Alþýðublaðið - 12.10.1966, Síða 10
Aðalfundur Danskenn-
arasambands íslands
AÐALFUNDUR Danskennara-
sambands íslands var haldinn
fyrir nokkru. Félagið starfar í
eftirtöldum deildum: Ballet, sam-
kv«mis- og barnadönsum. Þeir
einir geta orðið meðlimir félags-
ins, sem lokið hafa viðurkenndu
innlendu eða erlendu kennara-
prófi í einhverjum af framan-
töldum greinum.
Tilgangur félagsins er:
að efla og samræma dansmennt-
un í landinu,
að gæta hagsmuna félagsmanna
út á við og inn á við,
að efla stéttvísi meðal dans-
kennara,
að koma í veg fyrir að réttur
félagsmanna sé fyrir borð
borinn í atvinnumálum,
að auka dansmenntun félags-
manna.
Eftirtaldir skólar starfa undir
merki Danskennarasambands ís-
lands:
Balletskóli Eddu Scheving,
Balletskóli Katrínar Guðjóns-
.dóttur,
Balletskóli Sigríðar Ármann,
Heilsuvernd
HEILSUVERND, tímarit Nátt-
úrulækningafélags íslands, 4.-V5.
hefti, er nýkomið út og flytur m.
a. þetta efni: Heimsókn í dýra-
garð og útivist og hreyfing (Jón-
as Kristjánsson læknir). Matvísi
(Gretar Fells rithöfundur). Grein-
ar um offitu og langlífi og viðtal
við Pálínu Kjartansdóttur (eftir
ritstjórann, Björn L. Jónsson
lækni). Þýddar greinar: Aspirin
hættulegt börnum, blaut baðföt
valda ofkælingu, taugaveiklun
Iseimast með lífsvenjubreytingu,
skorinn upp 38 sinnum, orsakir
gigtarsjúkdóma, lyf gagnslaus í
taugaveikisbróður, kaffi veldur
ofþreytu, um uppþembu, hættan
af getnaðarvarnatöflum, munn-
vatn og magasár, hættulegt að
baða sig eftir mat o. fl. Þá eru
í heftinu uppskriftir eftir Pálínu
Kjartansdóttur húsmæðrakenn-
ara, þátturinn spurningar og svör,
féiagsfréttir o. fl.
Dansskóli Heiðars Ástvalds-
sonar,
Dansskóli Hermanns Ragnars,
Dansskóli Sigvalda — og
Listdansskóli Guðnýjar Péturs-
dóttur.
Fundurinn lýsti ánægju sinni
yfir því, hve skólastjórar barna-
skólanna hefðu tekið vel í þá ný-
breytni, sem DSÍ kom á framfæri,
en það er danskennsla 12 ára
barna í skólum. Kennarar DSÍ
hafa sl. vetur kennt í þeim skól-
um, sem um slíka kennslu hafa
beðið, og eru mjög ánægðir með
árangurinn. Hins vegar væri æski-
legt, að forráðamenn skólanna
sæju sér fært að útvega fullkomið
húsnæði fyrir slíka starfsemi.
Þrjár umsóknir bárust um upp-
töku í félagið. Tveir umsækjenda,
þau Jónína Karlsdóttir og Sig-
valdi Þorgilsson, uppfylltu skil-
yrði um inntöku í DSÍ, og voru
þau því tekin inn í félagið.
Samþykkt var að bjóða fyrrver-
andi danskennurum inngöngu í
félagið sem áhugafélagsmönnum.
Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir því, að fluttir hafa verið inn
erlendir kennarar, án þess að þeir
legðu fram vottorð um raunveru-
lega getu í dansi. Jafnframt vill
fundurinn þakka þann skilning,
sem félagsmálaráðherra hefur
sýnt málefnum félagsins.
Fundurinn lýsir óánægju sinni
yfir því, hve lítið heyrist og sést
frá Listdansskóia Þjóðleikhúss-
ins.
Stjórn félagsins skijpa:
Edda Seheving,
Heiðar Ástvaldsson.
Hermann Ragnar Stefánsson,
Ingibjörg Björnsdóttir,
Sigriður Ármann.
Bifreiðaeigendur
sprautum og réttum
fljét afgreiðsla.
Bifreiðaverkstæðið .
VESTURÁS H.F.
Súðarvog 30, sími 35740.
Sjómannasamband
Framhald af 7. síðu.
þannig, að hætt verði að verð-
leggja síld sérstaklega fyrir Suð-
ur- og Suðvesturland og í annan
stað fyrir Norður- og Austurland,
heldur verði unnið að því, að verð
leggja síld eftir fitu á líkan hátt
og gert er í Noregi, enda verði
rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
falið að annast reglulega fitu-
mælingar og komið verði á mæl-
ingarkerfi sem bæði kaupendur
síldar og seljendur geti treyst.
Þingið felur væntanlegri stjórn
sambandsins, að vinna að því að
þessu fyrirkomulagi verði komið
á, ef rétt sýnist að lokinni at-
hugun.
Frá önjggismála- og allshcrjar-
málanefnd.
5. þing S. S. í. minnir á fyrri
samþykktir sínar um áskorun
þesi|( |3fnis, að í samráði við
sjómannasamtökin verði ráðnir í
það minnsta tveir menn til skipa
eftirlitsins er hafi það verkefni
að framkvæma skyndiskoðanir í
skipum, sérstaklega með það í
huga að hafa eftirlit með því,
að öll öryggistæki séu í því lagi
er lög og reglur mæla fyrir um.
