Alþýðublaðið - 16.03.1966, Page 6
Fæðuskorturinn aldrei meiri á tuttugustu öldinni en árið 1966
íugir milljóna hafa enga von um að verða mettaðir
Á ÞESSARI stundu bíða milljón
ir barna og fuilorðinna hungur-
dauðans í Kína, Indlandi og Af
ríku.
Á hverjum morgni er lík fjar
lægt í indverskum bæjum Fólk
hrynur niður úr sulti. Engtnn gat
iijálpað því. Börnin deyja á
sjúkrahúsum eða á heimiJunum,
þar sem foreldrarnir hafa skorið
sinn eigin matarskammt niður í
næstum þvi ekkert, en án þess
að geta bjargað dætrum sínum
og sonum. Fylgikvillarnir breið-
ast út. Árið 1966 verður mesta
hungurárið á hinni tækniþróuðu
tuttugustu öld.
I velmegandi löndum, sem eiga
birgðir kjöts og kornvöru, gera
yfirvöldin sér það Ijóst, hvílík
ógnarbætta vofir yfir tugum
milljóna ógæfusamra meðbræðra.
En það er næstum því útilokað
að finna lausn, sem gerir það
kleift að seðja alla hung;-aða.
ÞRJÁR ÁSTÆÐUR.
Þrj'ár aðalástæður eru fyrir
hungurvandamálinu;
1 1. Landhúnaðurinn er enn á
alltof lágu stigi í vissum stórum
þróunarlöndum, sem áreiðanlega
gætu satt alla íbúana.
' 2. Veðrið hefur verið sérstak-
l?ga óhagstætt í Kína, Indlandi
og á nokkrum stöðum í Afríku
í fyrra og í ár.
3. Á þeim svæðum, sem hvað
verst hafa orðið úti, hefur ekki
tekizt að koma á takmörkun
barn^na, <em gæti stuðlað
að því að íbúatalan og matvæla
framleiðslan héldust í jafnvægi.
Hér er frásögn af ástandinu
í liinum hrjáðu Jöndum;
_ SOVJET
rv
MONGOUET> ^
N.O.KIHA l|i
í KÍNA ríkja þurrkar í norð
vestur héruðunum. og eiga
iandsmenn í vök að verjast fyr
ir afleiðingum þeirra. Kína hef
ur þegar keypt sex milljónir
tonna af hveiti frá Kanada fyr
ir 112 milljónir sterlingspunda.
Með því hefur tekizt að tryggja
nokkra fæðu fram í júní, en
þörf er fyrir tvær miIljóJnir
tonna í vi-ðbót, ef íbúar Kín-
værja eiga að fá nægju sína.
Sex ár í röð hefur uppskeran
verið ailmiklu minni en stjórn
in liafði óskað og búizt við.
í KENYA eru um 250 þúsund
manns á mörkum hungursins
vegna uppskerubrests í fyrra. í
ailan vetur hefur verið skortur á
mat og áður en maí-uppskeran
kemur að notum, má gera ráð
fyrir, að 300 þúsund manns
svelti. Urslitum um uppskeru
næsta árs veldur regntíminn í
marz. Bregðist hann ekki, get-
ur uppskeran forðað Jandinu
frá vaxandi hungri 1966 —
1967, en um endanlega lausn
er ekki að ræða. Þörf Kenya
fvrir korn mun nema 60—70
þúsund tonnum handa 7 milljón
um íbúa.
í INDLANDI hefur verið tek
in upp skömmtun á matvælum
í öllum stærri bæjum. Siö ind
versk fylki, með 100 milljón-
um íbúa, hafa orðið fyrir barð
inu á hungursneyðinni. U Thant,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
hefur skorað á þjóðir heims að
senda mat til Indlands.
Meðalframleiðsla landbúnaðar-
vara í Indlandi er 88 milljónir
tonna. En í ár er gert ráð fyrir,
að uppskeran nemi aðeins 76
milljónum tonna.
í mörgum indverskum héruð-
um hefur komið til óeirða vegna
matvælaskortsins. Fyrir nokkrum
vikum urðu alvarlegar óeirðir í
Kerala, þegar hrísgrjónaskammt
urinn var minnkaður niður í 125
grömm.
Reiknað er með að hungurs-
neyðin eigi eftir að valda stjórn
Indira Gandhis miklum erfðileik
um. Matvælaráð'herrann. Su-
bramaniam, hefur gert neyðar
6 .16. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
áætlanir í þeim héruðum sem
verst eru úti, svo að allir fái
pinhvejrja matarögn. Ekki svo
mikið að nægi til lífsviður-
væris á löngum tíma, en nóg
til þess að þrauka um tíma, í
von um, að stórar matvælasend
ingar beri-st frá útlöndum.
Indl^nd þarfnast 12 milljóna
tonna tíl að halda hungurvofunni
i skefjttm. En eigi mannfólkið að
fá nóg til þess að tilveru þess
sé ekki ógnað, er þörfin 25 míllj-
ónir tonna.
