Alþýðublaðið - 13.05.1966, Side 6
EIKA SER
Leikfélag Kópavogs:
ÓBOÐINN GESTUR
Gamanleikur í 2 þáttum eftir
Svein Halldórsson
Leikstjóri: Klemens Jónsson
Lögin útsett af Jan Morávek
Undirleik annast Kjartan
Sigurjónsson
Leiktjöld: Þorgrímur Einarsson
■ Leikfélag Kópavogs sýndi á
niánudagskvöld stuttan gamanleik
eftir einn forgöngumanna sinna og
stofnencía, og heiðursfélaga fé-
lagsins, Svein Halldórsson, fyrrum
skólastjóra. Sveinn mun hafa leik-
ið mcð félaginu flest ár frá stofn-
un þess fyrir tíu árum síðan, en
hann á sér að vísu miklu lengri
léiksögu að baki og mun hafa
féngizt við leiklist mestalla ævina,
fijumkvöðull leikstarfa hvar sem
hann hefur verið búsettur. Upp úr
slíku áhugastarfi hvarvetna um
lándið, með ekkert í aðra hönd
nema ánægjuna að leika, er nú-
timaloiklist okkar sprottin, og það
eý hinn sami leiklistaráhugi al-
nlennings sem ber hana uppi við
þroskaðri smekk og viðhorf.
Sveinn Halldórsson lýsti því
sjálfur i blaðaviðtal nýlega hvern-
ig leikrit hans sé tilkomið; það er
skrifað til að leysa úr þörf leik-
ejndanna vestur í Bolungarvík, þar
sbm Iiann bjó í 30 ár, þegar öll
ijandhæg verkefni voru uppgengin.
Ættarmótið er auðséð við danska
vaudeville-leiki sem vinsælastir
voru hér á landi um og eftir alda-
mótin, stöðug viðfangsefni ung-
menna-, bindindis-, íþrótta- og
annarra leikfélaga fram undir
þennan dag; þessarar ættar er lika
Ævintýri á gönguför sem enn
reynist í góðu gildi. Þar fer sam-
an einfalt, ærslafengið skop og
lýsing saklausra ásta og saknæmra
í atvikaflækju sem stefnir í ó-
leysanlega bendu unz greiðist úr
á síðustu stundu, svo allt fer vel
að lokum; tegundinni heyra einn-
ig til innlagðar söngvísur í leik-
inn, bæði ljóðræn ástamál og gam-
ankviðlingar undir kunnum söng-
lögum.
Ættarmótið er auðséð, en ó-
neitanlega er leikrit Sveins Hall-
dórssonar næsta frumstæð smíð
og annmarkar hennar auðsénir þó
þess beri að gæta að hér er ekki
leitast við að semja skáldskap
heldur einungis nothæfa dægra-
styttingu á sviðinu. Óneitanlega
er mannavillusagan í leiknum
harla klúðruð, og fyndnin klúr með
köflum, veigamikill þáttur hennar
að karlmennirnir í leiknum hátta
sig á sviðinu; orðræður eru sjaldn-
ast sérlega hnyttnar þó glettnum
hugmyndum bregði fyrir. Höfund-
ur á í stöðugum vandræðum með
að halda samhengi leiksins ljósu
fyrir áhorfendum, og þrjótinn í
leiknum, brjálæðinginn frá Kleppi
sem kemur allri bendunni af stað,
missir hann úr höndum sér eftir
fyrsta þátt sem er mesta eftirsjá.
En höfundinum nægir sem sagt
að koma af stað kátlegum uppá-
tækjum á sviðinu, gefa leikendun-
um tilefni að leika sér; og það má
ætla að honum hafi tekizt; ýmis
viðbrögð, atvik, tilsvör eru til þess
fallin að vekja kátínu.
Theodór Halldórsson fer með
aðalhlutverkið í leiknum, Geir
strokumann, og leikur hressilega
og kímilega þó röddin sé æði-stirð
með köflum. Aðrir leikendur eru
flestir kunnir af fyrri sýningum
Framhald á 10. síðu.
Sveinn Halldórsson í hlutverki sínu.
Ungur læknir á Akureyri spyr:
ERUM VIÐ EKKIÖLL SÖMUL
JAFNAÐARMENNINNSTINNI?
