Vísir - 19.11.1968, Blaðsíða 8
8
V1SIR . Þriðjudagur 19. nóvember 1968.
VISIR
Otgefandi. ReyKjaprent ö.t
FraxnKvæindastjóri Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas KristjánssoD I
Aóstoðarritstjóri: Axei Thorsteinson
Fréttastjón Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Augiýsingar: \ðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjóm: l’tugavegi 178. Slmi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald Kr. 125.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 10.00 eintakið |
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. /i
Adda Bára og Arnalds
„§já þann hinn mikla flokk sem fjöll... hið prúða
lið sem pálmavið." Hleypt hefur heimdraganum Al-
þýðubandalagið sem flokkur. Fundur skyldi haldinn,
en stólar voru óþarflega margir.
Efalaust hafa þau haldið, Adda Bára og Arnalds,
að nú væri þeirra tími kominn. En fyrsti fundur hins
nýja Alþýðubandalags í Austurbæjarbíói hefur án efa
valdið öðrum mönnum meiri vonbrigðum en Öddu
Báru og Arnalds. Páfinn situr enn í Róm.
Eins og fyrri daginn var talað um þær drápsklyfj-
ar, sem hin vonda ríkisstjórn sé að gleðja sig við að
leggja á alþýðuheimilin. Það er eins og fólki sé ætlað
að halda, að í einhverjum fílabeinsturni sitji vondir /(
menn, sem hafi sér það til dundurs að kreista blóð
undan nöglum alþýðu manna.
Hvaða drápsklyfjar hefur ríkisstjórnin lagt á fólk?
Vissulega munu þungar byrðar leggjast á alla, miðað
við það, sem áður var, þegar afli og útflutningur voru
í hámarki. Þetta vita Adda Bára og Arnalds. En þessi
baggi stafar af tekjutapi, sem þjóðarbúið hefur orðið
fyrir. Af útflutningsverðmætum einum hefðu íslend-
ingar hlotið um átta þúsund milljónir króna í ár, ef
aðstaðan væri sambærileg við það, sem var fyrir að-
eins tveimur árum. Ef til vill safnast í ár upp í fjögur
þúsund og fimm hundruð milljónir. Svo koma Adda
Bára og Arnalds og segja, að það sé hin vonda ríkis-
stjórn, sem sé að leggja drápsklyfjar á þjóðina!
í ríkisstjórn íslands er nákvæmlega sams konar al-
þýðufólk og Adda Bára og Arnalds. Þetta eru menn
frá alþýðuheimilum, sumir að vísu synir embættis-
manna, en þá tegund manna þekkir alþýðuleiðtoginn i
Arnalds nákvæmlega jafnvel og aðrir, og þarf raunar y
ekkert að skammast sín fyrir slíki ætterni.
Hvers vegna voru stólamir auðir á fyrsta fundi hins
nýja flokks Öddu Báru og Arnalds. Þetta er ekki tor-
ráðin gáta. Fólkið á íslandi er ekki eins skyni skropp-
ið og kommúnistar vilja vera láta. Stólarnir á fyrsta
fundi Alþýðubandalagsins nýja voru ekki til skamm-
ar Öddu Báru og Arnalds. Þeir báru kveðju til félag-
anna Einars og Brynjólfs. „Far vel Frans“ sögðu þeir. f(
Aðild Kína
Jsland er í hópi nokkurra ríkja, sem hafa á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna lagt fram tillögu um, að
kannaður verði vilji Kína til að gerast aðili að sam-
tökunum og á þeim forsendum, að Formósa verði
einnig aðili eins og verið hefur. Sjálfsagt er að veita
Kfna aðild, en það á ekki að hrekja Formósu úr sam-
tökunum til þess. Tillaga ríkjanna sex e'r skynsam-
legasta tillagan hjá Sþ um aðild Kína, og er íslandi
sómi að því að flytja hana.
Dönskum ungmennum staf
ar geigvænleg hætta af
notkun eiturlyfja ~
,Fræðsla, fræðsla og aftur fræðsla og ekkert
annað dugar, 1 baráttunni gegn henni"
■ Hér í blaðinu hafa verið
birtar fréttir, sem lelða í ljós
hver vandi mönnum er á hönd
um í Danmörku vegna sfvax-
andi eituriyfjanotkunar.
