Alþýðublaðið - 13.05.1966, Blaðsíða 8
— Hvenær fóruð þið í upplest-
urinn?
— Upplestrarfríið hófst með
dimmission, sem var 21. apríl sl.,
en prófin hefjast 24. maí og þeim
lýkur 13. júní. Það veitir ekkert
af þessum tíma til upplesturs. Til
gamans má geta þess, að þegar afi
minn tók stúdentspróf rétt eftir
aldamótin síðustu, var upplestrar-
fríið tveir og hálfur mánuður!
— Freistar ekki sólskinið og
blíðan til útivistar?
— Óneitanlega, og kjörveður
okkar þessa dagana er rigning og
rok.
— Aðsókn nemenda í stærð-
fræðideild hefur aukizt mjög und-
an farin ár. Hvað veldur þessum
umskiptum?
— Straumurinn í stærðfræði-
deild eykst stöðugt, og til marks
um það má benda á, að í hitteð-
fyrra voru máladeildarbekkir
fleiri, í fyrra stóðu leikar jafnir,
en núna eru stærðfræðideildar-
bekkirnir 5 á móti 4 í máladeild.
Mestu um þetta veldur ör tækni-
þróun, og þar af leiðandi aukin
eftirspurn eftir raunvísindamönn-
um.
— Telur þú, að munnleg próf
gefi jafn örugga hugmynd um
þekkingu nemandans og skrifleg?
— Ég álít, að munnlegu prófin
reyni meira á hæfileika spyrjand-
AðalJuiður Vilhjálmsdóttir: Ætla í hjúkrun.
TEXTI: KRflSTMANN EIÐSSON
SVIYNDIR: JÓHANM VBLBERQ
NÚ fer skólum senn að Ijúka.
Unga fólkið tekur sinn endasprett,
sem hefst með upplestrinum, en
lýkur viö prófborðið Kennslu-
mun nií lokið í flestum frarnhalds
skólum og prófin í þann veginn
að hefjast. Fyrstir í prófslaginn
eru nemendur unglinga- og gagn-
fræðaskólanna, en þeir munu
Ijúlca öllum prófum í kring um
20. maí. N emendur landsprófs-
deilda koma næstir í mark, um
mánaðamótin, og síðastir verða
svo þeir, sem lengst eru komnir,
þ. e. nemendur sjötta bekkjar
menntaskólanna, sem halda há-
tíðleg vertíðarlok, skömmu fyrir
þjóðhátíð.
Okkur hefur dottið í hug að
heimsækja nokkra nemendur, sem
heyja nú stríð sitt við bækurnar
og sólskinið og fá þá til að spjalla
örlítið við okkur um skólana, —
prófin og sitthvað fleira.
Fleiri nemendur
í stærðfræðideild
FYKSTUR verður á vegi okkar
Ásmundur Jakobsson, nemandi í
6. bekk Menntaskólans í Reykja-
vík.
ans til að fá út raunverulega kunn
áttu nemandans. Annars virðist
stefnan sú í Menntaskólanum að
auka skriflegu prófin á kostnað
þeirra munnlegu. T. d. verður
stúdentsprófið í sögu skriflegt að
þessu sinni.
— Mælir þú með lengingu skóla-
ársins?
— Nei, sumarleyfið er nauðsyn-
legur þáttur í uppeldi og mennt-
un æskunnar, hún kynnist atvinnu
lífi þjóðarinnar og sezt aftur á
skólabekkinn að haustinu, endur-
nærð og margs vísari.
— Hvað hefur þú haft fyrir
stafni á sumrin?
— Ég hef unnið við landmæl-
ingar undanfarin sumur, og ætla
að gera svo einnig í sumar?
— Hver eru framtíðaráformin?
— í haust fer ég til Skotlands
og mun leggja stund á efnaverk
fræði við St. Andrewsháskóla, sem
er skammt frá Edinborg. Þetta er
elzti háskóli Skotlands og þar eru
því við lýði margar traditionir,
enda siður þar í landi að varpa
því gamla ekki umsvifalaust fyrir
borð til að rýma fyrir nýjungum.
— Saknar þú nú ekki gamla
skólans við Lækjargötu?
