Alþýðublaðið - 22.09.1966, Qupperneq 3
»
Nýtt hótel á
Hornafirði
Höfn í Hornafirði, — KI-KE.
í sumar hafa heimabátar stund-
að humarveiðar, og hefur aflast
ágaetlega. Veður hefur hins vegar
ætlunin er að halda þeim áfram
ætlunin tr að halda þeim áfram
eitthvað lengur fram eftir haust-
inu.
Nýja hótelið, sem hér er í bygg-
ingu mun innan skamms verða
Fréttir í
stuttu máli
opnað til greiðasölu, en stefnt er
að því, að í vor verði hægt að
hefja móttöku næturgesta. Verða
þar rúm fyrir G2 og mun ekki af
veita, þar sem ferðamannastraum i
urinn hingað eykst stöðugt frá
ári til árs. Hefur orðið að útvega
ferðamönnum herbergi úti í bæ
hjá einstaklingum, en við vonurn
að hótelið ráði bót á því ástandi.
Unnið hefur verið að smíði nýrr
ar liengibrúar yfir Jökulsá á
Breiðamerkursandi. Er nú verið
að Ijúka við að steypa undirstöð-
ur undir víragrindur og verður
þar við látið sitja að sinni, en
áætlað er að Ijúka þessari brúar-
smíði næsta sumar.
Belgrad: — Mihajlo Mihajlov,
'hinum opinskáai andstæðingi
júgóslavneska kommúnista-
flokksins, verður stefnt fyrir
rétt í heimabæ sínum, Zadar,
í dag, ákærður fyrir að hafa
dreift röngum upplýsingum er
lendis um júgóslavnesk inn-
anríkismál.
Pasadena: — Vísindamönn-
um hefur mistekjzt að koma
í veg fyrir að tunglflaugin
„Surveyor — 2“ haldi áfram
að „spinna“ á ferð sinni til
tunglsins ,og allt bendir til þess
að flaugin muni ekki ienda
mjúklega á tunglinu ems og
ætlað var.
Salisbury: — Hæstiréttur í
Rhodesíu dæmdi í gæi' tvo Afr
íkumenn til dauða en sýknaði
þann þriðja. Menn þessir voru
ákærðir fyrir að varpa sprengju
inn á kaffihús í Salisbury 12.
ágúst með þeim afleiðingum
að sjö hvítir menn og einn Afr
íkumaður biSu bana,
Djakarta: — Baráttunni gegn
Sukarno forseta er haldið áfram
í gær var frá því skýrt að
hann hefði með ýmsum brögð
um fengið „lánaða“ forngripi
að verðmæti 2 milljónir dolalra
hjá kínverskri konu. Þingið hef
ur krafist þess að Sukarno geri
grein fyrir hlutverki sínu í bylt
ingartilrauninni í fyrra og
menntamenn og stúdentar kref j
ast þess að hann svari ásökun
um um, að hann 'hafi hvað eftir
annað brotið í bága við stjórn
arskrána.
GÓÐ NÝTING
í ágústmánuði var tala gesta á
Hótel Loftleiðum samtals 4062 og
hafa þeir aldrei verið fleiri á ein-
um mánuði að því er segir í frétta
bréfi Loftleiða. Frá því hótelið
var opnað í maíbyrjun hafa gist
þar rúmlega 14000 gestir, en horf
ur eru á, að aðsókn minnki veru-
lega yfir vetrarmán. t.d. höfðu
aðeins 2000 manos pantað her-
bergi um síðustu mánaðamót fyrir
tímabilið fram að áramótum. Hef-
ur félagið í hyggju að ýta undir
aðsókn gesta með því að auka á-
róðurinn fyrir viðdvöl farþega hér
á leiðinni yfir hafið. Verður þeim
nú gefinn kostur á tveggja sólar-
hringa dvöl, og verður öðrum deg
Vélskóli ís-
lands settur
Vélskóli íslands var settur sl.
laugardag kl. 10 f.h. í hátíðasal'
Sjómannaskólans. Athöfnin liófst
á því að Halldór Haraldsson lék
tvö verk eftir Lizt á slaghörpu.