FÓLKSFJÖLGUNIN.
I Qðrum löndum er einnig
skortur á mat, og hann eykst ár
frá ári. Fólksfjölgunin verður æ
örari, og eiga læknarnir sinn
þátt í henni. Þeim hefur tekizt.
með ódýrum meðölum, að útrýma
og hefta marga hættulega sjúk
dóma í þróunarlöndunum, lækk
að ungbarnadauðann og stuðlað
að hækkun meðalaldurs. Þetta er
gert í þágu mannkærleikans, en
án þess samtímis að gera sér
ljóst, hvaðan hinar auknu milljón
ir manna eiga að fá daglegt
brauð.
Tilraunir hafa verið gerðar til
að takmarka fjölgun barna með
alls konar lyfjum, en einnig með
áróðri, þótt slíkt hafi hingað ti)
borið iítinn- árangur í þróunar-
löndunum, sem þrátt fyrir bar-
áttu við hungursneyð, standa
gegn slíkri takmörkun af trúar
legum ástæðum. Börnin eru líka
oft eini ríkidómur fátæka manns
ins, sem vinnukraftur og í viss
um tilfellum jafnvcl sem sölu-
vara.
MATARSKORTUR.
Góður og fjörefnaríkur matur
er aðeins tii handa hélmingi jarð
arbúa. Hinn heímingufinn líður
skort. Nokkrir fá áð vísu næg
an mat, en ekki nægileg fjör-
ei'ni og- sölt. Aðrir fá hréinlega
ekki nóg að borða, og hafa ekki
von um að úr rætist í sjáan-
legri framtíð.
Frá stofnun Sameinuðu Þjóð-
anna hafa vísindamenn lagt sig
alla fram um að bæta og auka
landbúnaðarframleiðsluna og
fiskveiðarnar, þar sem þörfin
er mest. Miklu hefur verið á-
orkað. Hefði Matvælastofnunin,
FAO, ekki veitt hjálp, væri á-
standið miklu verra en nú er.
Eitt af erfiðustu vandamál-
unum er hin óiafna skipting
matvæla í heiminum. í nokkr-
um löndum er talsverð offram
leiðsla, annars staðar er skort-
urinn geigvænlegur. Enginn hef
ur fundið leið til að skipta gæð
unum eftir þörfum fólKsins.
OFFRAMLEIÐSLA
BANÐARÍKJANNA.
Á meðan Kínverjar svelta
ei?a Bandaríkjamenn a.m k. 55
milljónir tonna offramleiðslu af
korni og fóðri. En það er and-
stætt utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna að senda matvæli til
Kína eins og ástandið er í suð-
austur As(u.
Kanada hefur hins vegar selt
Kína alia sína offramleiðslu.
Offramleiðsla Bandar'kjanna
hófst fyrir alvöru á árum
seinni heimsstyrjaldarinnar, þeg
ar lagt var kapp á að framleiða
nóg handa bandamönnum og
fjarlægari Austurlöndum. Hélt
svo fram um hríð, eða þangað
til Eisenhower tók af henni
mestan kúfinn, með áætiun sem
kölluð var „Matur fyrir friðinn"
og ýttu undir útflutning offram-
leiðslunnar.
Johnson forseti hefur nýlega
lagt fyrir þingið svipaða áætlun,
sem auk þess gerir ráð fyrir auk
inni tæknilegri hjálp Bandaríkj-
anna.
Reiknað er með því í Hvíta
húsinu, að á næsta ári verði
flutt út 11 milljón tonnum
mieira en allri framleiðslunni
nemur það ár.
IIJÁLPAR ER ÞÖRF.
Hingað til hefur baráttan fyr
ir aukinni fæðu handa svelt-
andi milijónum jarðarbúa að
sumu leyti verið tapað kapp-
hlaup við dauðann.
Aðalframkvæmdastjóri Mat-
vælastofnunarinnar, dr. B. R.
Sen, sagði í fyrra á ráðstefnu,
sem baldin var í Beligíu, að því
aðeins, að gert verði sameigin-
legt átak, sem spanni allan heim
inn, til þess að auka matvæla
framleiðslu þróunarlandanna,
Hetjud
KASTLJÓS
NÝ manngerð er að vaxa upp í
Kína, að því er kínverskt blað
sagði nýlega. Þetta má þakka hinni
sósíalistísku byltingu og hinni só-
síalistísku viðreisn landsins. Þessi
nýi fyrirmyndarmaður er virkur
jþátttakandi, hÍBnn berst af lífi
og vinnur aðdáunarverð afrek þrátt
og vinnu aðdáunarverð afrek þrátt
fyrir hræðilega erfiðleika. Hann
hefur byltingarkenningar Mao Tse
tungs að leiðarljósi og sýnir þrótt
í starfi og viðleitni til að ná hinu
fuiíkomna.
Hinn nýi maður, hin nýja hetja
sem blaðið talar um, sýnir mikil-
væga drætti úr lífi fólks í Kína,