— Vissulega. Þetta hafa verið
skemmtileg og lærdómsrík ár, og
það er alltaf ánægjulegt að eiga
samleið með góðum félögum.
Stytta má leiðina
í landsprófsdeild
ÞEIR nemendur, sem hyggja á
langskólanám, verða yfirleitt að
þreyta landspróf miðskóla. Próf
þetta hefur verið mikið rætt á
opinberum vettvangi og skoðanir
mjög skiptar um gildi þess og
framkvæmd. En hvað sem því líð-
ur, þá vekur þessi fyrsti áfangi
á langskólabrautinni ætíð nokk-
urn ugg í brjóstum þeirra nem-
enda, sem honum hyggjast ná.
Við gefum okkur því á tal við einn
þeirra ungu manna, sem glíma við
landsprófið að þessu sinni. Heitir
sá Stefán Unnsteinsson, nemandi
í landsprófsdeild Réttarholtsskóla.
— Mikið að gera, Stefán?
— Já, alltof mikið. Við þurfum
að lesa þetta 3—400 blaðsíður í
hverri lesgrein.
— Komizt þið ekki yfir náms-
efnið í upplestrarfríinu? »
— Jú, það er liægt ef vel er
haldið áfram.
— Nokkuð smeykur um útkom
una?
— Nei, ekkert að ráði.
— Eruð þið mörg, sem reynið
við landsprófið í þessum skóla?
— Þeim hefur nú fækkað nokk-
uð írá því í haust. Við erum eitt-
hvað um 50.
— Telur þú einhverra breytinga
þörf á námsfyrirkomulagi, t. d.
að hefja sérhæfingu fyrr en nú
gerist?
— Nei, ég álít nógu snemma
byrjað á valnámi, t. d. hef ég
enn ekki gert það upp við mig,
hvort ég fer í stærðfræði — eða
máladeiid. En ég tel breytinga
þörf á skyldunámsstiginu. F.vrsti
og annar bekkur gagnfræðaskól-
anna er alltof léttur fyrir þá, sem
hyggja á landspróf, og ineð því að
endurskipuleggja námsfyrirkomu-
lagið þar, mætti flýta fyrir lands
prófsnemendum.
— Nokkuð fleira, sem betur
mætti fara?
— Ég tel, að ekki megi minnka
í neinu bóklega námið, en það
mætti auka félagslífið og færa það
í betra horf. Nemendur eiga aðl
fá meira frjálsræði til að sinna á-l
hugamálum sínum á sviði félags-T
lifsins, án forskriftar skólayfir-|
valda.
— Og að lokum Stefán. Hvaðl
ætlar þú að taka þér fyrir hend-|
ur í sumar?
— Ég ætla út á land að vinna.|
Ég hefi undanfarin tvö sumu
unnið í byggingarvinnu hér í|
Reykjavík, en hef áhuga á að|
breyta til að þessu sinni.
Sagan gekk ekki
eins og í sögu
INNI í Réttarholtsskóla rekumstj
við á Aðalheiði Vilhjálmsdótturl
þegar hún er að koma úr dönskul
próíi. Aðalheiður lýkur gagn|
fræðaprófi í vor, og við byrjur
á því að spyrja hana hvernig
gengið hafi í prófinu.
— Þetta gekk alveg sæmilega
— Var þetta fyrsta prófið?
— Nei, við erum búin með ís
lenzkuna og söguna.
— Gekk það ekki eins og
sögu?
-- Jú, íslenzkan, en ekki sagan.|
Ég kom upp í Þorvaldi Thorodd-|
sen og könnun landsins, og stóð
mig ekki sem skyldi.
— Það eru tvær deildir við
gagnfræðastigið. Hver er munur-|
inn á þeim?
— Já, deildirnar eru tvær, —I
verzlunardeild og almenn deild.|
Verzlunardeildin er erfiðari og
próf þaðan meira metin. í þeirril
deild er lögð meiri áherzla á bók-T
færslu og tungumál, t. d. er kenndl
þar þýzka, en ekki í almennu|
deildinni.
Ásmundur Jakobsson. — Bara að hann vildi nú rigna.
3 13. maí 1966 - ALÞÝDUBLAÐIÐ