Alþýðublaðið - 04.06.1966, Blaðsíða 1
Laugardagur 4. júní 1966 - 47. árg. - 123. tbl. - VERÐ 5 KR.
Bátur brennur og
sekkur, mannbjörg
Eskifirði MB, OÓ
ELDTJR kviknaði- í vélbátnum
Jónasi Jónssyni GK 101 á Rcyð
arfirði í gærmorgun. Ekki fókst
að slökkva eldinn og brann bát-
urinn unz hann sökk. Engin slys
urðu á skipshöfninni. Báturinn
var 72 lestir að stærð, byggður
árið 1961.
Eldurinn kviknaði um kl. 9 í
gærmorgun. Var báturini <þá á
siglingu út Reyðarfjörð, á leið til
Norðfjarðar, þar sem hann átti
að fara til viðgerðar í dráttar-
brautinni.
Var báturinn kominn að svo-
nefndri Flysju þegar skipverjar
urðu varir við að eldur var kom
inn upp í vélarrúmi. Var eldurinn
þá þegar orðinn svo magnaður að
ekki var unnt að komast niður
í vélarrúmið. Eskifjarðarradíói
var þegar gert aðvart hvernig
komið var. Farið var með slökkvi
Petrosjan
sigraði í
einvíginu
—
Geimfararnir Thomas Stafford og Eugeiie Cernan,
mgmm \ . -- æ liHÍI
\ ’
MOSKVU, 3. júní (NTB-TASS).
— Heimsmeistarinn í skák, Tigr
an Petrosjan, hinn 36 ára gamli
verkfræðingur frá Ar-meníu. held
ur titlinum í þrjú ár enn, þar
sem áskorandi hans. Boris Spas-
sky, gaf 22. skákina' í einvíginu
um heimsmeistaratitilinn eftir 35
leiki í dag. Petrosjan hefur því
hlotið 12 vinninga, sem nægja
til sigurs í einviginu, og er því
þar með lokið.
Petrosjan vann fjórar skákir af
22, sem t.efldar voru, en Spas-
sky, 28 ára gamall verkfræðing-
ur frá Leningrad, vann aðeins
tvær skákir. Hinum skákunum öll
um lauk með jafntefli.
Byrjunarleikur Petrosjans í dag
sýndi glögglega að hann keppti
a,ð jafntefli, ec þegar Spassky
beindi skákinni ;nn á aðrar braut
ir fann heimsmcistarinn mótleik,
sem Spassky hafði gre •nilega ekki
gert ráð fyrir og eftir 35 leiki
gaf hann skákiná.
liðsbíl út eftir ströndinni og var
'hann þar til taks ef hægt væri
að renna bátnum á grunn og
slökkva þar í honum En það
reyndist ekki mögulegt.
Um svipað leyti var náð í skips
höfnina frá landi. Skömmu eftir
magnaðist eldurinn mikið Búist
er við að þá hafi eldsneytisgeym
ir sprungið.
Nokkru síðar kom vélbáturinn
Björg frá Eskifirði, 50 lestir að
stærð, að Jónasi Jónassyni. Hægt
var að koma tói á milli og dró
Björg brennandi bátinn inn fjörð
inn. Um hádegi varð að sleppa
honum aftur og logaði þá stafna
á milli. Björg fór aftur inn á
Eskifjörð og tók brunadælu um
borð og hélt út aftur og spraut
aði á eldinn, en allt kom fyrir
ekki og sökk báturinn og var þá
brunninn nær niður að siólinu
Eigandi Jónasar Jónassonar var
| Birkisútgerðin h.f Átti báturinn
l að stunda dragnótaveiðar í sumar.
Gemini 9. á braut en
tengingin mistók
Kennedyhöfða, 3. júni.
(NTB-Reuter).
Bandarísku geimförunum Thom
as Stafford og Eugene Cernan
tókst í kvöld að stýra geimjari
sínu, Gemini 9, upp að eldflaug
þeirri, sem skotið var á undan
geimfarinu, en komust að raun
uvi að þeir gátu ekki framkvæmt
hina hárnákvæmu tengingu geim-
farsins við eldflaugina eins og
ráðgert hafði verið.