Því næst flutti skólastjórinn, Gunn
ar Bjarnason ræðu sína. Að henni
lokinni tók til máls Már Elíasson,
fulltrúi Fiskifélags íslands. Flutti
hann árnaðaróskir frá Fiskifélag-
inu, en félagið hefur undanfarin
50 ár starfrækt mótornámskeið
það, sem nú er búið að sameina
Vélskólanum. Lauk hann lofsorði
á skólastjórann og störf hans í
þágu tæknimenntunar íslondinga.
Fjórðungsþing
Norðiendinga
10. Fjórðungsþing Norðlendinga
var háð á Siglufirði dagana IV.
og 18. þ.m..
Fráfarandi formaður Fjórðungs
sambands Norðlcndinga var Magn
ús E. Guðjónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, en núverandi fjórðungs
ráð, kjörið til 2ja ára, er skipað
eftii'töldum aðilum:
Formaður Stefán Frfðbjarnar-
son, bæjarstjóri á Siglufirði, Vara
formaður, Jóhann Salberg Guð-
Framhald á 14. síðu.
Hjónin Jósef Magnússon og Ruth Litle.
Allfaf lanaab til oð
setjast að á Islandi
Keykjavík — ST.
Söngkonan, Ruth Little, sem
íslendingum er að góðu kunn
fyrir söng sinn, og eiginmaður
hennar Jósef Magnússon flautu
leikari, eru nú komin til lands
ins og hafa í hyggju að setjast
hér alveg að, ef allt gengur
að óskum. Þau hjónin hafa um
nokkurt skeið verið búsett í
London, þar sem þau hafa starf
að með kunnum tónlistarmönn
um.
Þau hjónin tjáðu fréttamanni
Alþýðublaðsins, að þau hefðu
alltaf langað til að setjast að
á íslandi. Hins vegar hefðu þau
ekki ráðist í það fyrr en nú þar
sem fjölgað hefði í fjölskyld
unni. Auk þess væri líf hljóm-
listarmanna erlendis þannig, að
þeir væru á sífelldum ferðalög
um. Þau efuðust heldur ekki
um að betra væri að ala upp
barn á íslandi en í einhverri
stórborg erlendis.
Framhald á 15. síðu
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir ítalskan gamanleik
Iveir einþáttungar eftir Jónas Árnason sýndir í vetur
Reykjavík, — ST.
Sveinn Einarsson leikhússtjóri
boðaði í gær jréttamenn á sinn
J:und í tilefni þess, að Leikfélag
Reykjavíkur er í þann mund að
hefja sýningar 'á klassískum, ít-
ölskum gamanleik, Tveggja þjónn,
eftir ítalska leikritaskáldið Gold-
oni. Leikstjóri er Svíinn, Christi-
an Lund, sem er íslenzkum leik-
húsgestum kunnur frá því er hann
Á HÓTELI OG FLUGVÉLUM
stjórnaði leikritinu, Þjófar, lík og
falar konur eftir Dario Fo. Leik-
myndir að þessum leik teiknaði
landi hans, Nisse Skoog, en þýð-
inguna gerði Bjarni Guðmundsson.
Sveinn Einarsson gat þess, að
hér væri um að ræða gamlan ít-
alskan farsa, sem saminn væri um
miðja 18. öld. Kvað Svelnn lelk-
inn hafa verið færðan í nútíma-
búning og þannig hefði hann ver-
ið færður upp víða um Evrópu,
m.a. í Edinborg og Milanó. Hér
hefði leikurinn einnig verið stað-
færður, þó þannig að hann héldi
öllum einkennum hins gamla farsa.
Persónurnar bera t.d. sömu nöfn
inum varið i Hveragerði. Kostnaði
af slíkri dvöl verður mjög í hóf
stillt, en gjaldið er tæpar 1500
krónur og er þá allt innifalið.
Farþegum með Loftleiðavélun-
um fjölgar stöðugt og fyrst.u sex
mánuði þessa árs var tala þeirra
66,963 á móti 58,927 á sama tíma
í fyrra og er aukningin 13,6%.
og í hinni ítölsku comedia della
arte. Kvaðst leikstjóri vilja geta
þess, að hér væri um nýstárlega
uppfærslu að ræða. Leikarar,
leikstjórinn, þýðandinn hefðu lagt
hönd á plóginn til þess að sam-
ræma leikinn sem bezt íslenzkum
aðstæðum.
Framhald á 14. síðu.
Christian Lund leikstjórf
22. september 1966 -- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3