Alþýðublaðið - 10.03.1966, Síða 3
Samningar tókust
við verzlunarmenn
SAMNINGAR tókust í gærmorg-
un milli samninganefnda verzlun-
arfólks og atvinnurekenda og
voru samningarnir undirritaðir kl.
9 um morguninn, eftir næturlanga
fundi deiluaðila. Samningarnir
voru undirritaðir með þeim fyrir-
vara að viðkomandi félög sam-
þykktu þá.
Meginatriði samkomulagsins er
5% kauphækkun verzlunarfólks,
að verzluuarmenn yrðu aðilar að
atvinnuleysistryggingasjóði, veru-
leg tilfærsla í launaflokkum, til
hins betra fyrir verzlunarfólk, auk
in veikindatrygging og ýmis önn-
ur atriði til hagræðis fyrir verzl-
unarfólk.
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur heldur fund í kvöld um
samningana og verða greidd at-
kvæði um hvort gengið verður að
þeim eða ekki. Verður fundurinn
haldinn í Lidó og hefst kl. 20,30.
Fundur verður einnig í kvöld hjá
verzlunarfólki í Keflavík, og eins
fljótt og tök eru á víðar úti um
land.
Þá munu fljótlega verða haldn-
ir fundir um samningana í sam-
tökum atvinnurekenda.
Aðilar að þessum samningum
eru Landssamband verzlunar-
manna, Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur, og hins vegar Vinnu-
veitendasamband íslands, Kaup-
mannasamtökin, Félag stórkaup-
manna, Félag iðnrekenda, Vinnu-
málasamband SÍS, Verzlunarráð
! og Kron.
Við samningsundirskrift skil-
Framhald á 14. síðn
KRISTÍNAR-SÝNING í STOKKHÓLMI
KRISTÍN Svíadrottning og
menningarlíf ®vrópu á hennar
dögum verður sýningarefnið
lá 111. Evrópusýningunni. sem
Iialdin verður í Stokkhólmi á
vegum Evrópuráðsins 1. júlí
til 16. október n.k. Kristín var
dóttir Gústavs Adólfs og varð
drottning 6 lára gömul Hún af
salaði sér völdum 1656, tók ka
þólska trú og settist að í Róma
toorg, þar sem hún bjó í þrjá
áratugi. Hún var í fory.stusveit
evrópskrar menningar um sína
daga og hefur verið nefnd
fyrsta nútímakonan.
Sýningin verður í 35 sölum
og herbergjum í sænska lista-
safninu. og er hún einhver um
fangsmesti listviðburður, sem
skipulagður hefur verið í Sví-
þjóð. Listaverk hafa verið
fengin að láni í ýmsum lönd-
um, m.a. hefur Páll páfi per
sónulega veitt undanþágu
frá reglum Vatíkansafnsins og
leyft að senda megi mjög dýr
mæt handrit þaðan á sýning
una. Þar verða 250 málverk og
ótal aðrir listmunir, sem með
einhverjum hætti eru tegndir
minningunum um Kristínu.
Listaverkin eru m.a. eftir
Rafael, Rubens, Titian, Tintor
etto, Veronese, Bernini og
Bourdon. Á sýningunni verð-
ur einnig frægt handrit Silf
urbiiblían, sem geymd er í há
skólahókasafninu í Uppsölum.
íÞá verður á sýningunni eftir-
líking Barberini leikhússins í
Róm, en þar fögnuðu borgar
búar Kristínu í janúar 1655
með sýningu á leikriti eftir
Klemenz páfa IX. í hallarleik
húsinu á Drottningarhólmi
rétt við Stokkhólm verða sýn
ingar á óperunni „L-honestá
negli armori", sem Scarlatti
samdi árið 1680 að beiðni
Kristínar. Ýmsir aðrir viðburð
ir í Stokkhólmi á sumri kom
anda verða tengdir Kristínar-
sýningunni.
Kristín Svíadrottning er
flestum kunn, m.a. af kvik-
myndum og ævisögu hennar,
sem gefin hefur verið út á ís
lenzku og lesin í útvarp.
Framhqld á 14. síðu
Sjálfvirkur sími í
Voga - Brúarland
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. marz 1966 J
Reykjavík. — EG.
INGÓLFUR Jónsson, samgöngu-
málaráðherra (S) skýrði frá því
í samein. þingi i gær, að sjálf-
virkar símstöðvar mundu vænt-
anlegar settar upp í Vogum á Vatns
leysuströnd og að Brúarlandi sið-
wwwwwwwwtww
Breyting á lax-
Reykjavík. — EG.
