Alþýðublaðið - 13.05.1966, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 13.05.1966, Blaðsíða 2
eimsfréttir ...... siáasfEiána nóft IBUKAHEST: — Hinni dularfullu Rúmeníuheimsókn Le- onid Bresjnevs, aðalritara sovézka kommúnistaflokksins, ier sennilega loktð, að því er heimildir í Búkarest herma. Sagt er að Bresjnev hafi haldið flugleiðis til Moskvu í gær að lokn- um þriggja daga viðræðum við rúmenska leiðtoga í Búkarest. BONN: — Vestur-Þýzkaland og ísrael undirrituðu í gær fyrsta samninginn um efnahagsaðstoð. Samkvæmt samningnum lána Vestur Þjóðverjar ísraelsmönnum 160 milljónir marka á ári, 'þ.e. um 1700 milljónir króna. Samningurinn kcmur í stað skaðabc(;igretð.slna VesturJÞjóðverja, er lauk fyrr í ár og hafa viðræður um hann staðið 1 fjóra mánuði. ísraelsmenn hafa beðið um aðstoð til að standa straum af kostnaði við fjarskipti, húsnæðisbyggingar og tnnflutning fólks. Lán V- Þjóðverja mun verða greitt á 20 árum með 3% vöxtum. SAIGON: — ‘Heimildir herma. að bandarískar orrustu- þotur hafi gert velheppnaðar árásir á eldflaugaskotpalla aðeins 16 km. frá nafnarbænum Haipliong í Norður-Víetnam. Heimild- irnar herma; að bandarískar þotur hafi einnig ráðizt á skot- mörk í nánd við tvo aðra hafnarbæi í Norður-Víetnam. Nýjar loftárásir hafa verið gerðar á Mu Gia-skarðið 'á landamærum Laos, og hefuí umferð stöðvazt um skarðið, sem er á leið þeirri er Norður-Vietnammenn nota til flutninga ttl Vietcongmanna í Suður-Víetnam. í síðustu viku féllu 82 Bandarkjamenn og 615 særðust. 61 stjórnarhermaður féll og 22 er saknað. 456 skæruliðar vuru felldir og 121 tekinn til fanga. NEW i'ORK: — 31 Afríkuríki skoraði í gær á Breta að setja samgöngubann á Rhodesíu á landi, sjó og lofti og beita valdi til fð bola Smithstjórninni frá völdum. í ályktunar- ttllögu, sem lögð verður fyrjr Öryggisráðið, er skorað á Breta að ráðfærast við afríska leiðtoga í Rhodesíu í þeim tilgangi að koma á laggirnar meirihlutastjórn. Sagt er, að viðræður torezkra og rhodesískra embættismanna í London geti haft óheillvænieg áhrif á baráttuna fyrir því að víkja minnihluta stjórninni í Rhodesíu frá völdum. LONDON: — 62.500 meðlimir brezka sjómannasambands- ins liefja verkfall frá miðnætti á mánudag til að leggja áherzlu á kröfur um hærri laun og bætt vinnuskilyrði. Stjórn gambandsins hafnaði málamiðlunartillögu Ray Gunters verka- málaráðherra. Þetta verður fyrsta landsverkfall síðan 1911, Og mun verkfallið lama útflutning og innflutning iandsins, birgðir af matvælum og eldsneyti munu minnka til muna og tafir verða á siglingum um Atlantshaf og Ermasund. JÓHANNESARBORG: — Efnt var í gær tl mótmæla- aðgerða við ixáskóla enskumælandi manna í Suður-Afríku þar eð skert hefur verið ferðafrelsi formanns stúdentasamtakanna, NUSAS, Ian Pobertsson, sem er fjandsamlegur stjórninni. BARCELONA: — Kaþólkskir menn á Spáni, lærðir jafnt sem leikir hata brugðist harkalega við atburði þeim í fyrra- dag, er lögreglan í Barcelona beitti kylfum gegn hópi presta er fór í mótmælagöngu til lögreglustöðvarinnar að mótmæla pyntingum lögreglunnar á ungum stúdent. Atburður bessi getur þaft áhrif á sambúð ríkis og kirkju á Spáni. ASWAN: — Kosygin, forsætisráðherra Rússa, heimsótti í gær Aswan-stífluna í Egyptalandi, sem fyrirennari hans, Krústjov vígði fyrir tveimur árum. Ráðstefna um mannréttindamál Æskulýðssamband íslands efndi til ráðstefnu um mannréttinda- mál á mánudag 9. maí og var hún haldin í húsakynnum Æskulýðs ráðs Reykjavíkur að Fríkirkju- vegi 11. Ráð^tefnuna setti Hannes Þ. Sigurðsson, fyrrverandi formað ur Æskulýðssambandsins. Fluttir voru fjórir fyrirlestrar, er nefnd- ust: „Mannréttindaskráin og Ev- rópusáttmálinn,” „Suður-Afríka, Rohdesía, Angola og Mosambiq- ue”, „Einræði, Lýðræði, Mann- réttindi” og hlutverk aðildarfé- laga ÆSÍ í mannréttindamálum og hvaða aðferðir eru tiltækar”. Fyr irlesarar voru Elías Snæland Jóns son, blaðamaður, Hallveig Thor- laeíus, kennari, Hrafn Bragason, lögfræðingur og Jón E. Ragnars son, lögfræðingur. Ráðstefnuna