Alþýðublaðið - 11.02.1966, Blaðsíða 9
Loftleiðir sjá um alla farþega-
þjónustu á Keflavíkurflugvelli
í MAÍ 1962 gerSu Loftleiðir hf.
og utanríkisráðuneytið samning
]iess efnis að Loftleiðir tækju að
sér að annast alla afgreiðslu flug
véla sem lenda á Keflavíkurflug-
velli, og var í þvi skyni stofnað
sérstakt afgreiðslufélag, Loftleið
Ir Keflavík hf. Stjórnendur þess
Ifyiúí'tækis enu, þeir sömu og
Loftleiða hf., en framkvæmda-
stjóri er Grétar Br. Kristjánsson
lögfræðingur. Loftleiðir Keflavík
Iif. hefur gert miklar og margvísleg
ar breytingar á húsakynnum og
skipulagi öllu, og var fréttamönn
um sýndur árangur þeirra breyt
inga í gærdag, en þá var þeim
boðið að skoða húsakynni og fylgj
ast með afgreiðslu.
Blaðafulltrúar Loftleiða þau
Sigurður Magnússon og Helga Ing
ólfsdóttir sögðu fréttamönnum að
fyrsta júní 1962 hefðu Loftleiðir
Keflavík tekið við rekstri flugum
sjónardeildar, farþegaafgreiðslu,
og flugvirkjadeildar. Hefði fyrir
tækið fengið leigt húsnæði hjá
ríkinu til þess að geta annazt
þessa þjónustu. í maí 1964 tóku
svo Loftleiðir Keflavík hf. á leigu
hótelið á Keflavíkurflugvelli, sem
varnarliðið hafði áður séð um.
Gerði fyrirtækið miklar breyting
ar á húsakynnum, sem var mjög
ábótavant, og annast nú rekstur
veitingasala og kaffiteríu. Eru
veitingasalirnir opnir allan sólar
liringinn og geta bæði flugfarþeg
ar og aðrir gestir fengið þar hress
ingu hvenær sem er.
Yfirmatsveinn hjá Loftleiðum
Keflavík hf. er Svanuai Ágústsson
og hefur hann ærið nóg að stavfa
sem marka má á því að eitt sinn
voru á einum sólarhring framreidd
ar 1275 máltíðar fyxir gesti : veit
ingasal, og 1646 máltíðar fyrir far
þega í flugvélum. Meðalfram-
leiðsla mun aftur á móti vera um
14 hundruð máltíðar á sólarhring.
í byrjun háði það nokkuð starf
semj félagsins að það hafði ekki
aðgang að neinu flugskýli, en á
því var ráðin bót í nóvember síð-
astliðnum með samningi milli rík-
isstjórnarinnar og var<narliðsins,
en þá tóku Loftleiðir á leigu hluta
af einu stærsta flugskýli varnar-
liðsins. Er því hægt nú, að fram
kvæma ýmsar viðgerðir og skoðan
ir hér, sem áður voru unnar erlend
is, og hinir 30 flugvirkjar Loft
leiða eru komnir inn úr kuldanum.
Loftleiðir Keflavík hf. buðu frétta
mönnum til hádegisverðar og voru
þar framreiddir ýmsir þeiri rétt
ir er farþegum er boðið uppá.
Voru gæði matarins slík að óhætt
er að fullyrða að þeim sem ferð
ast oft með Loftleiðum er óhætt
að reyna að passa línurnar. Glað-
værðin sem ríkti yfir hádegisverð-
inum tók á sig alvarlegan blæ
þegar Sigurðun Magnússon reis
úr sæti og minntist fiugmannanna
tveggja. Sverris Jónssonar og Hösk
uldar Þorsteinssonar, sem fórust
við sjúkraflug í síðasta mánuði.
Risu gestir úri sætum : virðing
arskyni, en fánar blöktu í hálfa
stöng í Keflavík vegna minningar
athafnarinnar sem fór fram í gær.
Síðan Loftleiðir Keflavík hf. tóku
við afgreiðslu farþegaflugvéla hef
uri umferð um Keflavíkurflugvöll
aukizt mjög, sem hefur haft það
: för með sér að félagið hefur
orðið að fjölga til muna starfs
liði sínu. Vinna þar nú um 186
manns. Pétur Guðmundsson, flug
vallarstjóri Keflavíkurflugvallar
sagði í stuttri ræðu að breyting
ar hefðu mjög orðið til batnaðar
á matsölum, hóteli og öðru síðan
Loftleiðir tóku við rekstri þess.
Líkti hann samningagerðunum við
trúlofun, og sagði að unga parið
hefði dyggilega unnið að því að
gera ailt sem heimilislegast og vist
legast. Ýmsar fleiird brjlytingar
væru væntanlegar, en byrjunin
væri tvímælalaust mjög góð.
Halldór Þorsteinsson, yfirflugvirki við Rolls Royce hreyfil.
: ' ■
Kaupféiagsstjórasfctrfið
við Kaupfélag Norður-Þingeyinga. Kópaskeri er laust
til umsóknar og veitist frá 1. maí n.k.
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um mennt
un og fyrri störf sendist starfsmannastjóra S.Í.S.,
Gunnari Grímssyni, Sambandshúsinu, fyrir 28. febrúar.
Stjórn Kaupfélags Norður-Þingeyinga.
Verzlunar og í
skrifstofufólk !
!
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
áríðandi félagsfund í Sigtúni, mánudaginn
14. febrúar n.k. kl. 20.30.
Fundarefni:
Skýrt frá viðræðu'm um kjaramál. t
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Úfsdla - Útsala
Dreng j af lónelsky rtur
Drengjabuxur, Telpnakjólar
Telpnakápur og úlpur
Nú er tækifærið til að gera góð kaup.
Aðálstræti 9
Sími 18860.
Tilkynnmg
frá bifreiðaeftÉrlifi ríkisins
Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur gefið út leið- ;
beiningar um bifreiðalýsingu og stillingu
aðalljóskera sbr. reglugerð nr. 51, 15. maí
1964, um gerð og búnað ökutækja o. fl.
Bifreiðainnflytjendur og bifreiðaverkstæði,
sem annast stillingu ljóskera, geta fengið j
leiðbeiningar þessar hjá bifreiðaeftirlitinu. j
Frá og með 1. apríl 1966 mun ökutæki eigi
fá fullnaðarskoðun nema Ijós hafi verið
stillt samkvæmt framangreindum reglum.
Mu'n bifreiðaeftirlitið taka gild vottorð um
Ijósastillingu frá aðilum, sem nota stilling-
arspjöld og stillingartæki, sem viðurkennd
eru af því.
Reykjavík, 10. febrúar 1966,
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Auglýsingasíminn er 14906
RR-400 búin undir flugtak.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. íebrúar 1966 9