Alþýðublaðið - 04.02.1966, Page 7
Ungir Kínverjar mótmæla.
KASTLJOS
insun hótað í
kínverska hernum
DEILUR herforingja og stjórn-
málaleiðtoga í Kína, sem ýmsar
vísbendingar hafa borizt um að
undanförnu eru nú komnar fram
í dagsljósið. í ræðu sem yfirmað
ur stjórnmáladeildar hersins,
Hsia Hua, hélt fyrir skemmstu
og birtist í Peking-blöðunum, er
Iiollusta nokkurs hluta liðsfor-
ingja stéttarinnar dregin í efa,
og hvatt er til hreinsunar þess-
ara afla.
í greininni er ennfremur upp-
lýst, að helzta ágreiningsefni
flokksins og herfortngjanna varð
ar hermálastefnu þá, sem fylgja
•skal til undirbúnings styr.iöld við
Bandaríkin. Þetta er ekki sagt
toerum orðum, en meining ræð-
unnar verður ekki misskilin.
Hvatning Hsia Huas um áfram-
haldandi deilur sýnir glöggt, að
flokksforystan óttast að sjónar
mið hennar séu ekki allsráðandi
og að hún vill skera upp herör
innan flokksins gegn hinni þrá-
kelknislegu andstöðu. Ef flokks
forystan væri örugg um að hún
hefði borið sigur af hólmi hefði
hún ekki birt grein, sem að sjálf
sögðu hlýtur að fletta ofan af
sundrungu í röðum kínverskra
ikommúnista, sem hún vill telja
heiminum trú um að myndi órofa
heild.
* YFIRBURÐIR FLOKKSINS.
Hsia Hua helgaði ræðu sína
hinu þekkta efni, yfirburðum
,,stjórnmálanna‘,‘ þ.e. flokksfor-
ystunnar, í öllum málurrt. En
það voru rök hans til stuðnings
þessari kenningu, sem sýndu
hvernig í öllu iá. Spurningin,
sagði hann, endurspeglar deilu
milli tveggja viðhorfa til þess,
ihvernig skipuleggja skivli her-
inn, og þetta nær síðan einnig
yfir „stéttabaráttuna innan flokks
ins og hersins." Markmið þessar
ar deilu væri að fá úr því skor
ið, hvort „byssan ætti að stjórna
flokknum eða hvort flokkurinn
ætti að stjórna byssunni."
Spurningin um skipulagningu
hersins snertir pólitískt grund-
vallarvandamál, og tilraun af
hálfu flokksins til að fá ófúsa
flokksforystu til þess að fallast
á sjónarmið sín gæti því ef til
vill einfaldað spurninguna þann-
ig, að hún snúist um það, hvor
aðilinn eigi að fara með raun-
veruleg, pólitísk völd.
Hsia Hua bendir á, að kínversk
ir kommvínistar sigruðu Japana
og þjóðernissinna þrátt fyrir það
að þeir væru búnir úreltum her-
gögnum miðað við fjandmanninn.
Þetta breytist ekki við aðstæður
þær, sem ríkja nú í dag. sagði
hann.- Og þetta er enn í fullu
gildi, þótt við eins „vondan fjand
mann og Bandaríkin" sé að eiga.
Fóikið ræður úrslitum í stvrjöld,
segir Hua.
Þetta sýnir, að deilan s.iýst um
það, hvort hægt sé að sigra Banda
ríkin samkvæmt 'hinni hefð-
, bundnu aðferð eða hvort nýtízku-
legri vopn séu nauðsynleg í þessu
skyni. Þar sem slík vopn er ein-
ungis hægt að fá í Sovétríkjun-
um hafa þeir, sem beitt hafa
sér fyrir breytingum í nýtízku
lcgra horf, verið fylgjandi því,
að sætzt verði að vissu marki
við valdamennina í Moskvu.
Hsia Hua leggur áherzlu á
horfur um langa framtíð, og það
sem vakir fyrir honum með
þessu er greinilega að sannfæra
herforingjana um að kröfur
þeirra um róttækar, skammtíma
lausnir með útvegun nýtízku
vopna sýni ranga afstöðu .Sigur
er óhugsandi ef farið er eftir
kenningunni um, að vopnin ráði
úrslitum í öllu“, segir hann.
Kínverjar munu alltaf halda
því fram, að maðurinn sé sá
þáttur, sem úrslitum ráði. „Þetta
er hin siðferðilega kjarnorku-
sprengja sem við einir ráðum yf
ir; við höfum ávallt yfirburði í
þessu tilliti‘,‘ segir enn fremur
í greininni.
* HORFT UM ÖXL.