ÞaÖ mun ekki ofsögum sagt,
að öll þjóöin hafi miklar áhyggj-
ur af þessari vá, sem þegar er
orðið við að glíma um land allt,
ekki aðeins í stórborgunum,
heldur í smábæjum og jafnvel
þorpum, þar sem menn geta
fengið eiturlyfin fyrirhafnarlaust
oft og tíðum. Og það er því eng-
in furða, þótt þeir, sem gerst
kynni hafa af þessum málum,
þegar hið opinbera ætlar loks
að láta til sín taka, taki af skar-
ið um það, að svo sé komið, að
ekkert dugi í baráttunni gegn
voðanum nema fræðsla, fræðsla
og aftur fræðsla.
Eiturlyfjaneyzla hér á landi er
enn sögð lítil, og er það von-
andi rétt, en það er full ástæða
fyrir okkur til þess að fylgjast
með þvf sem er að gerast á vett-
vangi þessara mála í nágranna-
löndunum, því að sömu hættu
getur orðið viö að glíma hér sem
annars staðar. Samgöngur eru
orðnar tíðar landa milli, sam-
vizkulausir, fégráðugir menn
kaupa smygluð eiturlj’f og selja,
og ferðamenn frá suðrænum
löndum hafa blátt áfram á stund
um notað eiturlyf sem gjaldeyri
í löndum eins og Svíþjöð og
Danmörku.
Er nú þetta ekki allt saman
„blásið út“ í blööunum, — er
hættan eins mikil og blöðin
halda fram? Þessu mundi ég
svara á þá leið, að það sem
blöðin birta um þetta aö undan-
fömu, ber því vitni, að þau hafi
ekki verið að gera úr þessu æsi-
fregnir, — hættan er geigvænleg,
og þeim fer fjölgandi í Dan-
mörku og Svíþjóð, sem á fáum
árum eyðileggja heilsu sína með
neyzlu eiturlyfja og sjá lífsham-
ingju sína í rústum.
Hér fara á eftir glefsur úr
hvorki fleiri né færri en fjórum
fréttum um vandamálið, en þær
eru allar úr Politiken, og komu
allar sama daginn, undir stórum
fyrirsögnum og sýna þær ljós-
lega, hversu ástatt er og horfir.
Ein fyrirsögnin er svo hljóð-
andi: Hægt er að fá eiturlyf í bæ,
þar sem áfengi er ekki til sölu.
Undirfyrirsögn: Jafnvel i smábæ
eins og Ingstrup getur eiturlyf ja
neytandinn fengið það, sem
hann vill.
Ingstrup er smábær með 1800
ibúa, miðsvegar milli Álaborgar
og baðstaðarins Lökken. Það er
ekki hægt að fá áfengi í veitinga-
stofunum í Ingstrup, en maður
getur keypt þar „ha.h“, prælut-
intöflur og annað, sem eiturlyf ja
neytandi kann að óska eftir. Hér
er bærinn Ingstrup ekki nefndur
af því, að hann sé að þessu leyti
sérstætt tilfelli, heldur sem sönn
un þess að eiturlyfjahættan hef-
ur ekki aðeins setzt að í Kaup-
mannahöfn og stóru bæjunum,
heldur og í smábæjunum. Eitur-
lyfin eru fyrir löngu farin að
breiðast út um landið og eng-
inn getur talið sig öruggan vegna
fjarlægðar frá stóru bæjunum.
Nýlega hafði lögreglan hendur
í hári nokkurra eiturlyfjasala í
Brönderslev.
Víða annars staöar i landinu
hefur komizt upp um neyzlu og
sölu á eiturlyfjum foreldrum til
undrunar og skelfingar.
Á upptökuheimilinu Kjettrups-
gaard skammt frá Ingstrup hafa
menn blátt áfram gefizt upp
við að hindra drengina i að
komast yfir elturlyf.
En þeir geta keypt þau sem
fyrr var sagt í Ingstrup, og vin-
stúlkur þeirra, einnig á unglings
aldri, eru þeim hjálplegar með
að ná í eiturlyfin ...
