Alþýðublaðið - 13.05.1966, Page 10
Laugardaginn 14. maí kl. 10 árd. opnar
BÚNAÐARBANKI fSLANDS
HÁALEITISÚTIBÚ
Háaleitisútibú Ármúla 3. Sími 3-40-50
adasprettur
Framhald ú.r opnu.
pj-pfið og svo í menntaskóla, ef vel
gfangur.
■i— í hvaða deild?
— Stærðfræðideild.
— Hvað á að gera í sumar?
— Ég verð í brúarvinnu norður
í landi.
Mao
Framhald af 7. síðu.
1949. Síðan hann varð utanríkis-
ráðherra hefur hann ferðazt til
margra landa Asíu og Afríku. Ekki
er ósennilegt, að það hái honum
nokkuð að Kinverjar hafa orðið
fyrir nokkrum alvariegum áföll-
um í utanríkismálum á undanförn-
um tveimur árum.
(ÍÚOU EN-LAI forsætisráðherra
ér' sennilega sá leiðtogi Kínverja,
sím kunnastur er erlendis. Hann
e*r 68 ára að aldri. Hann ólst upp
í borgaralegu umhverfi í Suður-
Kína. Hann hcfur haft orð fyrir
að vera frábær diplómat og samn-
ingamaður allt frá því á árunum
milli 1930—40, þegar hann var
fulltrúi kommúnistaflokksins í
höfuðborg þjóðernissinna, Chung-
king. Hann er maður þægilegur
og skemmtilegur í umgengni og á
því auövelt með að kynnast fólki.
ffánn var því oft látinn túlka
stefnu Kínverja á alþjóðavett-
vangi eftir að Kínverska alþýðu-
l^ðveldið var stofnað 1949. Á æsku
órum sínum stundaði hann nám
í Frakklandi — og 1922 stofnaði
hann kínverska æskulýðshreyf-
ingu í París. Síðan Mao komst til
valda hefur Chou bæði verið
forsætis- og utanríkisráðherra.
LIU SHAO-CHI forseti er 61 árs
gamall. Fáir hafa verið eins hand-
gengnir Mao og hann, og sagt er
að flokksleiðtoginn hafi oft stuðzt
við hann í hugkerfimálum. Þegar
Mao afsalaði sér forsetaembætt-
inu í hendur Liu fyrir nokkrum
árum. var það talið benda til þess
að eftirmaðurinn hefði verið val-
inn.. Að vísu er forsetastaðan ekki
m.iög mikilvæg, því að það eru
völdin í flokknum sem máli skipta.
En ó sama hátt og aðrir úr hópi
valdamannanna á Liu sæti í stjórn
málanefndinni, sem er miðstöð
valdsins. Sem stjórnmálamaður er
Liu oft talinn litlaus, en engu að
: síður hefur hann staðið í broddi
! fvlkingar í hugkerfideilunni við
Rússa og er auðséð að með því
hefur hann tryggt sér sterka valda-
aðstöðu.
Leikhúsið
Framhald. af 6. síðu.
Leikfélags Kópavogs, Sveinn Hall-
dórsson sjálfur sem leikur einn
leitarmanna frá Kleppi, og félagar
hans Gestur Gíslason og Björn
Magnússon, Sigurður Jóhannes-
son, Guðrún Hulda Guðmunds-
dóttir og Auður Jónsdóttir. Eins
og endranær í Kópavogi sýndi
Auður (Þórunn læknisfrú) mest
öryggi, fágaðastan leik. Ærinn við
JO 13. maí 1966 - ALÞÝÐUBlAÐIÐ
AÐ ÁRMÚLA 3
(inng. frá Hallarmúla) sími 3-40-50
Afgreiðslutími kl. 1—6,30 síðdegis,
nema laugardaga kl. 10—12,30 árdegis.
Útibúið annast:
ISparisjóðsviðskipti
Hlaupareikningsviðskipti
Innheimtur
Fyrirgreiðslu viðskiptamanna
aðalbankans og útibúa hans.
