Alþýðublaðið - 19.07.1966, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 19.07.1966, Qupperneq 12
Verið góð við dýrin! ann 2. verðlaun hlaut Viðar Hjalta- son, 12 vetra. Faðir Viðars er Hjalti Hreinsson í Viðey og Bleikskjóna frá Gufunesi, síðast á Laugavatni .... Vísir. Svona er lífið. Þegar Jónas Jónsson frá Hriflu skrifar lof- grein um kommúnista og fær hana birta í Þjóðviljanum, þá kann ekki nema lítið brot af gamalmennum þjóðarinnar að meta, hversu stórbrotinn við- burður þetta er .... Kellingin fékk kast um daginn f>egar kallinn kom heim hlað inn pökkum og pinklum Hann hafði keypt pappadiska og pappaskálar hjá Silla og Valda — til þess að losna við upp raskið .. Vísir segir frá því 1 gær að Cary Grant ,sem er 62 ára gamall hafi ákveðið að draga 5ig í hlé frá kvikmyndum í til- efni af því, að fyrsta barnið hans er fætt Þessu mótmæli ég eindregið en er reiðubúin að fyrirgefa honum þetta með króg ÍÍÓBELSSKÁLDIÐ okkar hefur iátið þess getið í einu af þeim örfáu viðtölum, sem hann hefur ÍStið eiga við sig, að kvikmyndir séu svo leiðinlegar, að þá sjaldan Hann álpist á bió viti hann ekki fyrri til en hann sé steinsofnaður. Við liér á Baksíðunni viljum að sjálfsögðu leggja á okkur tals- vert erfiði til þess að teljast há- menningarlegir, en þó kemur stundum fyrir, að við stelumst á iiíó, þegar þannig er í pottinn IJÓið, að kúrekasjónvarpið sýnir sömu myndina kvöld eftir kvöld. f>égar íslenzka'sjónvarpið verður ftess umkomið að kitla hlátur- taugar landsmanna; leggst þessi ósáður okkar væntanlega niður. í Austurbæjarbíói er um þess- ar mundir sýnd dönsk gaman- <nynd. Hún gerist í litlum vel- ferðarbæ, þar sem allir eru að drepast úr ofáti, örj'ggi og Ieið- tndum. Við gætum sem hægast «efnt þennan bæ í íslenzkri þýð- iagu og staðfæringu Bólguvík, því a@ verðbólgan er_ auðvitað hið eitia sem amar að staðnum, og að apki eru nokkrir íbúanna bólgn- it’ af heilagri vandlætingu í séra- árelíusarstíl. Aðalpersónan er borgarstjórn- armeðlimur og kvenfatasali. Á- ♦forfendum gefst kostur á að vera viðstaddir nokkra fundi í borgarstjórninni. Þeir eru eins og vænta mátti drepleiðinlegir, og við fáum ekki varizt þeirri hugs- un, að Dönum hefði verið nær að koma til íslands og skreppa á bæjarstjórnarfund z Hafnarfirði. Þá hefðu þessar senur ugglaust orðið miklu skemmtilegri. Messan, sem ekki varð. Þeir ætluffu aff messa úti f opinni kirkjutótt, syngja þar sálma og bænir, svo sálunum yrffi rótt. Og þaff átti að leika á lúffra lofsöngva og dýrffarstef, og síffan átti aff selja syndakvittunarbréf. En þaff nægir ekki alltaf a» ákveffa aff gera þaff, sem hugurjnn helzt vill kjósa, eins og Hallgrimur prestur kvaff. Sá getur f tanmana tekiff, sem tekst engum standa gegn. Og þegar menn búast við þurrki. þá getur komiff regn. Og þannig fór þessu sinni. Þegar að skrýddur stóff klerkur f kirkjutóttum kom úr loftinu flóff. Vatni í stríðum straumum stormurinn úr sér spjó. Það var eins og máttarvöldin Helzta efni myndarinnar er á þá leið, að flakkari að nafni Don Olsen kemur til bæjarins og hitt- ir bæjarstjórnarmeðlim á krá. — Þeir setjást að sumbli og eftir næturlanga drykkju slangra þeir út á götu og hitta í morgunskím- unni hvítt hross, sem spennt er fyrir mjólkurvagn. Það er einmitt á slíkum stundum, sem hjartað er meirt og andinn nálægur. Þeim félögum verður þegar ljóst, að í velferðarríki má ekki láta það viðgangast, að níðst sé á saklaus- um málleysingjum með þessu móti. Þeir leysa hrossið frá vagn- inum og teyma það heim með sér, bjóða því inn í stofu og gefa því viskí í fötu (auðvitað tegundina White Horse). Þegar hrössið er orðið leitt á selskapinu, geispar það stórum, og borgarstjómar- meðlimurinn leiðir það til sæng- ur. f síðustu viku leituðu þúsundlr landsmanna tilbreytni og skemmt- unar í hestamennsku norður og heim að Hólum £ Hjaltadal. Vafa- laust hafa flestir skemmt sér vel, og kannski hefur ístran á sumura rýrnað ögn í öllu hossinu og hamaganginum. En er ekki í raun- inni skelfing hversdagslegt og ó- frumlegt að ríða hrossum? Slíkt hefur að vísu verið gert frá örófi alda, en bætir það nokkuð úr skák? Er ekki bara púkalegt og gamaldags að stíga á bak saklaus- um hesti, að ekki sé talað um, hversu ómannúðlegt það er á öld velfarnaðar og mannkærleika að íþyngja skepnum svona gróflega og láta þær bera sig um landið þvert og endilangt. Auk þess er alls ekki þægilegt að sitja á hesti. Ef bíll hossaðist jafn mikið og hestur, mundi enginn vilja kaupa slíkt farartæki. Og enn- fremur sakar ekki að nefna það, að menn fá gjarnan rassæri af því að ríða hrossum, og síðast en ekki sízt má geta þess, að lækna- vísindin hafa fyrir löngu fært á það sönnur, að það er stórhættu- legt fyrir mannslíkamann að hossast og hristast .mikið. Nei, hugmynd þeirra félaga úr kvikmyndinni er áreiðanlega um- talsverð i hugsjónaleysi og mál- efnaskorti vorra daga. Að minnsta kosti leggur Baksíðan til, að hesta menn steinhætti að ríða hrossum sínum, en leiði þau í staöinn inn í finu stofurnar sínar og gefi þeim ofurlítið neðan í því. Hestamannafélagið Fákur gæti fengið að láni slagorð hjá Dýra- verndunarfélaginu, til dæmis það sem brýnt er fyrir öllum börn- um: Verið góð við dýrin!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.