Stðastliðið sumar voru sérlega
góð tækifæri til þess að birgja
sig upp í Lökken, en ferðamenn-
imir komu þangað með eitur-
lyfin.
Eiturlyfjasalarnir fylgdust
með ferðamannastraumnum og
fengu hin ágætustu sambönd til
þess að koma út eiturlyfjunum.
Staðarlögreglunni er vitanlega
um megn að fást við þennan
vanda ... Eitt af því, sem um
er rætt er fljúgandi lögregla ...
En yfirmaður borgarlögregl-
unnar í Odense, Kjeld Pedersen
segir:
Berjizt gegn misnotkun eitur-
Iyfjanna með fræðslu, fræðslu
og aftur fræðslu. Sóiö ekki lífs-
nauðsynlegum krafti með skipun
áérfræðinganefnda, sem þurfa
heilt ár til þess að komast að
niöurstöðum um aðferðir til að
beita við eiturlyfjaneytendur.
Við verðum að girða fyrir eit-
urlyfjahættuna, sagör hann, og
það þarf engan sérfræöing til
þess að segja manni, að þeir sem
neyta eiturlyfja (morfíns, opí-
ums, amphetamíns, preludium
o.s.frv.) eru ólækanlegir eða
90 af hverjum 100.
... Snúum okkur heldur að
ungmennum, sem ekki hafa byrj
að að neyta „hash“, en með því
Kjeld Pedersen ræðir við ungar stúlkur um eiturlyf og sýnir
þeim sýnishom af þeim.
Holger Horsten.
eru opnaöar dyr að eiturlyfja-
neyzlunni... Þótt við notuðum’
allan danska herinn gætum við
ekki stöðvað ólöglegan innflutn-
ing eiturlyfja í landið. En gæt-
um við komið þvi til leiðar aö
ungmenni og foreldrar skildu
hver hætta er á feröum, og að
þessi hætta er fyrir hendi í smá-
um bæjum sem stórum, verður
Danmörk ekki áfram góður
markaður fyrir eituriyfjasaia.
Frá því í marz hefur Kjeld
Pedersen haldið 99 fyrirlestra'
um þetta efni í skólum og fé-
lögum.
Hann hefur fjóra menn sér
til aðstoðar í upplýsingastarfinu
og árangurinn hefur þegar kom-
ið í Ijós, og má sem dæmi nefna,
að í vor hafði lögreglan í Oden-e
afskipti af 7 tilfellum, en ennn
eftir að Kjeld Pedersen flutti hp-
fyrirlestur, en hans var og ýta--
lega getið f blöðum og útvar-;
Starfsemin er í samráði rn
tengslum við heilbrigðismála-
stjómina.
En í sama blaði er fréttaskevti
frá Frederikshavn, bar sem se°-
ir, að 37 ungmenni á aldrinum
16—31 árs. hafi verið ákærö rf
rannsóknarlö.ereaiunni fyrir að
hafa kevpt, selt og reykt „hash“.
Aðalmaðurinn er 19 ára piltur.
sem fékk eiturlvfin send f pósti
frá Kaupmannahöfn.
Þá birtir Politiken sama dag
mikið viðtal við Holger Horstein
forstióra barna- og unglinga-
vemdarinnar um .10 ára skeið.
Fyrirsögnin er: Það er ekki
hægt að þagga niður eiturlyfia-
neyzluna. Undirfyrirsögn: Blöð-
in eiga að segja frá því, sem er
gerast.
Og dönsku blöðin eru sannar-
lega að gera sitt í þessari bar-
áttu og styðja af megni þá, sem
hafa tekið forustuna. Jafnvel
blöðin, sem daglega hafa flutt
heilar og hálfar síður af mjög
misjöfnu efni um kynlíf og slíkt,
hafa slegizt í hópinn, og von-
andi á það eftir að sannast, að
m. a. með tilstyrk biaöanna vinn
ist sigur í baráttu þeirri, sem
nú er hafin fyrir heilbrigði og
velfamaði dönsku þjóðarinnar.
A. Th.