Vísir - 09.11.1968, Síða 16
VISIR
mgai ucigui itövciiiLicr i jdo>
| Tumhm á Hallgrímskirkju full-
steyptur í lok mánaðarins
— Nær Jbó endanlegri hæð 70.5 metrum — Um
4 metra kross verður etv. kominn upp um jól
□ í lok þessa mánaðar
verður væntanlega lokið
við að steypa turnsplr-
una á Hallgrímskirlíju,
en þá er turninh ásamt
spírunni 70.5 metrar að
hæð og endanlega steypt
ur. Þá er eftir að koma
fyrir krossi, sem ætlað-
ur er efst á turnspirunni
og eru möguleikar á, að
hann verði kominn upp
um jól, en teikningar að
honum* wrða trlhúnað í
I '
þessum mánuði.
Annar bráðabirgðakross hefur
lýst ofan frá turni Hailgrímskirkju
nú að undanförnu en hann var sett
ur fyrst upp um síðustu jól. Var
hann m.a. settur upp til þess að
vega og meta mætti hæð hins end
anlega kross eftir honum og eru
allar iíkur á því að hæðin verði um
4 metrar eins og Guðjón Samúels
son, sem teiknaði kirkjuna gerði
upphaflega ráð fyrir.
Veitti Hermann Þorsteinsson,
formaður safnaðarnefndar Hall-
grímskirkju blaðinu þessar upplýs
ingar og sagði ennfremur að iðju-
höldur nokkur í borginni hefði á-
kveðið að ge:' krossinn og einnig
heföi nýlega borizt gjöf í bygging-
arsjóð kirkjunnar til lýsingar á
kirkjunni.
Væntanlega verður krossinn
flóðlýstur, en einnig kemur til
mála að hafa hann sjálfiýstan og
eru sérfræðingar að athuga þann
möguleika. Ef krossinn verður
flóðlýstur verður öðru ljósinu kom
ip fyrir á kirkjuskipinu en hinu í
námunda við styttu Leifs heppna
eða nánar tiltekið k þakinu á Há-
bæ. Gert er ráð fyrir innanlýsingu
í sjálfri turnspirunni sem nær frá
45 metum að 70,5 metum en á
henni eru óteljandi litlir gluggar
og göt og út um þá kæmi ljós.
Nú er búið að steypa tuminn
upp í 63,10 metra hæð og sex
manna vinnuflokkur vinnur að
mötauppslætti síðasta áfanga, sem
veröur kominn upp í lok mánaðar-
ins, ef frost tefur ekki framkvæmd
ir. Á næsta vori er ráðgert að hefj
ast handa á kirkjuskipinu, ef pen
ingar verða fyrir hendi og þegar
búið er að húða turninn utan.
1 iokin gat Hermann þess, að
Sjónvarpið fengi aðstöðu efst í
turninum fyrir endurvarp á sjón-
varpsútsendingum, en íbúarnir í ná
grenninu hafa kvartað undan þvf
að turninn truflaði útsendingar. Þá
sagöi Hermann: „Við eru þess full
vissir, að allir verða glaðir, þegar
vinnupaliarnir verða teknir niður
að vori, þegar búið er að ganga frá
turninum að utan og hann kem-
ur um síðir í Ijós fullbúinn.“
Viö listframleiðslu. Einar Hákonarson þrykkir af grafískar myndir.
GRAFÍSK LIST í UNUHÚSI
Vill láta auka hitaveitu-
framkvæmdimar
— Fyrsta ábending Atvinnumálanefndar l'ógó
fyrir borgaryfirvöld
■ Atvinnumálanefnd Reykja-
víkur kom í gær með fyrstu á-
bendingu sína í atvinnumálum,
en eins og komið hefur fram í
fréttum er tilgangur nefndarinn-
ar að kanna leiðir til aukningar
atvinnu í borginni ef koma
skyldi til atvinnuleysis.
Nefndin lagði til við borgaryfir-
völd, að kannað yrði hvort unnt
yrði að auka framkvæmdir Hita-
veitunnar umfram það, sem tekjur
hennar gefa tilefni til, Var lagt til
að Ieitað yrði eftir 25 millj. króna
láni hjá Atvinnuleysistryggingasjóði
til hitaveituframkvæmda í Árbæj-
arhverfi, Breiðholtshverfi og stækk
un í Fossvogi.
Hitaveituframkvæmdir eru mann
frekar og myndu því ska-pa mikla
vinnu auk þess fjármálalega , á-
vinnings, sem stækkun hitaveit-
unnar er fyrir borgarbúa. Formað-\
ur nefndarinnar, Birgir Isl. Gunn-
arsson, sagði, að nefndin hefði ýms-
ar kannanir með höndum, en verk-
svið hennar væri að koma með á-
bendingar f atvinnumálunum frekar
en beinar ályktanir. Neífidin hefur
talið það rétt, a. m. k. fyrst í stað,
að kanna hvemig auka mætti vinnu
hjá borgarstofnunum, frekar en að
koma með ályktanir um atvinnumál
in almennt.
í nefndinni á sæti einn fulltrúi
frá hverjum flokki i borgarstjóm
auk fulltrúa frá fulltrúaráði verka-
lýðsfélaganna og Vinnuveitenda-
sambandinu, en borgarráð skipaði
formann hennar.