Strax í fyrrasumar birti mál-
gagn hersins, „Rauði fáninn“,
grein sem varpaði ljósi á dei-l-
una. Á það var minnt, að í fyrri
herferðum kommúnista voru það
„þeir, sem höfðu borgaraleg sjón
armið í hermálum", sem töldu
að kenningin um yfirburði hinna
frumstæðu vopna væri aðeins
réttlætanleig sem bráðabirgða-
lausn. Þeir hefðu einnig haldið því
fram, að „heimatilbúnu aðferðirn
ar“ kæmu að engum notum eftir
því sem nýtízku hergögn og
regluleg herþjálfun kæmu að
notkun við nútíma stríðsrekstur.
, Þess vegna,“ sögðu þessir menn,
„væru það einungis herforingj-
arnir og tæknifræðingarnir, sem
hlotið hefðu atvinnuþjálfun, sem
treysta mætti á.“
„Rauði fáninn” minnti á, að
„nokkrir menn, sem haldið hefðu
fast í borgaraleg sjónarmið að
því er hermál snertir, hefðu aft
ur komið fram í dagsljósið og
komið vandræðum af stað“ eftir
sigur kommúnista í Kína, og
var hér bersýnilega átt við Peng
Tehhuai hershöfðingi, ;sem vik-
ið var úr embætti landvarnaráð
herra 1959. Síðan hefur komið
fram, að hann liafi aðhyllzt „borg
araleg sjónarmið“ og var hann
sakaður um að hafa verið við-
ooooooooooooooo<
0
Eftirfarandi grem er eftir Q
Victor Zorza, hinn kunna sér <}
fræðing í málefnum kommún 0
istaríkja. Hann telur ýmis- v
legt benda til þess, að hreins ^
un standi fyrir dyrum í kín-
verska hernum. Hann telur
eina ástæðu til þess að Kín
verjar hafa ekki gripið til
hemaðaríhlutunar í Vietnam
og víðar vera þá, að leiðtogar
kínverska kommúnistaflokks-
ins óttist að völd herforingj v
anna mundu aukast við það. ^
ÞOOOOOOOOOOOOOOÓ
riðinn samsæri með Rússum gegn
stjórn Maos.
Málgagn hersins heldur því
einnig fram, að áherzla sú sem
lögð sé á þörfina á hæfum sér-
fræðingum þjóni þeim tilgangi að
„hræða fólk“. Þetta er vísbend-
ing um, að Peng Teh-huai liafi
vcrið þeirrar skoðunar að Kín-
verjum tækist ekki að standa
gegn Bandaríkjamönnum ef þeir
yrðu sér ekkf út um sérþjálfun
og vopn frá Sovétríkjunum.
Það eru þessar „sögulegu" um-
ræður, sem Hsia Hua endurvek-
ur. Iíann styður einnig þann,
skilning, sem lagður hefur verið1
í fyrri greinar i kínverskum blöð
um, að höfuðþunga árása flokks-
ins sé beint gegn liðsforingjum,
sem starfað hafa í hernum gegn
um þykkt og þunnt. „Her okkar
hefur verið sigursæll, en sigur
getur gert menn montna og sjálf-
umglaða", segir hann. Það er því
nauðsynlegt, að flokkurinn við-
haldi stjórn sinni yfir hernum,
að lierinn verði gegnínn við
flokkslínuna, svo að „bvssurnar
verði ætíð i höndum þeiria
manna, sem áreiðanlegastir eru.“
En hvernig á þetta að ske?
★ HREINSUN FYRIR DYRUM?
Kenningu Maos um skipulagn-
ingu bersins á að nota til þess
að „yfirbuga hina borgaralegu
kenningu og skoðun.þ Hana á
einnig að nota til hreinsunar og
til þess að „efla herinn, í póli-
tísku og hugkerfilegu tilliti og
að því er skipulag snertir. Til
þess að fá þessu framgengt er
nauðsynlegt að herforingjarnir
fylgi línu Maos“.
Svo gæti virzt sem hreinsunin
yrði framkvæmd í samræmi við
þær meginreglur sem Stalín til-
einkaði sér þegar hann útrýmdi
sovézku liðsforingjastéttinni.
„Við verðum að snúa baki við
venjulegum og vanabundnum
skoðunum og hækka þá hermenn
og liðsforingja í tign, sem eru
pólitískt áreiðanlegir, ungir dug-
legir og fullir af þrótti. Þessa
menn verður að skipa í lykilstöð
ur, og gömlu yfirmennirnir verða
Framhald á 10. síffu.
Ungar stúlkur í Kína fá tilsögn f vopnaburði.
frúBofunarlirliigar
Kljót afgreiðsla.
Sendum gegn pöstkrðf*
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastrætl 1>.
Augiýsið í Aiþýðubiaðimi
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. febrúar 1966 J