Vísir - 14.12.1968, Page 5
VISIR . Laugardagur 14. desember 1968.
Tj’rum við ekki allar forvitnar
um þaö hvemig hinar hafa
•það fyrir jólin og um jólin?
Okkur datt í hug að gaman
vasri aö fá frásögn af jólahaldi
og jólaundirbúningi og þaö er
frú Sigriður Haraldsdóttir, hús-
mæðrakennari, sem ætlar að
segja okkur frá sínu á síöunni
í dag.
Sigríði munið þiö kannast
við, þær ykkar, sem hafa hringt
í Leiðbeiningastöð húsmæðra
undanfama mánuði. Sigríður
vinnur þar hálfan daginn og
verður fyrir svömm um hin
ýmsu vandamál húshaldsins. Að
auki vinnur hún við gagnfræða-
skóila Ansturbæjar og kennir
matreiðslu. Sigriður er ekkja
og tveggja bama móðir, á 14
ára telpu og 17 ára dreng.
Við spyrjum hana fyrsl;. —
Hvenær' hefst jólaundirbúning-
urinn hjá þér?
— Hann hefst þann 1. des-
ember, þá er bakað laufabrauö
og þá er það siður á mínu
heimili að bjóða einni konu, og
það er ný kona á hverju ári,
til að baka hjá mér. Núna voru
bakaðar einar 40—50 laufa-
brauöskökur.
— Hvaö er næst á dagskrá
jólaundirbúningsins?
... ...JnS
Ég geri enga sérstaka
j ólahr einger ningu44
— segir Sigríður Haraldsdóttir, sem segir frq
jólahaldi sirw á siðunni i dag
að enginn af heimilisfólkinu
fari í jólaköttinn.
— Það er aö skrifa öll jóla-
bréfin til útlanda og jólakortin,
ég nota helgamar til þess. Ætt
ingjamir eru svo margir erlend-
is þvi ég er alin upp í Dan-
mörku, en fluttist til íslands
árfö 1946.
— Hvemig hagaröu hinum
jólaverkunum?
— Ég baka sáralítið af öðru
en laufabrauöi. í mesta lagi
kleinur, vanilluhringi og brún-
ar kökur, en aftur á móti baka
ég afskaplega mikið af þeim,
því ég gef þær í jólagjöf handa
þehn sem ég þarf að muna eftir
hverju sinni. Ég geri enga sér-
staka jólahreingerningu heldur,
ég reyni aö vera búin að koma
hreingerningunni af á haustin
áður en ég byrja að kenna, en
auðvitað þvæ ég gluggatjöld og
athuga aö allt sé í röð og reglu
1 skúffum og skápum.
— Lendir þú í tímahraki fyrir
jólin?
— Ef byrjað er i tæka tíð á
nú helzt að fyrirbyggja það eins
og hægt er.
— Og hvaö hefurðu í mat-
irm á jólunum?
— Alltaf sama matinn. Á að-
fangadagskvöld er fastur siður
að hafa steiktar rjúpur með
rauðkáli, hrísgrjónaábæti með
möndlu og möndlugjöf handa
þeim, sem fær möndluna, ég
held þeim danska sið. Á jóla-
dag tek ég á móti systkinum
mannsins míns og bömum
þeirra og bamabömum og þar
með eru gestirnir orðnir 40. —
Þann sið hef ég haft frá því ég
gifti mig og hefur mér þótt það
mjög skemmtilegt. Ég hef allt-
af hangikjöt, laufabrauð, kartöfl
ur í jafningi og grænar baunir
og ís á eftir.
— Hvað viltu segja um jóla-
undirbúninginn aö öðru leyti?
— Þegar skólamir hætta hafa
börnin búið til jólasælgæti en
fara nú að verða vaxin upp úr
þvf, þau taka líka þátt í laufa-
brauðsskurðinum og ekki sízt,
þegar börn eru á yngri ámm
hafa þau mjög gaman af því
að hjálpa til við smákökubakst-
urinn og þótt árangurinn verði
misjafn finnst mér það skipta
minnstu máli. Um leið og jóla-
fríið hefst í skólunum byrja ég
á því að ganga frá smákökun-
um, og athuga jólaskrautið og
sjóða hangikjötiö. Jólagjafirnar
reyni ég aö kaupa í nóvember
og svo sé ég auðvitað um það,
Efnisyfirlit
„Vísis i
vikulokin"
' Við viljum benda þeim á, sem
safna saman „Vísi i vikulokin",
að efnisyfirlit yfir matarupp-
sjkriftir í honum birtist á
Kvennasíðu s.I. miðvikudag.
Þetta efnisyfirlit er til mikilla
þæginda þar sem „Vísir í viku-
lokin“ er orðinn stórt og mynd
arlegt blað og ekki auðvelt að
finna hvaðeina i honum nema
minnið sé því betra. Ef þið
hafið misst af miðvikudagsblað
inu getið þið fengið það á af-
greiðslu Vísis.
„Hrisfið ykkur saman"
Fimmta hefti útgáfunnar Sér-
réttir eftir Ib Wessman hefur
komið út og fæst í flestum mat-
vöruverzlunum á kr. 15. Þetta
nýja hefti fjallar um kvöldboð.
I'því er grein eftir Símon Sig-
urjóhsson yfirbarþjónn í Nausti,
sem heitir „Hristið ykkur sam-
an“, gefur hann þar uppskriftir
að ýmsum vínblöndum. Auk
þess eru í heftinu uppskriftir að
ýmsum smáréttum til þess að
hafa í veizlum. Þetta er upplögð
bók fyrir þær, sem ætla að
'ialda upp á gamlárskvöld með
smáveizlu.
Áður hafa komið út hjá þess-
iri útgáfu „Sérréttir yfirmal-
sveinsins og annar herramanns
matur", hefti nr. 2 hefur ekki
undirheiti, hefti sem hefur und-
irheitið „grænmeti", og númer 4
nefnist „smurt brauð og kökur“.«
LJOS&
ORKA
Ódýrt — Ódýrt
Höfum fengið fjólbreytt
urval af mjög ódýrum
gler loftlómpum
LJOS & ORKA
Suðurlandsbmut 12
sími 84488
LJOS&
ORKA
Kaupið íslenzkt
Við bjóðum yður mjóg glæsilega
keramik borðlampa frá Hauki Dór.
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
LJOS&
ORKA
Landsins mesta
lampaúrval
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488
■B^aaa^aa^v^t' -;r,
!3E3