Alþýðublaðið - 13.05.1966, Blaðsíða 11
Hermann Gunnarsson skorar fyrsta markiS fyrir Reykjavík. — Mynd: J. V.
Reykjavík vann Akra-
nes í allgóðum leik
Bæjarkeppi Reykjavíkur og
Akraness í knattspyrnu sem fram
fór á miðvikudagskvöldið, var hin
skemmtilegasta, þrátt fyrir að
veðrið væri ekki sem ákjósanleg
ast, stormur og kuldi.
Leikar fóru svo að Reykjavík
sigraði með 3 mörkum gegn 1.
í hléi var staðan 1:0 fyrir Reykja
vík. í síðari hálfleik bættu svo
lieykvíkingarnir tveim mörkum
við, en Akurnesingar svöruðu með
einu. Þrátt fyrir þessi úrslit var
leikurinn næsta jafn, og skall liurö
nærri hælum við mörk beggja oft
á tíðum, þannig björguðu báðir
bakverðir Reykjavíkur tvívegis á
línu, en Reykvíkingarnir áttu
skot og skalla bæði í slá og stöng.
Það var Hermann Gunnarsson
miðherji Reykjavíkurliðsins, og
einn bezti maður liðsins í heild,
sem skoraði fyrsta markið, í
skemmtilegri samvinnu við þá Ingv
ar og Reyni.
Aulc þess skoraði Hermann ann
að mark seint í síðari hálfleikn
um, sem var mjög vel gert úr
þröngri og erfiðri aðstöðu. Var
það þriðja mark leiksins, en í
byrjun hálfleiksins var það Axel
Axelsson er skoraði annað mark
ið með snöggu skoti, eftir ágæta
samvinnu Hermanns og Reynis,
sem sendi vel og hnitmiðað fyrir
fætur Axels.
Er um 10 mín. voru eftir af
leiknum skoruðu Akurnesingar,
Hafnfirðingar efstir í
Litlu bikarkeppninni
Valur 55 ára á miðvikudaginn:
Glæsilegt afmælis-
hóf að Hliðarenda
Á laugardag fór fram í Kópa
vogi 3. leikur Litlu bikarkeppn-
innar og áttust þá við heimamenn
og Hafnfirðingar. Veður var dá
gott og áhorfendur allmargir.
Leiknum lauk með sigri ÍBH, sem
skoraði þrjú mörk gegn einu. Leik
urinn í heild var mjög þokkaleg
leikinn af vorleik að vera og sýndu
bæði liðin oft á tíðum sæmilegan
leik. Hafnarfirðingar voru mun
betri aðilinn og áttu svo sannar
lega skilið að sigra. í fyrri hálf
leik sóttu þeir nær látlaust og
voru oft mjög nærri að skora, en
það tókst ekki nema einu sinni og
var þar að verki hinn ungi leik-
maður Ólafur Valgeirsson. í seinni
hálfleik jafnaðist leikurinn nokk
uð, enn skoruðu ÍBH 2:0 snemma
í hálfleiknum og gerði það hinn
gamalkunni leikmaður úr Val. Sig
urður Sigurðsson (Sídó). Um mið
jan hálfleikinn skoraði Guðmund
ur v. innher.ii Breiðabliks eftir
mistök ÍBH varnarinnar. Siðasta
mark leiksins skoraði svo Sídó eft
ir fallegt unnhlaup ÍBH.
Eftir leik ÍA og ÍBK eru Hafn
firðingar ef-tir eftir tvær umferð
ir í kennninni. en eiga eft.ir að
leika við ÍA og fer sá leikur fram
á sunnudaginn kemur.
ÍA og ÍBK léku. Leikar fórc.
svo að ÍBK sigraði með 2:0.
Jón Jóhannsson skoraði fyrra
markið, en það síðara var sjálfs
mark með hörkuskoti frá Jóni Le
óssyni, scm hugðist hreinsa frá
með því að sneiða boltann út fyr
ir endamörk, en kýldi beint á
markið óverjandi upp í vinkillínu.
Ýmsa góða leikmenn vantaði í
beggja lið.
Áður en leikurinn fór fram lék
fimmti flokkur og sigraði ÍA 1:0.
Guðjón Finnbogason dæmdi leik
ina.
miðherji þeirra Guðjón Guðmunds
son, rak með skoti sínu góðan
endahnút á snögga sóknarlotu.