Búnaðarbanki Islands
Austurstræti 5 — Sími 21200 (6 línur)
Austurbæjarútibú Miðbæjarútibú
Laugavegi 114 Laugavegi3
Vesturbæjarútibú Melaútibú
Vesturgötu 52 Bændahöll
vaningsbragur var hins vegar á
manni hennar, Ólafi Feilan lækni,
sem Júlíus Kolbeins lék, en hann
mun vera nýliði. Gestur Gíslason
vakti hlátur í hlutverki Jóns leit-
armanns; það hlutverk er líka
skringilegast í leiknum og fallnast
til ærslabragða. — Klemens Jóns-
son hefur leiðbeint leikendunum,
og virðist hafa farið það starf vel
úr hendi; grandalaus einfaldleiki
er höfuðprýði sýningarinnar. Leik-
tjöld Þorgríms Einarssonar eru
snotur — þó óþarflega ankanna-
legt sé að baðið virðist vera í eld-
húsvaskinum í sumarbústað þeirra
Feilanshjóna þar sem leikurinn
gerist.
Óboðinn gestur kann helzt að
vera frásagna’-v<’rð"r leikur sem
heimild um forscgu íslenzkrar
leiklistar, • áhugastarfið út um
landsbyggðina þar sem heima-
menn unnu af áhuga sínum öll
þau verk sem leikhúsi heyra. —
Áhorfendur í Kópavogi sýndu með
undirtektum sinum að þeir kunnu
vel að meta þetta starf, tóku leikn-
um með kostum og kynjum og
hylltu Svein Halldórsson sjálfan
að lokum, en leikurinn er sýndur
í heiðursskyni við hann 75 ára.
Ó.J.
Jafnaðarmenn
Framhald af 6. síðu
sérstaklega fyrir rannsóknar-
stofur, röntgendeild og svo
þvottahús.
Er um nokkra nýbre.vtni að
ræða á næstunni í þjónustu
starfandi lækna í bænum?
Jú, það vona ég. Starfið á
lækningastofunum er oft mjög
þreytandi og margt í því sam-
bandi sem betur gæti farið. Við
höfum leitað samstarfs við for-
ráðamenn apótekanna, en hjá
heim erum við flestir í húsnæði,
um að bæta þjónustuna á stof-
unum og stytta hinn langa bið
tíma þar. Standa vonir til að
þessar umbætur komist á nú í
sumar eða haust.
Svo ég víki að öðru. Er ekki
erfitt að bíða ósigur fyrir dauð
anum Halldór, þá er þú teflir
skák við hann um líf sjúklings
þíns?
Jú, svo sannax-lega. í starfi
mínu sem svæfingalæknh’ þyk-
ir mér ég aðeins einu sinni hafa
beðið ósigur fyrir dauðanum, en '
það er einu sinni of oft. Það var
afar sárt og fékk mikið á mig.
Við krufningu kom í ljós afar
sjaldgæfur sjúkdómur, sem var
hin eiginlega dánarorsök. Mai-g
ir þrá lengi dauða sinn, sem
frelsun frá miklum þj'.ningum
og biðja okkur jafnvel að bana
sér. Oft finnst manni rétt að við
mættum það, en mennirnir
grunda en guð ræður. Fæstum
virðist það ljóst hve dauðinn er
jafnan nálægur.
Að lokum Halldór. Eitthvað
er þú vilt taka fram, bæði í sam
bandi við starf þitt og annað er
þú vildir koma á framfæri?
Ég hef víst þegar sagt of
margt. Þó virðist mér réU að það
komi fram, að ég er mjög ópóli-
tískur maður. Jafnaðarmaður?
Erum við ekki öll jafnað.xrmenn
innst inni? Við viljum að aðrir
sýni okkur jöfnuð, réttlæti,
hjálpsemi, kærleika og umburð-
arlyndi, það eigum við og að
sýna öðrum. Hvað við kunnum
að segja skiptir ekki meginmáli,
ef við berum gæfu til að breyta
rétt.
Þá er að þakka Halldóri fyrir
viðtalið. AM óskar honum bless
unar í erfiðu og vandasömu
starfi, og vonar að Akureyri og
Norðurland megi ætið njóta
starfskrafta hans.
s.j.
T rúlof unarhringar
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfu.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12.