Stjórnarfrumvarp til breyt-
inga á lögum um lax og
silungsveiði frá 1957 var
lagt fram á Alþingi í gær.
Er frumvarpið samið af
veiðimálanefnd, sem árið
1963 var falið að endur-
skoða lögin, einkum að því
er varðaði ósveiði við sjó og
þau sjónarmið, sem upp
koma við tilkomu og rekst-
ur laxeldisstöðva.
Ein af breytingunum, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir
er, að friðunarsvæði við ár-
ósa verði stækkuð verulega.
Er lagt til, að friðunarsvæði
við stærri ár verði 2000
metra en 1000 metrar
við minni ár. Mörkin milli
stórra og lítilla straumvatna
eru sett við 100 tenings-
metra meðalrennsli á sek-
úndu, og er til viðmiðunar
nefnt, að Sogið hafi 110
teningsmetra rennsli á sek-
úndu.
Nánar verður skýrt frá
efni frumvarpsins, er það
kemur til 1. umræðu.
iwwwMimwwwwwi
ar á þessu ári, og mundi væntan-
lega hafizt handa um byggingu
húsa fyrir stöðvarnar í vor.
Skýrði ráðherra frá þessu í ;
svari við fyrirspurn frá Matthíasi
Á. Mathiesen (S) um sjálfvirkt
símakerfi í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu.
Ráðherra sagði, að sjálfvirku
símstöðvarnar í Keflavík, Gerðum
og Sandgerði liefðu nýlega verið
stækkaðar, og stöðin í Grindavík
mundi væntanlega verða stækkuð
á þessu ári.
Um sjálfvirka síma í sveitirnar
sagði ráðherra, að ekki væri hægt
að svara nákvæmlega hvenær það
yrði, né í hvaða röð verkefnin
yrðu framkvæmd. Þéttbýlli staðir
og kauptún mundu þó sennilega
látin ganga fyrir vegna þess að
þessar framkvæmdir yrðu mjög
dýrar í sveitum þar sem margir
notendur hafa verið um sömu
línu.
Samgöngumálaráðherra gat þess
að lokum. að ný tæki væru nú
komin á markað erlendis, sem
gerðu kleyft að fimm notendur
gætu verið á sömu línu og væri
ætlunin að prófa þannig símkerfi
hér mjög fljótlega.
U Thant telur nauðsynlegt að
sprengjuárásum verði hætt
New York og Saigron 9.3.
(Ntb-Reuter).
U THANT aðalritari Samein-
uðu þjóðanna hvatti Bandaríkja
menn í dagr til að hætta
Spilakvöld í Hafnarfiröi
í KVÖLD kl. 8,30 liefst lokakeppnin í þriggja kvöldi spila
keppni Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði. Keppt er um
glæsilega vinninga, sem eru kommóða úr tekki og innskots
borð, mjög vandaðir og eigulegir munir. Þar sem geysileg
aðsókn hefur verið að spilakvöldum Alþýðuflokksfélaganna
er ráðlegast fyrir fólk að mæta stundvíslega og tryggja sér
borð.
sprengjuárásum á Norður-Viet-
nam, en hann hélt því fram að
nauðsynlegt væri að hætta Ioft
árásunum svo fciægt væri að
koma af stað samningaumleitun
um um frið.
Það var talsmaður aðalritar-
ans sem lét þessa skoðun í ljós
á blaðamannafundi í dag og
sagði Thant jafnframt mjög á-
hyggjufullan vegna þess að stríð
ið í Vetnam hefur færzt í auk-
ana. U Thant er þeirrar skoðun
ar að flokkur Vietcong eigi að
fá aðild að samnmgaumleitunum,
og þriðja skilyrðið til þess að
friðarumleitanir gætu hafizt taldi
U Thant verða að þeir aðilar
drægju mjög verulega úr stríðs
aðgerðum sínum. Bandaríkja-
stjórn hefur áður lýst þvi yfir
að hún telji að Vietcong eigi
ekki að vera aðilar að friðar
samningum, en hins vegar sé
rétt, að Vietcong eigi auðvelt
að koma skoðunum sínum á
framfæri við þá sem kunna að
koma til með að semja um frið.
í fjöllunum í norðvestur Viet
nam var enn barizt hart -í (lag,
en þar hafa Bandarískir íher-
flokkar varizt áhlaupum Viet-
cong í rúman sólarhring. Þama
eru 200 Bandaríkjamenn, en
tvær Vietcong herdeildir 1 íafa
nú uiWkringt aðseturs »tað
þeirra. Um tíma var óttast} að
baskistöð Bandaríkjamanna
hefði fallið í hendur Vietcpng,
Framh. á 14. síðu