Vísir - 09.11.1968, Qupperneq 5
— iiUfiKWiii
:-r--K TTi.ii - . , ■
Það er ítölsk ull í þessum
í ensk- glæsilega síðkjól, sem Guð-
um ullarkjólum. rún Dóra sýnir.
Fitueyðir hreinsar vélar,
vinnuföt bílskúrsgólf o- fl.,
betur en flest önnur hreinsíefnl-
Leiðarvísir fylgir.
FÆST Á ÖLLUM HELSTU
BENSÍNSTÖÐVUM
ANDRI H.F., HAFNARSTRÆTl 19,
GREAS EATER
FitueySir
V í SIR . Laugardagur 9. nóvember 1968.
aisiiKiKjoium ensKum.
Kaffisala
og tízku-
sýning
— og konur fá styrk
fil sérnáms
TVystúdínur munu ganga um
beina á hinni árlegu kaffi-
sölu Kvenstúdentafélags ís-
iands, sem verður á morgun í
Súlnasal Hótel Sögu kl. 3 síð-
degis.
Skemmtiatriði verður sem
endranær tízkusýning og sýna
8 kvenstúdentar tízkufatnað.
Öll skemmtunin er byggð á
sjálfboðavinnu, þ.e.a.s. kökurn-
ar eru bakaðar af meölimum
félagsins og öll vinna veitt ó-
keypis. Efnt er til skemmtun-
arinnar 'tíl þess að safna fé til
styrktár konum til sérnáms er-
lendis eða heima. Undanfarin
ár hafa 3—i konur hlotiö þenn-
an styrk árlega og skiptir nú
upphæðin, sem veitt hefur ver-
iö til þessa hundruðum þúsunda.
Kvenstúdentafélag íslands
hefur haldið þessar skemmtanir
árlega frá árinu 1954 og heldur
því u,.p á 15 ára afmæli þessa
skemmtanahalds síns á næsta
vetri.
Tízkufatnaöurinn, sem sýndur
verður er frá Parísartízkunni,
kjólar af ýmsum gerðum allt
frá ullarkjólum og síðum sam-
kvæmiskjólum að náttkjólum
og sloppum frá Kayser, aö ó-
gleymdum brúðarkjólnum. Frá
verzlun Bemharðs Laxdals
verða sýndar kápur og dragtir
og einnig verða sýndir tveir
kjólar frá Tízkuskóla Andreu.
Þessi fyrirtæki lána fötin til
tízkusýningarinnar, skó lánar
verzlunin Sólveig í Hafnar-
strætij blóm eru frá Blómum og
ávöxtum og um greiðslu sér
Hárgreiðslustofan Edda, Sól-
heimum 1.
Tilkyrmmg
Vegna væntanlegs niðurrifs á geymsluhús-
næði Reykjavíkurborgar að Grensásvegi 1
(Litla Grund) eru þeir, sem telja sig eiga hús-
muni o. fl. geymt á þessum stað, beðnir að
hafa samband við húsnæðisfulltrúa í Félags-
málastofnun Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9, sími 18800, — fyrir 20. þ. m.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Jólamarkaður
Viljum taka vörur í umboðssölu fyrir stóran
jólamarkað, sem haldinn verður í miðbænum
frá 15. nóvember til jóla. Alls konar vörur
koma til greina svo sem húsgögn, gjafavörur,
heimilistæki o. fl. Tilboð sendist augld. Vísis
fyrir 12. þ. m. merkt „Jólamarkaöur“.
HÚSNÆÐI
Til leigu er 50 ferm húsnæði við Hverfisgötu,
hentugt fyrir skrifstofur éða teiknistofu.
Sendið nafn og símanúmer í pósthólf 872.
Söluíbúðir i
borgarbyggingum
Samkvæmt ákvörðun borgarráðs varðandi
sölu íbúða í borgarbyggingum, er hér með
auglýst eftir umsóknum þeirra er koma vilja
til greina þegar endurseldar eru íbúðir sem
borgarsjóður kaupir samkv. forkaupsrétti
sínum.
Að þessu sinni er um að ræða nokkrar
2ja og 3ja herbergja íbúðir í Gnoðarvogi,
og e. t. v. í öðrum byggingaflokkum.
Nánari upplýsingar veitir húsnæðisfulltrúi í
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Póst-
hússtræti 9, 4. hæð, viðtöl kl. 10—12.
Borgarstjórinn i Reykjavík.