Vísir - 19.11.1968, Side 1

Vísir - 19.11.1968, Side 1
Snarráðir strákar Það var um nóg að rabba í af- mælinu hans Páls Ásþórs í gær, hann varð 9 ára og þá var aðal- umræðuefnið ævintýrið, sem hann og Þröstur vinur hans, sem einnig er 9 ára, lentu i á sunnu- daginn, þegar þeir komu upp um pörupilt einn, sem ætlaði að pretta þá. — Myndin var tekin f afmælisbjðinu og fremstir eru þeir Páll og Þröstur, en bak við þá standa gestirnir. Mjólkurskortur í Reykjavík — Allur rjómi og 45 jbús. litrar af mjólk fluttir i viku hverri að norðan REYKVÍKINGAR hafa ekki í fengið nándar nærri nóga mjólk J af Suð-vesturlandssvæðinu und- j anfarna daga og hefur því orðið ! að flytja talsvert mjólkurmagn • að norðan. Verður auk þess að i fá allan þann rjóma, sem neytt er hér á Reykjavíkursvæðinu að norðan. Vísir fékk þær upplýsingar hjá sölustjóra Mjólkursamsölunnar í morgun, að flytja þyrfti 45 þúsund lítra frá Norðurlandsbæjunum, — m-> 10. síða • Forsvarsmenn hins nýstofn- aða Almenna útgerðarfélags lýstu því yfir strax við stofnun, að þeir hygðust kaupa togar- ann Gylfa, sem ríkisábyrgðar- sjóður á. Gerðu þeir í byrjun nóvember kauptilboð, sem nam II milljónum. Ríkisábyrgðarsjóð ur hafnaði tilboðinu og taldi ekki næga tryggingu fyrir greiðslum. ALÚT hafði forkaups rétt á Gylfa í einn mánuð, en hann rann út um 8. nóvember. Guðmundur B. Ólafsson, for- stöðumaður Framkvæmdasjóös, skýrði blaðinu frá þessu { morgun. Aðstandendum ALÚT hafði verið tjáð, að verulega stærri hluti kaup- verðs yrði að vera annað hvort greiddur i peningum eða tryggð- ur með öruggum fasteignaveöum. Nú hefur borizt erindi frá ALÚT, þar sem farið er fram á framleng- ingu forkaupsréttarins, og verður því svarað fljótiega. Ríkisábyrgðar- sjóður hefur ekkf séð neina út- reikninga um framtíðarrekstur skipsins frá útgerðarfélaginu, og sagði Guðmundur, að allar yfirlýs- ingar um arögreiðslur til hluthafa félagsins væru aö sjálfsögðu ó- viðkomandi sjóðnum. Togarinn Gylfi er falur, fáist hagstætt verð. Brotizt inn i sumarbústaöi • Meðan lögregla Reykjavíkur og nágrennis hafði varla undan við að sinna köllum fólks vegna innbrota, árása, slagsmála og fleira, brutust einhverjir inn f sumarbústaði við Hafravatn um helgina. Sveitin fór því ekki varhluta af þeirri afbrotaöldu, sem nú gengur yfír. 1» 10. síða. Eiga þrjár milljónir hjá frystihúsinu — Frystihúsið situr uppi með 25 millj. kr. útflutningsverðmæti Sjómenn og útgerðar- þeir fá ekki greitt fyrir menn á Húsavík hafa samþykkt að hætta róðr um. Ástæðan er sú, að fiskinn hjá frystihúsinu á staðnum, Fiskiðjusam- laginu, þar sem flestir bátanna leggja upp afla sinn. Er reiknað með að samlagið skuldi bátun- um um þrjár milljónir króna um næstu mán- aðamót. Samþykkt þessí var gerð á fundi í Samvinnufélagi útvegs- manna og sjómanna á Húsavík núna á sunnudaginn. AHmargir bátar hafa róið frá Húsavík í sumar og haust og afiað sæmi- lega á köflum. Fiskiðjusamlagið hefur tekið á móti fiski í allt sumar og B->- 10. síða. Forkaupsréttur ALUT til aí kaupa Gylfa útrunninn #/ÐýriiiætMr## farmur með jeppu sem vult Árekstur varð miMi jeppa-bif- reiðar og fólksbíls á gatnamót- um Rauðarárstígs og Flóka- götu um hádegisbilið í gær. Við áreksturinn valt jeppabifreiðin og hafnaði á þakinu. Hvorugan ökumanninn sakaði, en í jepp- anum höfðu verið milli 30 og 40 flöskur af áfengi, sém þoldu síður þessa loftferð. Brotnuðu nokkrar. í ljós kom, að öku- maöurinn hafði keypt áfengið fyrir kunningja sinn úti á landi sem ekkj á greiðan aðgang að áfengisútsölum fyrjr áramótin. Vaxandi glæpaalda Rannsóknarl'ógreglan man varla aðra eins skálmöld hér i borginni • Það er greinilegt að það hefur orðið heldur skuggaleg þróun í glæpamálunum að undanförnu, sagði Ingólfur Þorsteinsson, yfirmaður rann sóknarlögreglunnar í viðtali við Vísi i morgun. Þessi yfir- Iýsing kemur lesendum Vísis varla á óvart. Undanfarna daga hafa glæpafréttir fyllt mikið rúm á útsiðum blaðs- ins. Það hefur veriö geysilega annasamt hjá okkur aö undan- förnu, sagði Ingólfur og man ég varla eftir annarri eins glæpa öldu eins og verið hefur að undanfömu og glæpirnir virð- ast sífellt fara vaxandi. Ingólfur treysti sér ekki til að gefa skýringu á þeirri skálm öld, ' ?m ríkt hefur. Skammdeg- ið fer illa í marga og gæti haft áhrif i átt til aukinna glæpa. fngólfur sagði þó að það væri engin regla að glæpir ykjust með skammdeginu. Það kæmu oft öldur um bjartasta tímabil ársins. Skýringin á glæpaöldunni gæti ef til vill legið að nokkru í hinu erfiða efnahagsástandi, sem ríkir hér á landi, þó að slíkum skýringum skvldi tekið með varúð. I mörgum innbrotum upp á síðkastið hefur verið stolið veru legum fjármunum. — Þetta held ég að sé frekar tilviljun en stefnubreyting hjá innbrotsþjóf- um, sagði Ingólfur. Nú er meira um innbrot, sem hlýtur að valda því að innbrotsþjófarnir hafa oftar heppnina með sér. Sú skýr ing er að minnsta kosti senni- legri en að glæpir séu nú skipu- lagðari en áður fyrr. SJÓMENN 0G ÚTVEGSMENN Á HÚSAVÍK HÆTTA RÓÐRUM

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.