
ætlaði aö gangi í hið heilaga
með Onassis skipakóng vakti
hérlendis sem annars staðar ekki
minni athygli en styrjaldarfregn.
Jacqueline, sem alls staðar hefur
notiö samúðar og vinsælda
vegna hins fræga eiginmanns
og forseta, sem svo sviplega var
kvaddur brott mun vafalaust
vfða verða álasað fyrir tiltækið.
í augum fólks varhúngyðjasem
lifa átti fyrir minningu manns
sfns. En fólk tekur ekki tillit
til þess, að Jackie er aðeins sorg
mædd kona, þó hún sé fyrrver-
andi forsetafrú, sem vafalaust
vill lifa sínu lífi. Vo#eiflegir at-
burðir og heimsfrægð breyta i
þessu tilliti varla miklu, þvi
fólkið er furðulega hvað öðru
Ifkt, hvar í sveit sem það er
sett.
1 þessu tilfelli sem svo mörg-
um öðrum má ætla að fólk lað-
ist hvað aö öðru eftir marg-
slungnum tilfinningaleiðum,
sem enginn botnar í. Ef ekki
væri um svo frægt fólk að ræða,
hefði þessi fregn vart bótt tið-
indum sæta. En frægðina og
eftirtektina verður þetta fólk að
sætta sig við ,enda hefur það
sjálft gert lítið til að lifa í kyrr-
þey, þó þetta heimsfræga fólk
þykist stundum þreytt á þeirri
athygli sem það vekur alls
staðar.
Það er mesta furða, hvað
slíkar fregnir vekia mikla at-
hygli og umtal hér uppi á ís-
landi, og sýnir bezt, að okkur
er ekkert mannlegt óviðkom-
andi. Nokkuð heyrist um það
sérstaklega hjá kvenbjóðinni, að
Onassis þyki ekki samboðinn
hinni glæsilegu Jacqueline, enda
sé hann allt of gamall orðinn.
Sumir álíta að um hjónaband
vegna auðs sé að ræða. Taka
verður tillit til þess, að Jacque-
line þarf vart að gifta sig til
fjár, því hún er stórauöug sjálf.
Varöandi Onassis má vekja at-
hygli á þvi, að maöurinn sjálf-
ur hlýtur að hafa talsvert til
brunns að bera. þó hann hafi
vakið talsverða athygli á sér
fyrir kvcinamál sín og sam-
kvæmislíf. Nánir vinir Onassis
eru margir athyglisverðir per-
sónuleikar, sem gefur til kynna,
að Onassis hlýtur að hafa tals-
.'erðan persónuleika til að bera,
því vart mundu þeir una ná-
inni vist með innantómum glaum
gosa, þó um borö í skemmti-
snekkju sé. Má minna á, að hinn
aldni skörungur Churchill, sem
vart verður talinn undir meðal-
lagi persónuleiki var náinn vin-
ur Onassis og dvaldist langdvöl-
um með honum á Miðjarðarhafi.
Annars er þetta hjónabands-
mál þeirra Jacqueline og Onassis
eitt af hinum ágætu dægurmál-
um, sem ræða má fram og til
baka, til ánægiu eða hnevkslun-
ar, án bess að komast að nokk-
urri niðurstöðu. Sem betur fer
eru ekki allar heimsfráttir um
styrjaldaraðgerðir eða árangurs-
iausar friðarviðræður.
Þrándur í Götu.
)
s