Alþýðublaðið - 04.02.1966, Blaðsíða 9
ímanna hafa aukizt gáfurlega undanfarin ár, en nú telja
5 hámarki sé náð. Með hreytilegu millibili hafa fiskur og
li leyti horfið af miðunum utn hríð. Er slíkt tímahil fram-
hvað verður þá?
sýnilegur tengiliður við forsögu
landsins. Gúanóið var lengi not-
að sem beinn styrkur til land-
búnaðarins, og margir voru þeirr-
ar skoðunar fyrr, að því meira
fiskimjöl sem framleitt væri, að
þá mundi gúanóframleiðsla fugl-
anna minnka að sama skapi vegna
rýrnandi fæðumöguleika. Þá var
verð á einu tonni af gúanó og
einu tonni af fiskimjöli mjög
svipað. En fuglarnir framleiddu
ekki nema eitt tonn af gúanói úr
átta tonnum af fiski, en fiski-
mjölsverksmiðjurnar framleiddu
hins vegar eitt tonn af fiskimjöli
úr hverjum sex tonnum af an-
sjósu.
Ekki komst verulegt skrið á
fiskiðnaðinn í Perú fyrr en 1952.
Þá hafði dregið mjög úr fiskveið-
um undan Kaliforníuströnd sök-
um ofveiði, og þar var á það bent,
að gúanófuglarnir við Perúströnd
ætu fimm eða sex sinnum meiri
fisk í Perú-straumnum heldur en
nokkru sinni sæist í Kaliforníu-
straumnum. Sérfræðingar SÞ
bentu síðar á, að ekki væri hægt
að meta fiskimið á sama hátt og
námur. Að vissu marki, að
minnsta kosti, eftir því sem meiri
fiskur er veiddur í næringarríkum
sjó, þá skapast pláss fyrir fleiri
fiska og eina breytingin, sem
búast má við er að meira gangi
til fiskanna af hinum gífurlega
stóra svifstofni.
Eftir 1952 voru heilu fiski-
mjölsverksmiðjurnar fluttar
stykki fyrir stykki frá Kaliforn-
íu til Perú. Þegar ríkisstjórnin
reyndi að hafa taumhald á vexti
þessarar nýju atvinnugreinar réð-
ust lögfræðingar fyrirtækjanna í
íiskiðnaðinum á stjórnina fyrir
að Jeggja liömlur á framkvæmda-
frelsi og kváðu það brot á stjóm-
arskrá iandsins. Svo komu Japan-
ir til sögunnar og buðu ódýrar
nælonnætur með löngum greiðslu
fresti, og einnig komu Norðmenn
við nótasöluna og lengdu enn
greiðslufresfinn, sem útgerðar-
f.vrirtækjum stóð til boða. Var
þetta að sjálfsögðu afskaplega
þægilegt fyrir Perúmenn, því þar
var nógur fiskur, en lítið fé fyrir
hendi til fjárfestingar. Aflinn
jókst nú gífurlega og var kom-
inn upp í 9 milljón smálestir
1964. Líklegt er að aflinn 1965
sé um 7 milljónir smálesta, en
nú er svo komið, að sjórinn und-
an ströndinni þarna er orðinn
mun verðmætari en meirihluti
landsins í Perú.
Perúmönnum er að sjálfsögðu
annt um að þarna stundi ekki
aðrir veiðar en þeir sjálfir og
þess vegna liafa þeir nú lýst yfir
200 mílna fiskveiðilandhelgi og á
það einnig að vera gert til þess
að vernda fiskistofna Þetta er
ekki beinlínis hagkvæmt fyrir
Chile', sem þó styður Perú í þessu
máli og þetta hindrar það, að
Equador-menn geti nokkuð veitt
sem heitið getur. Þegar allt kem-
ur' til alls þá eru þessi þrjú lönd
eiginlega önnum kafin að verja
hvert sína landhelgi fyrir ágangi
hinna. Það er til dæmis ekki tek-
ið h-art á landhelgisbrotum
bandarískra báta og skipa þarna,
að ekki sé talað um, ef skipin
eru frá fyrirtækjunum sem hafa
einhvern rekstur í einhverju af
þessum þremur löndum.
Það er ekki lengur svo, að
Bretar og Bandaríkjamenn séu
nær einu útlendingarnir, sem
eiga í þessum fiskiðjuverum þarna
á ströndinni, né er það svo, að
mestur hluti framleiðslunnar sé
seldur til Bandaríkjanna. Fyrir-
tæki í ýmsum Evrópulöndum eiga
þarna nú orðið hagsmuna að gæta
og evrópskir viðskiptavinir bjóða
upp verðið á fiskimjölinu. í
Chile, þar sem fiskiðnaður er ekki
nærri eins mikill og í Perú er
innan við einn fimmti hluti fyrir-
tækjanna í eigu útlendinga, en í
Perú er senniiega helmingurinn
í eigu útlendra aðila og fjárfest-
ing útlendinga þar fer vaxandi.
Meira að segja í Equádor eru
nær allar túnfiskveiðar í liöndum
Framhald á 10. síðu.
Ilinir stóru búgarðar í Perú eru oft á að líta eins og heil verksmiðjuhverfi.
i
Útsala - Útsala
STÓRKOSTLEG
VERÐLÆKKUNi
Prjónastofan Hlín hf.
Skólavörðustíg 18.
Til sMu
fasteignin Hlíðarvegur 19
í Kópavogi
Húsið er ein hæð, rúmlega 90 fermetrar og kjallari
undir Vz húsinu. Stór og vel ræktuð ióð. Bílskúr.
Eigni.i er laus til afnota fyrir kaupanda hinn. 20. þ.m.
Árni Guðjónsson
hæstaréttarlögmaður
Garðastræti 17 Reykjavík.
STÁLOFNAR
Ódýru stálofnarnir eru komnir.
Pantanir óskast sóttar strax.
Burstafell
Byggingavöruverzlun,
Réttarholtsvegi 3. — Sími 38840.
Rei&skóli Hesta-
mannctfélagsins FAKS
tekur til starfa mánudaginn 14. febrúar. Upplýsing-
ar á skrifstofu félagsins, sími 30178 kl. 1 til 3 og í
síma 23146 á kvöldin.
Harðviðargólf
frá A. M. Macdougall & Son, Ltd.,
Glasgow, Skotlandi, bæði
PARKET-STAFIR, 22 mm þykkt og
PARKET-FLÍSAR, 9 mm þykkt.
Þér getið valið milli nálega 200 viðar-
tegunda.
Verð og sýnishorn hjá umboðsmönnum:
Magni Guðmundsson sf.
Austurstræti 17. — Sími 1-16-76.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. febrúar 1966