í Reykjavíkurliðinu voru tveir
Frh. á 14. síðu.
Páll Guðnason
FJÓRÐI leikur litlu bikarkeppn
innar fór fram á Akranesi á
sunnudaginn í glampandi sól og
blíðskaparveðri og við mikla að
sókn.
Haraldur Pálsson varð göngumeistari
Göngumót. á skíðum var haldið
sl. laugardag og fór mót þetta
fram í dalnum milli Skarðsmýrar
fjalls og Flengingabrekku á Hellis
heiði. Bílfært var að rásmarkinu.
Veður var gott, frost 1 stig og
sólskin. Átta keppendur tóku þátt
í móti þessu frá Reykjavík, Siglu
firði og Fljótum. Gengið var 7
km. í hring í dalbotninum.
Mótsstjóri var Gísli Kristjáns-
son, ÍR, og yfirtímavörður var
Gunnar Hjaltason, Hafnarfirði.
Sigurvegarar (20 ára og eldri);
(Reykjavíkurmeistari)
Haraldur Pálsson, ÍR 21:11 mín.
Páll Guðbjörnsson, Skíðasveit
Fljótamanna 21:56 —
Hermann Guðbjörnsson, Skíða-
félagi Fljótamanna 22:44 —
Júlíus Arnarson, ÍR 23:21 —
Björn Olsen, Sigluf. 26:07 —
Þorb. Eysteinss., ÍR 27:16 —
Unglingaflokkur, (sama vega-
lengd)
Eyþór Hafaldsson, ÍR 21:47 mín.
Margir áhorfendur voru við mót
þetta, sem var mjög skemmtilegt
og fór í alla staði hið bezta fram.
Göngumót hefur ekki verið haldið
sunnanlands síðan 1958, en von-
andi verður mót þetta upphaf
þess, að göngumót munu aftur
tíðkast sunnanlands.
Á þriðja hundrað manns kom
í heimsókn að Hlíðarenda á mið
vikudaginn 11. maí í tilefni af 55
ára afmæli Vals. Formaður Vals
Páll Guðnason bauð gesti vel-
komna, en meðal gesta voru
menntamálaráðherra dr. Gylfi Þ.
Gíslason og Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, forseti ÍSÍ og heiðurs
forseti, auk annarra liðsodda í-
þróttahreyfingarinnar, bæði for-
menn félaga, ráða og sambanda.
Meðal gesta, sem tóku til máls og
báru fram heillaóskir voru: Heið
urforseti ÍSÍ Benedikt G. Waage
og forseti ÍSÍ Gísli Halldórsson,
formaður KSÍ Björgvin Schram,
Jakob Hafstein fyi-rv. formaður ÍR,
Einar Sæmundsson formaður KR,
sém jafnframt mælti fyi-ir hönd
íþróttafélaganna í borginni og af-
henti gjöf frá þeim og Frímann
Helgason, formaður fulltníaráðs
Vals og afhenti hann félaginu frá
fulltrúaráðinu sjötíu þúsund króna
sjóð til eflingar þjálfunarstarfa
félagsins Þá voru nokkrir Valsfé
lagar, konur og karlar sæmdir
heiðursmerki félagsins úr gulli og
silfri. Gunnar Vagnsson, varafor-
maður félagsins framkvæmdi þá
athöfn.
Mörg skeyti bárust svo og blóm
og blómakörfur, ennfremur pen-
ingagjafir frá eldri félögum.
Móttaka gesta stóð yfir til kl.
7 og tókst hún í alla staði mjög
vel. Þarna hittust eldri og yngri
félagar Vals og þar á meðal nokkr
ir af stofnendum, samherjar og
vinir úr öðrum félögum, fyrir-
svarsmenn íþróttahreyfingarinnar
og hugir allra stefndu að sama
marki, að hylla eitt af traustusti*
félögum iþróttanna í landim*
og þakka því vel og drengile^a
unnin störf í þágu æskunnar |
landinu á liðnum árum.
Norræna sund- í
keppnin
Norræna sundkeppnin fer fram
á þessu ári og hefst á sunnudag.
inn 15. nk., en lýkur 15. septcmber.
Keppnisgreinin er 200 m. frjá)»-
aðferð. Rætt verður nánar uií
keppnina í blaðinu á morgun.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. maí 1966 Xt