Alþýðublaðið - 04.02.1966, Blaðsíða 10
SÍMRITARI
Loftleiðir hf. óska a‘ð ráða til sín á næstunni síniritara
til að annast móttöku og- útsendingu telexskeyta félags-
ins í Reykjavík, og hafa umsjá með firðritunartækjum
félagsins.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins, Lækjar-
götu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá umboðsmönn-
um féiagsins út um land, og skulu umsóknir hafa bor-
izt ráðningardeild félagsins fyrir 20. febrúar 1966.
LAGERMENN
Loftleiðir hf. óska eftir að ráða til sín 4 lagermenn á
næstunni til starfa við varahlutalager félagsins á Kefla-
víkurflugvelli. Unnið verður á vöktum.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins, Lækjar-
götu 2 og Reykjavíkurflugvelli og á skrifstofu Loft-
leiða Keflavikurflugvelii. Umsóknir skulu hafa borizt
ráðningardeild félagsins fyrir 20. febrúar 1966.
10 4- febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Hreinsun hótað t
Framhald af 7. síðu.
að bjóða þá velkomna og dýrka
þá sem eftirmenn sína.“
En gera þeir það? Eða láta
þeir til skarar skríða til að halda
embættum sínum og bjarga Kína
frá stefnu Maos? Andstaðan í
hernum er vafalaust sprottinn af
föðurlandsást, nákvæmlega á sama
hátt og andstaða hermannanna
gegn Stalín. Segja má, að Kína
hafi um margra ára skeið gert
„tilslakanir1' ganvart Bandaríkja
unum, því að Kínverjar hafa ekki
gripið til hernaðaríhlutunar í
Vietnam og annars staðar Ástæð
an til þessa er meðal annar sú,
að bein íhlutun í hernaðarátök-
um gæti veitt herforingjunum
völd þau, sem flokkurinn vill ekki
afsála sér.
Victor Zorza.
OPNAN
Framhald úr opnu.
útlendinga og þótt helmingur
rækjuiðnaðarins eigi að heita
þjóðnýttur, er það varla nema að
nafninu til.
Þetta skiptir ef til vill ekki
meginmáli núna, en ef fiskiðn-
aðurinn verður fyrir einu eða
tveimur þungum áföllum, má bú-
ast við að miklar breytingar
verði á eignarhlutföllunum. Talið
er að um þríðjungur fiskimjöls-
verksmiðjanna í Perú og nær
allar verksmiðjurnar í Chile
eigi nú við verulega fjárhagslega
örðugleika að etja.
Það er þó ansjósunni að þakka,
að sl. 10 ár hafa þessi lönd feng-
ið erlendan gjaldeyri í þeim mæli,
sem ekki einu sinni bjartsýnustu
menn þorðu að láta sig dreyma
um fyrir 10 árum. Komið er fyrir
þeim eins og smáríkjum, sem allt
í einu fljóta upp í olíupolli, en
um framtíðina er ekki gerlegt að
spá, nú sem stendur að minnsta
kosti.
(Þýtt og endursagt
úr Economist).
Hannes á herninu
Framhald af 4. síðu.
passa ekki við íslenzkt veðurfar
og svíkja alla. Smáíbúðirnar voru
úr steini og það jn-u verkamanna
bústaðirnir líka. Þó var þetta og
er rakkað niður, af því að gróða
menn og braskarar fá ekki að
græða á kostnað fólksins.
Og
Kuldaskór
á alla fjölskylduna.
Sendi í póstkröfu.
Skóverzlun og skóvinnu
stofa Sigurbjörns
Þorgeirssonar
Miðbæ við Háaleitisbraut 58-60
Sími 33980.
SMURSTÖÐ 8 N
Sætúni 4 — Sími 16-2-27
Bfllinn er smurður fljótt og vel.
SeUum allar teguadir af smurnlíu
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnirí kvöld kl. 9
Hljómsveit Jóhannesar Eggertssonar
Söngvari: Grétar Guðmundsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 12826.
Aðalfundur
AlþýóufEokksfélags Kópavogs
verður haldinn í Alþýðuhúsinu Auðbrekku
50, sunnudaginn 6. febrúar kl. 4.30 s.d.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Emil Jónsson utanríkisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið.
3. Önnur mál.
Kópavogur
Útburðarbam vantar í Kópavog.
Upplýsingar í síma 40753.
Alþýðublaðið.
Röskur piltur
óskasf til innheimtusfarfa.
Þarf að vera kunnugur í hænum.
Alþýðuhlaðið.
Alþýðublaðið
Blaðburðarböm vantar í eftirtalin hverfi:
Kleppsholt Lindargötu
Laugaveg efri Hverfisgötu í og II
Laufásveg Bergþórugata.
Lönguhlíð
Alþýðublaðið sími 14900.