Auður Jónsdóttir og Júlíus Kolbeins.
HVERNIG er frá þínum sjónar
hól, ástandið í heilbrigðis- og
sjúkramálum á Akureyri í dag,
og hvað telur þú brýnast er gera
þarf í þessum efnum?
Astandið er gott en þarf að
verða betra að mörgu leyti. Okk
ur vantar bæði fleiri sérlærða
lækna og almenna lækna. í vor
kemur hingað ungur læknir,
Guðmundur T. Magnússon, sem
vinna mun á sjúkrahúsinu og
vonandi einnig hafa sína eigin
lækningastofu í bænum. Vænt-
um við mikils af liðveizlu hans.
Mér segja ábyrgir aðitar að
Gissur Pétursson mundi koma
hingað að ári, til að starfa hér
sem augnlæknir. Hingað vantar
mjög tilfinnanlega lærðan svæf-
ingalækni og eins h'áls-, nef og
eyrnalækni. Við bindum vonir
okkar við ákveðna lækna, sem
reyndar hafa enn ekki lokið sér
námi, svo að of snemmt er að
ræða um hvenær þeir eru vænt
anlegir. Hér er þörf fyrir sér-
fræðing í tauga- og geðsjúkdóm
um, en líklega of snemmt að fal
ast eftir slíkum, meðan ekki er
starfsaðstaða fyrir hann á
sjúkrahúsinu. Heilbrigðiseftir-
Iitið í bænum er rekið við mjög
lélegar aðstæður, sérstaklega
hvað húsakynni snertir. Bærinn
á að byggja myndarlega heilsu
verndarstöð, sem hann lögum
samkvæmt á að njóta mikils rík
isstyrks til. Þar myndi eftirlit
moð barnshafandi konum, ung-
barnaeftirlit, berklaeftirlit og al
Halldór Halldórsson
Framboð Alþýðuflokksins í
kaupstöðum og kauptúnxun
á Norðurlandi hafa vakið at-
hygli meffal annars af þeirri
ástæðu, aff margir og myndár
legir ungir menn eru þar á
listum. Einu þeirra er Hall-
dór Halldórssoon læknir á
Akureyri. Ritstjóri Alþýffu
mannsins liefxu- átt vifftal viff
líalldór og birtum við hér
meff síðari hluta þess.
mennar ónæmisaðgerðir fara
fram og ef til vill fleira, svo sem
krabbameinsleit og hjart.avernd.
Mér er kunnugt um að hér-
aðslæknir okkar hefir unnið að
undirbúningi slíkrar stöðvar, en
ókunnugt um að hið opinbex-a
hafi nokkuð aðliafzt enn. Mér.
er sagt að Elliheimili Ak’ireyrar
hafi verið reist og tekið í notk-
un, án þess að leitað væri eftir
ráðum eða leiðbeiningum nokk-
ui-s læknis. Sennilega er það
satt, því að mér vitanlega er eng
in aðstaða þar né í Skjaldarvík
til að hjúkra sjúklirtgum Elli-
heimili Akureyrar er fyrirmynd
ah„hfimili*?, en þar er brýn,
þörf fyrir sjúkradeild fyrir gam
alt fólk og ætti þá að sjáifsögðu
að fastráða lækni við E A.
Starfsbróðir minn sem er við
nám erlendis, ski-ifaði heim á
þessa leið: „Eftir því sem ég sé
fleiri spítala verður mér stöðugt
ljósari sú staðreynd hve FSA er
mikil fyrirmyndarstofnun“.
Vissulega hlýtur ,þetta að gleðja
okkur öll. En gott skal verða
betra. Þegar er meira en ár liðið
síðan því var lýst yfir opinber-
lega að undirbúningur væri haf-
inn að stækkun spítalans þó
verða byggingarframkvæmdir
ekki hafnar á ’þessu ári, eftir
því sem ég bezt veit. Vonandi
verður viðbyggingin langt kom-
in áður en fú bæjarstjórn er við
kjósum í vor fer frá völdum.
Reyndar yrði það methraði á
siúkrahússbyggingu hérl endis,
l en nú er lika tími til kominn að
sýna betri vinnubrögð á því
sviði. Tilfinnanlegastur er skort
ur sjúkrahússins á vinnuplássi,
Framhald á 10. síffu.
6 13. maí 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