sóttu 22 fulltrúar frá aðildarfélögum Æskulýðssam- bands íslands. Sjórnandi ráðstefn unnar var Einar Hannesson, for maður Mannréttindanefndar Æskulýðssambandsins. Stefán Jónsson rit- STEFÁN JÓNSSON, kennari og rithöfundur, Iézt í gaermorgun, sex tugur að aldri. Mikill fjöldi bóka hans kom út frá hans hendi, bæðl smásögur og skáldsögur. Einna vin sælastar urðu barnabækm’ hans, Þessa kunna rithöfundar verður nánar getið síðar hér í blaðinu. Gunnar Ásgeirsson (t.v.) ásamt einum fulitrúanna. Ráðstefna umbobs- manna vinnutækja Safn Markúsar ívarsson- ar sýnt í listasafninu Reykjavík — OÓ. SÝNING á listaverkasafni Mark úsar ívarssonar, sem nú er í eigu Listasafns ríkisins verður opnað í húsakynnum þess á morgun. Eru iwwmwwawwwwtvwy ! Hverfisstjórar Fyrir Melaskóla og Mið bæjarskóla eru beðnir að ! | mæta á áríðandf fundi kl. 8,30 í kvöld á skrifstofu Al- ;! J þýðuflokksins. MWWWWWWWWWVV 2; 13. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ þar sýndar 57 myndir sem erfingj ar Markúsar afhentu Listasafninu þegar stofnunin tók til starfa. Síð astliðinn vetur afhentu erfingjar Markúsar Listasafninu gjafabréf fyrir öllum listaverlcunum. Sýningin í gær var sýnd nokkr um gestum. Þeirra á meðal voru menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gíslason og frú, ekkja Markúsar ívarssonar, Kristin Andrésdóttir og dætur hennar og tengdasynir og listaráð Listasafns ríkisins. Þessi gjöf var á sínum tíma mjög stór hluti af listaverkaeign Listasafnsins og er ómetanleg eins og vænta má. Alls eru listaverkin eftir 22 málara, og fylla þau fjóra salf safnsins. Markús ívarsson lézt árið 1943. Hann byrjaði mjög snemma að kaupa listaverk og greiddi mjög götu listamanna meðan hann lifði. Eins og fyrr er sagt voru raálverk hans afhent Listasafninu að hon um lótnum og var hann áður bú inn að láta þá ósk í Ijós að það væri ætlun hans. Sýningin verður opin daglega kl. 13.30 til 16,00 næstu tvær vik ur. Reykjavík, — OÓ. Ráðstefna umboðtmanna Bol- inder - Munktell á Norðurlönd um hefur staðið yfir í Reykjavík undanfarna daga. Fyrirtækið er dótturfyrirtæki Volvo í Svíþjóð og hefur heildverzlun Gunnars Ásgeirssonar umboð fyrir það fyr ii’tæki eins og kunnugt er og hef ur Gunnar allan veg og vanda af framkvæmdum ráðstefnunnar hér lendis eins og vænta má. Bolinder-Munktell leggur á- herzlu á framleiðslu á vinnuvél um, svo sem vegheflum, ýtum, á- mokstursvélum og slíku. Einkum hefur fyrirtækið lagt áherzlu á að framleiða minni vélar af þe sum gerðum sem vel munu henta í sambandi við fiskflutlnga og bygg inganneisturum sem fást við í- búðabyggingar og slfkt. Alls taka 17 umboðsmenn þátt í ráðstefnunni, og bera þeir sam an bækur sínar um þarfir fyrr- greindra tækja, hver í sínu landi. og má ætla að fyrirtækið þurfi að tvöfalda framleiðslu sína fyr ir árið 1971 til að anna eftir spurninni. Sé dæmi tekið af vin sældum framleiðslu þess á Norður löndum má geta þess að hehning ur veghefla sem nú eru í notkun á íslandi eru framleiddir hjá Bol inder - Munktell í Eskilstuna og Framhald á 15. sfðu. Stuðningsmenn A-listans Alþýðuflokkurinn lieitir á alla 'stuílífl -(ísýiM-jnn. ifna að veita flokknum lið', ekki eingöngu vi8 kjörborðið heldur eining með starfi á kjördag, og fram að hon ein, ennfremur heitir hann á þá er aflögufærir eru á fé, að leggja einliverja fjármuni að mörkum I kosningasjóð flokksins. Framlög mn er veitt móttaka á aðalskrif stofunni í Alþýðuhúsinu. FundurA-listans í Kefiavík ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖG IN í Keflavík halda fund í- Aðalveri í kvöld 13, maí kl. 8,30. Ragnar Guðlcifsson flytur stutt yfirlit yfir störf bæjarstjórnar síðastliðið kjörtímabil og svarar fyrir spurnum. Stutt ávörp flytja: Ólafur Björnsson, Karl Stein ar Guffnason, Þorbergur Frið riksson og Guðfinnur Sigur- vinsson. Fundarstjóri verður Sveinn Jónsson, bæjarstjóri Ölluin stuðningsmönnum AI- þýffuflokksins er heimill að gangur meðan húsrúm leyfir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.