Alþýðublaðið - 04.02.1966, Side 11
Valbjörn sigraði í
25m. spretthlaupi
Fjórða greinin í sexþrautar-
keppni KR var með nýstárlegum
hætti. Keppt var í 25 m. hlaupi,
Sveinamót
í frjálsíþróttum
á sunnudag
Innanhússmeistaramót íslands
fyrir sveina (14—16 ára) fer fram
í íþróttahúsinu á Selfossi, sunnu
daginn 6. febrúar kl. 2 e.h.
Keppt verður í hástökki, með og
án atrennu, langstökki og þrí-
stökki án atrennu.
Héraðssambandið Skarphéðinn
sér um mótið og skulu þátttöku-
tilkynningar sendar til Hafsteins
Horvaldssonar, Selfossi.
Birgir Ö. Birgis —
beztur Ármenning-a.
/
gerðar þrjár tilraunir og tekið
meðaltaí.
Sigurvegari varð að þessu sinni
Valbjörn Þorláksson, en meðalár-
angur hans verður að skoðast sem
met í greininni, þar eð ekki hefur
verið keþpt í henni áður, svo vitað
sé! Valbjörn hefur nú sigrað í
þremur greinum af fjórum, sem
keppt hefur verið í og hlotið lang
fæst stig. Verður ekki annað séð,
en hann sé öruggur með sigur í
þessari fyrstu innanhússþraut, er
keppt hefur verið í hérlendis, sam
settri af frjálsíþróttagreinum. Val-
björn er núverandi Norðurlanda-
meistari í tugþraut, svo sem kunn
ugt er.
Keppnin var háð í KR-húsinu
miðvikudaginn 2. febrúar.
Úrslit í 25 m. hlaupi
1 Valbjörn Þorláksson 3,77 sek.
2 Ólafur Guðmundsson 3,78 sek.
3 Gestur Þorsteinsson 3,83 sek.
4 Einar Frímannsson 3,87 sek.
5-6 Björn Sigurðsson 3,92 sek.
5-6 Trausti Sveinbjörnss. 3,92 sek.
7 Þórarinn Ragnarsson 4,13 sek.
8 Nils Zimsen 4,15 sek.
9 Magnús Jakobsson 4,34 sek.
Stigakeppnin, að loknum fjór-
um greinúm, stendur sem hér seg-
ir:
1 Valbjörn Þorláksson 5 stig
2 Ólafur Guðmundsson 20 stig
3 Gestur Þorsteinsson 23 stig
4 Björn Sigurðsson 23,5 stig
5 Þórarinn Ragnarsson 24 stig
6 Nils Zimsen 26 stig
Islandsmótið í körfu-
bolta hefst annaðkvöld
Keppendur eru rúmlega
300 frá 10 félögum
íslandsmó.tið í körfuknattleik
liefst að Hálogalandi laugardag-
inn 5. febrúar kl. 8,15. í mótinu
taka þátt 31 lið frá 10 félögum.
Leikið er sem fyrr í fyrstu og
annarri deild í meistaraflokki
karla. í fyrstu deild leika Ármann,
ÍKF, ÍR, KFR, og KR, en í ann-
arri deild eru IS, Skallagrímur frá
Borgarnesi, Héraðssamb. Skarphéð
inn og Snæfell frá Stykkishólmi.
í meistarflokki kvenna leika tvö lið
ÍR og KR og tvö lið í 2. fl. kvenna,
KR og Snæfell. i fyrsta flokki
eru Ármann, ÍR, ÍS og KR, í 2.
flokki Ármann, ÍR, KFR, KR,
Skallagrímur, Skarphéðinn og ÍBA,
sem sendir nú í fyrsta sinn 2. fl.
til keppni í íslandsmóti. í þriðja
og fjórða flokki eru lið frá Ár-
manni, ÍR og KR.
Mótið fer fram á vegum KKÍ,
en sú nýbreytni hefur verið tekin
upp, að ráðinn hefur verið fram-
kvæmdastjóri mótsins, Guðmund-
ur Þorsteinsson.
Eins og fyrr segir, hefst mótið
næsta laugardag kl. 8,15 með leikj
i um Ármanns og ÍKF í fyrstu deild
I og ÍS og Skarphéðins í annarri
' deild.
Tékknesku meisíar arnir, Dukla Pragr.
Eitt frægasta lið Evrópu
leikur v/ð FH í kvöld
Télcknesku meistararnir í
handknattleik, Dukla Prag,
komu til íslands í jyrrinótt.
Alls komu hingað 11 leikmenn
og af þeim léku átta landsleik
við Vestur-Þýzkaland um síð-
ustu helgi í Essen. Eins og
kunnugt er sigraði Tékkósló-
vakía i þeim leik með tölverð-
um yfirburðum eða 26 mörk-
um gegn 20. V-Þjóðverjar eru
þó engir aukvisar í handknatt-
menn sig í íþróttahöllinni og
leizt vel á sig.
Ekki er að cfa, að hart verð-
ur barist í íþróttahöllinni í
kvöld og þó flestir reikni með
sigri Dukla, er enginn leikur
unninn, fyrr en honum er lok-
leik.
í igær ræddi fréttamaður
Íþróttasíðunnar við hinn þekkta
leikmann Rada í kaffiboði hjá
FH. Rada sagði, að liðsmenn-
irnir væru ferðalúnir, en vonuð-
ust þó til að geta sýnt góðan
leik. Þeir sögðust vera vissir
um, að FH væri gott lið og
bjuggust við skemmtilegri við-
ureign i kvöld.
Dómari verður Bent E. West <
ergaard frá Danmörku, en |
markadómarar eru Magniis Pét-
ursson og Valur Benediktsson. <
Síðdegis í gær æfðu Dukla-
• iii 1
Wm H JÖ&i
íslandsmeistararnir, Fimieikafélag Hafnarfjarðar.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. febrúar 1966