Alþýðublaðið - 16.03.1966, Síða 5
SKIP
SPÁNI
'fc Skuttogara og önnur togskip
■& Allskonar fiskiskip og báta
-jíf Frysti- og kæliskip
Flutningaskip
Olíuskip
-y* %< Í
■
-*
"
Spánskur ekuttogari með frystiíitbúnaði
I ! IJ
Magnús
Víglundsson hf.
Bræðraborgarstíg 7 — Reykjavík
Símar: 22160 og 13057
Veitum greiðlega allar
nónari upplýsingar
MINNINGARORÐ:
Ásgeir Jónsson
rennismiður
Látinn er Ásgeir Jónsson renni-
smiður f. 29./11. 1879 d. 10./3,
1966.
Aldraður maður hefir lokið ævi
starfi sínu og verður til moldar
borinn i dag.
Ásgeir fluttist til ísafjarðar á-
samt konu sinni Guðrúnu Stef
ánsdóttur árið 1911 og bjuggu þau
þar tll ársins 1936. Þau eignuðust
þrjú efnileg börn sem öll eru á
lífi.
Ég kynntist þeirri fjölskyldu
fljótlega eftir að þau komu til ísa-
fjarðar, og þó sérstaklega Ásgeiri,
hann var fróður maður um allar
vélar, sem þá voru mest notaðar,
hann hóf starf sitt á mótorverk-
stæði J. H. Jessen, en síðar með-
eigandi í Vélsmiðjunni Þór með-
an hann dvaldist þar.
Ásgeir var mjög hagur maður
á flesta málma og tré og renni-
smiður með ágætum, enda smíð-
aði hann ýms verkfæri sem liann
þurfti með. og svo marga muni,
en allt þetta ber vitni um hagleik
hans og smekk.
Ásgeir unni allri hljómlist og lék
á ýmis hljóðfæri, t.d. orgel, fiðlu
og lúðra, og þess má geta að hann
smíðaði nokkrar fiðlur sem þykja
afbragð, hann var einn af stofn-
endum Lúðrasveitar ísafjarðar, en
sá hljóðfæraleikur hafði að mestu
legið niðri frá því er Jón Laxdal,
tónskáld fór frá ísafirði. Ásgeir
var mjög áhuga-amur um þann fé
lagsskap, var oft erfitt með æfing
ar á þeim árum og engan mátti
vanta, og það kom fyrir að Asgeir
slepþti vinnu um stúnd, svo æf-
ing ekki 'félli niður.
Bezt kynntist ég ll/í heimili,
þegar við byggðum gafl í gafl við
Hafnárstræti á ísafirði, enda naut
hann aðstoðar konu sinnar, en þar
ráku þau matsölu og kölluðu
„Úppsali’Y dóttir þeirra Steinunn,
var þeim jafnan mjög handgeng-
in og mikil stoð. Á það heimili
var gott að koma þar var reglu-
semi, rhikil glaðværð og rausn
enda var daglegur samgangur,.
meðan þau voru fyrir vestan.
Árið 1936 flytja þau svo til
Reykjavikur, þar vinnur hann um.
tíma hjá Álafossi, H.ialteyri og
Landssmiðjunni, þar til vanhcilsa
fer að ásækja hann, og síðan við
smíðar á heimili sínu eftir því sem
heilsa hans leyfir. Síðan höfum
við haldið vinfengi og nánu sam-
bandi við þau hjón, þar til nú að
lokið er ævistarfi þeirra.
Það er mikil stoð að hafa verið
samferða slíku fólki, og maður
hlýtur að staldra við og vekja
minningar frá liðnum tímum, sem
ekki er hægt að lý^a með orðum.
en aðeins að hugsa um farinn veg.
Að endingu færi ég svo börnum
þeirra og öllum aðstandendum
hlýjar samúðarkveðjur.
Helgi Guðbjartsson.
50 íslenzkir skemmtikraftar
í Austurbæjarbíói fimmtudaginn 17. marz. M. 11,15.
Aðgöngumiðar á 100 krónur seldir í Aust.urbæjarbíói
frá kl. 4 í dag.
Skrifstofa skemmtikrafta — Pétur Pétursson.
ÚTBOÐ
Óskað er tilboð í framkvæmdir við lagn r
ingu vatnsveitu í Hnífsdal. Útboðsgagna
má vitja í skrifstofu rvorat Borgartúni 7, ; »
Reykjavík gegn kr. 2000 þúsund skila- (
tryggingu. •• '
Innkaupastofnvm ríkisins.
.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 16. marz 1966 §