Alþýðublaðið - 19.03.1966, Qupperneq 4
MADE ÍN U.S.A
tHKSIKj)
BHatJórar: Cylft Gröndnl (4b.) og Benedlkt Gröndal. — RltstJÍ5rnarfuU.
trúl: EtBur Gunnaaon. - Slmar: 14900-14803 - Auglýalngaalœl: 1480«.
ASaetur AlþýBuhúalB vlB Hverflagötu, Reykjavlk. — PrentsmlBja AlþýBu
blaBsins. — Aakrlítargjald kr. 95.00 — I lauaasölu kr, 5.00 elntaklS.
(Jtgefandl AlþýBuflokkurlnfl.
Jens Otto Krag
JENS OTTO KRAG, forsætisráðherra Ðanmerk
ur, er væntanlegur hingað til lands síðdegis i dag
ásamt konu sinni. Koma þau sem gestir Blaða-
■mannafélags íslands og munu sækja fagnað félags
ins í Lido í kvöld. Mun forsætisráðherrann þar
flytja ræðu.
Með þessari heimsókn gerir hinn danski forsæt
isráðherra ekki aðeins blaðamannafélaginu heldur
og íslenzku þjóðinni allri mikinn heiður og ber heim
sóknin vott um sérstakan áhuga Krags á íslandi og
isambúðinni milli Dana og íslendinga.
íslendingar fagna hverju tækifæri til að endur
: nýja kynni sín af Jens Otto Krag. Hann er ungur
maður, en hefur þó að baki langan og viðburðarík-
an feril í dönskum stjórnmálum. Var hann snemma
m
EST SELDA PlPUTÖBAK í BANDARÍKJUNUM
• • • •
í PÍPUNA!
: talinn í röð efnilegustu forustumanna þjóðar sinn-
i og hlaut kornungur hin erfiðustu verkefni. Hann
Tleysti þau af hendi á þann hátt, að frami hans hef
; ur verið skjótur og honum hefur fallið í skaut
;:þýðingarmesta starf í lýðræðisríki: að hafa forsæti
í ríkisstjórn.
j: Aðstaða Krags hefur að ýmsu leyti verið erfið
- undanfarin misseri. Danski jafnaðarmannaflokkur-
inn er langstærsti flokkur landsins og hefur mótað
þjóðfélagsþróun þess um langt skeið. En hann hefur
'ekki haft hreinan meirihluta. Hefur stjórnin því orð
ið að leita samkomulags við aðra flokka um lausn
hinna viðkvæmustu mála til að forðast pólitískt
öngþveiti. Hefur Krag sýnt hæfileika og stjórn-
vizku og hlotið vaxandi viðurkenningu í þessari
erfiðu aðstöðu.
íslendingar munu ekki síður fagna hinni fögru
forsætisráðherrafrú, sem er ein af fremstu leikkon-
um Dana auk þess sem hún gegnir með glæsibrag
því hlutverki að koma fram við hlið manns síns
við hin margvíslegustu tækifæri.
Samskipti Dana og íslendinga hafa verið með á-
gætum undanfarin ár. Vinátta þjóðanna mun enn
-styrkjast við heimsó'kn forsætisráðherrahjónanna
um helgina.
, , UNDANFARIN ÁR hafa margir gagnrýnt hina
r öru f jölgun banka og bankaútibúa hér á landi og tal
ið skrifstofuhald og tilkostnað við ivíxlarastörfin úr
hófi. Er nokkuð til í þeirri gagnrýni, enda þótt
sterk rök séu einnig fyrir hverjum banka um sig.
. Nú hefur það þó gerzt, að ríkisstjórnin hefur loks
i ins tekið ákvörðun um að fækka bönkum um einn
með afnámi Framkvæmdabankans.
ÞEIR TJRÐU fjórtán þúsund aó C>00000000000000000000<C>000000000<>i
Jt Stórsmyg! áfengis og fuliyrðingar andbanninga.
ic Reynsian hefur afhjúpað þá.
ic Fjórtán þúsund sem falsspámenn skrifuðu undir.
ic íslenzkt sjónvarp og erlent.
OOOOOOOOOOOO-OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOi
tölu, sem skrifuðu undir mótmæli
gegn skerðingu á sjónvarpssend
ingrum. Það var keppt að því að fá
sex þúsund til að skrifa undir, og
var það grert tii þess að vera í
,jstíl“ við sextíumenningrajna og
sex hundruð stúdentana. Kunnugt
er, að enn eru margrir listar úti
svo að 'gera má ráð fyrir, að und
irskrifendur séu nokkuð fleiri.
HVORT, SEM mönnum líkar það
betur eða verr, og hvaða skoðan
ir sem menn kunna að hafa á mál
inu sjálfu, þá er það víst, að yfir
leitt eru menn mjög andvígir því
að nokkur skerðing verði á sjón
varpssendingum. Menn segja sem
svo, að sjálfsagt sé að leyfa fólki
að veija um og hafa yfirleitt þá
trú, að eftir að íslenzka sjónvarpið
kemur, og ef það velur úr erLendu
efni eins og sjónvarpsstöðvar gera
á Norðurlöndum, þá muni íslenzka
isjónvarpið verða miklu vinsælla
en hið erlenda.
ÞETTA ER LÍKA mjög líklegt
því að tiltölulega lítið verður eftir
í Keflavíkursjónvarpinu. en miög
mikið til viðbótar sem það getúr
ekki haft til dæmis, allt íslenzkt
efni. Það verður mönnum líka
li.ó t. að það er mjög ólíkt að
hlusta á íslenzk erindi, sem studd
eru myndum, teikningum og íöfl
um heldur en að hlusta á sömu
erindin í útvarpinu.
HVF.RT StúrsmvGUÐ rekur
annað. Þúsundir lít.ra af áfpnvi
hafa fundizt. í tveimur skinum
oe t.ugþúsundir af vindiinenm.
Þegar barizt var mest geen bann
löeunum. var bað fidlvrt af and
banningum, að ekkert smvel
jmUndi ei^a s^r stað eftir að
bannlögin hefðu verið afnumin.
Reynslan hefur hrundið þessum
fullyrðingum eins og rökum and
banninga svo að Þar stendur ekki
steinn yfir steini.
NÚ ER SAGT, að ef bjór verði
bruggaður í landinu til sölu, þá
muni drykkju sterkra vína minnka
stórlega. Ég er viss um, að er bjór
inn kemur þá mun drykkja
Framh. á 5. bls.
Checker 1966
Sérstaklega þægileg, vel byggð og traust 4ra dyra
bifreið. Engar útlitsbreytingar árlega. — Stærð 5
farþega og 7 farþega. Verð frá kr. 260.000,00 til
atvinnubifreiðastjóra.
CHECKER bifreiðin er byggð nieð þægindi, endingu
og hagsýni fyrir augum.
Upplýsingar veittar í síma 11588.
Kr. Stemdórsson
Hafnarstræti 2.
4 19. marz 1966 - ALÞÝfiUBLAÐIÐ