Orsökin ,var sú, að hlíf, sem
verndar þann hluta eldflaugarinn-
ar, sem tengja átti gejmfarið við,.
hafði ekki losnað eins og hún
átti að gera, þegar eldflauginni
var skotið á miðvikudaginn. Hin
ráðgerða tenging átti að vera liá-
punktur geimferðarinnar.
Talsmaður bandarísku geim-
rannsóknarstofnunarinnar NASA
sagði, að úr því gæti ekki fengizt
skorið hvort geimfararnir gætu
losað hlífina fyrr en kl. 11,30 að
íslenzkum tíma á morgun. En þá
á Cernan að dveljast utan géim-
farsins eins og ráðgert hefur verið.
Hlífin á eldflauginni er úr plasti
og vegur 136 kíló. Hún þekur op
það í trjónuhluta eldflaugarinnar,
sem tengja á Gemini inn í, og ó-
víst er hvort framhluti geimfars-
ins komizt í gegnum þessa hlif
þannig, að framkvæma megi algera
tengingu við eldflaugina.
Þetta óhapp hefur ekki óhrif á
aðrar tilraunir, sem gera á í geim
ferðinni, sem stendur í þrjá daga,
t. d. ekki dvöl Cernans utan geim-
, farsins.
Geimvisindamenn gátu ekki sagt
Framhald á 14. siðu.
MWMHUMMMWHtÍmiMMHmmMWMMWUHHMMMmi'1
HELZTA LEIÐTOGA
if ?mFP2& VIKID FRá
PEKING, 3. júní. (NTB-
Reuter). — Einum valdamcsta
Ieiðtoga kínverskra komniún-
ista, Peng Chen, borgarstjóra
í Peking, var í dag vikið úr
embætti aðalritara komnuinista
flokksins í Peking Hinn 67
ára gamli borgarstjóri er valda
mesti, kínverski kommúnista-
leiðtoginh, sem hreinsaður hef
ur verið, síðan kínverska al-
þýðulýðveldið var stofnað.
Kunnugir í Peking telia ekki
óhugsandi, að brottvikni hans
sé upphafið á víðtækri hreins-
un kínverskra kommúnistaleið
toga.
Brottvikningin leiddi til mik
illa fagnaðarláta í Peking. Um
3000 manns gengu um götur
borgarinnar, hrópu'ðu fagnaðar
óp og báru rauða fána og stór
ar myndir af leiðtoga landsins,
(Mao Tse-tung. Vörubifreiðar
með stúdentum fylgdu á eftir
hópgöngunni. Fyrir utan ráð
hús borgarinnar voru sungnir
byltingarsöngvar og hápunktur
fagnaðarlátanna var mikil flug
eldasýning. Mannfjöldinn hróp
aði, að brottvikning Peng
Chens væri mikill sigur fyrir
kenningar Mao Tse-tungs. Auk
þess hrópaði manngrúinn að
hann styddi hinn nýja íeiðtoga
kommúnistaflokksins í Peking,
Li Hsueh-feng.
Kunnugir í Peking segja að
þess sé ekki langt að bíða að
Peng Chen verði einnie form
lega vikið úr embætti borgar-
stjóra, sem hann hefur gegnt
síðan 1921. Það hefur verið
Frh. á 14. síðu.
rtWWMMWtWWMWMWWMWWMMMWMMMMWMiMWW MWWmMWMWMMWMMdWMWWMMMWMMMMMMHWW
Hlaut 20 mán
ðöa fangelsi
í GÆR var kveðinn upp
dómur í máli gegn Þorsteini
Snorra Axelssyni, sem í okt
óber í fyrra ók bifreið
drukkinn á ólöglegum hraða
eftir Langholtsvegi Þor-
steinn ók á kyrrstæða bif-
reið með þeim afleiðingum
að einn maður beið bana
og leigubílstjóri og stúlka
slösuðust mikið. Þorsteinn
'hlaut tuttugu mánaða fang-
elsi óskilorðsbundið og var
sviptur ökuleyfi ævilangt.