„Það væru svik að þrykkja af
meira en upngefinn eintakafjölda",
sagði Einar Hákonarson, ungur
listamaður og kennarl f Myndlista-
skólanum, sem opnar sýningu í
Unuhúsi á grafikmyndum eftir sig,
í dag.
Á sýningunni eru 35 gráfiskar
myndir, sem eru þrvkktar af f 10-
20 eintaka fjölda. Þaö er eðli graf-
iskrar listar að gera meira en eitt
eintak af hverri mynd. Verkin eru
þrykkt á pappfr af' þrykkplötu,
sem listamaðurinn hefur unnið, en
litið er á hvért eintak s^m frum-
mynd, þo að þær séu margar. Ein-
mitt þetta gerir það kleift að stilla
verði myndanna í hóf, sagði lista-
má’ðurinn á blaðamannafundi í gær,
en það hlýtur aö vera talinn köst
nr á þessum síðustu og verstu tím
um. Dýrasta myndin kostar 4000
kr.
Gengi grafiklistar hefur farið
mjög vaxandi aftur á síðustu tím-
um. Má geta þess að það eru ekki
eintóm óskráð blöð, sem hafa setzt
á skólabekk hjá Einari í Myndlista
skólanum, meðal nemenda er m.a.
hinn virti, listmálari, Þorvaldur
Skúlason.
Sýning Einars í Unuhúsi verður
opin til 22. nóvember. Fimmtudag-
inn 14. nóvember kl. 8.30, mun
hann flytja fyrirlestur um grafík í
Unuhúsi, Einar hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum erlendis.
Bágar
veiðihorfur
• Ekki er bjart útlitiö á sild-
veiðunum fyrir austan. Litil sem
engin síld hefur fundizt síóustu
dagana út af Austfjörðum og örlar
hvergi á göngunni, sem virtist þó
komin þangað á dögunum. Fáein
skip fengu síld í Breiðamerkur-
dýpi, en það er sunnanlandssíld,
mjög blönduð og mikið af henni
smásíld.
• Ástandið er heldur bágt viða
á fjörðunum, þar sem sumar sölt-
unarstöóvarnar eru ekki farnar að
fá eina einustu bröndu í allt sumar
og haust. — Örlar víða á at-
vinnuskorti. Báglega mun til dæm-
is horfa með atvinnu á Vopnafirði
og Raufarhöfn.
• Eina síldveiðin, sem verið hef-
ur að ráði síðustu dagana er við
Hjaltland og í Norðursjónum. Þar
eru nú um 15—20 íslenzk skip að
veiðum. Milli 60 og 70 skip eru við
síklveiðarnar eystra.
a.
Grunnurinn að viðbótarhúsnæði Blindrafélagsins.
i; Heimili fyrir blinda j
iiað rísa við Hamrahlíð^
Blindrafélagið efnir til merkja-
sölu á morgun til eflingar bygg-
ingarsjóði sínum. Verður ágóð-
anum varið til byggingar síðari
hluta Blindraheimilisins að
Hamrahlíð 17.
Smíði hússins hófst i haust,
en það verður 6 þús. rúmmetrar
að stærð óg samtengist eldra
húsi við vesturgafl þess. Áform-
að er að steypa húsiö upp á
næstu 7 mánuðum.
1 nýbyggingunni verða bæði
einstaklings- og fjölskylduibúð-
ir, sem sérstaklega verða inn-
réttaðar fyrir blint fólk. Hluti
af kjallara hússins verður til
afnota fyrir Blindravinnustof-
una, sem starfækt er af félaginu
en þar starfa nú að jafnaði 10
manns við bursta- og plast-
pokagerð.
Framleiðsla Blindravinnustof-
unnar kefur aukizt ár frá ári.
enda hefur verulegu fjármagni
verið varið til kaupa á full-
komnum burstagerðarvélum.
Auðvelt hefur revnzt að kenna
blindum að stjórna þessum vél-
um. Með þessu móti framleiðir
starfsfólk vinnustofunnar nú
fyllilega samkeppnisfæra bursta
vöru, á borð við það, sem bezt
gerist annars staðar.
I
Negrnsálmar
í Garðakirkju
Ný tegund tónlistar hér á landi,
negrasálmar verða sungnir á kvöld
athöfn Garðakirkju, sem er ánn-
að kvöld kl. 8.30.
Athöfnin hefst með því að Þor-
kell Sigurbjömsson, tónskáld, flyt
ur erindi um þessa tegund tónlist
ar, en þrír söngvarar og Garðakór
inn flytja siðan nokkra negrasálma.
Söngvararnir eru: Svala Nielsen,
Margrét Eggertsdöttir og Jón Sigur
bjömsson. Undirleikari og stjórn-
andi Garðakórsins er Guðmundur
Gilsson, organleikari.
Að lokinni kvöldathöfninni veró-
ur kaffisala í samkomuhúsinu að
Garðaholti, og mun allur ágóði af
hénni renna til Hjálparsjóðs Garða
sóknar, en nokkrar konur í sókn-
inni hafa gefið allar veitingar og
vinnu við kaffisöluna.
t