Þingið viðurkennir og þakkar
í þessu efni með því að fyrrver-
andi skipstjóri hefur verið ráð-
inn til eftirlits en skoðun þings-
ins hefur verið sú, að nauðsyn-
legt sé, að minnst tveir menn séu
ráðnir til þessa sérstaka eftirlits.
Fundurinn skorar því hér með
á viðkomandi ráðuneyti að sjá
svo um, að annar maður til við-
bótar verði þegar í stað ráðinn
til þess eftirlits og þá helzt mað-
ur með þekkingu á vélum.
í trausti þess að orðið verði við
þessum tiimælum ‘ og áskorunum
bendir fundurinn á, að til þess
eftirlitið verði að notum verði
fjárveiting til skipaeftirlits að
vera það rífleg að báðum þessum
mönnum sé fengin bifreið til nauð
synlegra ferðalaga.
Þingið skorar á stjórn SSÍ að
beita sér fyrir því að komið verði
upp trúnaðarmannakerfi samtak
anna í sem flestum verstöðvum
og á sem flestum skipum verði
eftirlitsmanni þessum til aðstoðar.
5, þing SSÍ skorar á milliþinga
nefndir þær sem nú fjalla um
öryggismál að flýta störfum sín
um sem mest og ítrekar í því sam
bandi fyrri samþykktir til þess
að samband megi hafa við íslenzk
fiskveiði- og flutningaskip á á-
kveðnum tíma sólarhringsins, svo
fylgst verði með hvar þáu eru
stödd hverju sinni, svo hjálp megi
berast hið fyrsta, ef slys ber að
höndum eða skipi hlekkist á.
Þingið harmar það sleifarlag
sem orðið hefir hjá Landssíma
íslands á því að útvega opnum
skipum og minni vélbátum hent
ugár og ódýrar talstöðvar og end
urtekur fyrri kröfur um að úr-
bætur á þessu sviði verði gerðar
hið fyrsta.
5, þing SSÍ skorar á skipaeftir
lit ríkisins, að fylgja fast eftir
reglum um hleðslu síldar í skip
og krefst þess að mál, sem rísa
vegna ofhleðslu verði tafarlaust
tekin til dóms af þar til skipuð
um dómstóli og vítir harðlega
þann drátt, sem orðið hefir á
rekstri þeirra mála.
Þá vill þingið benda á, að mjög
tímabært er orðið að eftirlit sé
haft með sjóbúnaði þeirra skipa,
sem láta úr íslenzkum höfnum,
það er að frá lestaropum sé geng
ið tryggilega svo og þilfarsfarmi.
mmm fg %.
5. þing SSÍ beinir þeim tilmæl
um til borgaryfirvaldanna í
Reykjavík, að þau beiti sér fyrir
byggingu sjómannastofu og verka
mannaskýlis á athafnasvæði hinn
ar nýju SUndahafnar í Reykjavík
og framkvæmdir hefjist það fljótt
að hún geti tekið til st^rfa um
leið og höfnin verði tekin í notk
un. Þá skorar fundurinn á Sjó
mannasamband íslands og Far-
manna- og fiskimannafélag ís-
lands,, að stuðla að því sameigin
lega að komið verði upp Sjómanna
stofu í stærstu síldarmóttökustööv
unum á Austurlandi svo og Vest
mannaeyjum og víðar, þar sem
mörg skip landa afla og eða hafa
viðlegu. Þá vill þingið þakka hafn
arstjórn Reykjavíkur fyrir útveg
un landganga við togarabryggj-
urnar en bendir á að eins þarf
að gera við þær bryggjur sem báta
flotinn liggur við í höfn.
Flytur erindi um
Suðaustur - Asíu
VÆNTANLEGUR er hingað til
lands næstk. fimmtudag, Banda-
ríkjamaðurinn Julius C. Holmes,
fyrrum ambassador. Hann mun
flytja erindi á almennum fundi
Stúdentafélags Reykjavíkur, sem
haldinn verður í Tjarnarbúð nk.
laugardag kl. 2 e. h. í erindi sínu
mun Mr. Holmes ræða ástandið
í Suðaustur-Asíu og skuldbinding-
ar Bandaríkjamanna þar. Að er-
indinu loknu mun fyrirlesari
svara fyrirspurnum.
Julius Holmes býr yfir mikilli
reynslu á sviði bandarískra utan-
ríkismála, en hann hefur gegnt
störfum i ýmsum löndum, m. a.
Frakklandi, Tyrklandi, Rúmeníu,
Englandi, Hong Kong og íran.
Mr. Holmes var í Suður-Viet-
Nam fyrir stuttu og er vel kunn-
ugur ástandinu þar.
Julius C. Holmes
ALÞÝÐUBLAÐIÐ vaniar blaðburðar-
fólk í eftirtalin hverfi:
Miðbæ, I. og n. Höfðahverfi, Álfheima
Hverfisgötu, efri og neðri, Vog@, Hringbraut,
Laugarneshverfi, Kleppsholt. Tjarnargötu
Laufásveg, Sörlaskjól, Miklubraut.
Lönguhlíð. Laueaveg neðvi, Laugavegur efri
Laugarás Skjólin Seltjarnarnes I.
■ Laugarteig Gnoðavog Eskihlíð
Alþýðublaðið Sími 14900.
Spilakvöld á fimmtudag
Fyrsta spUakvöld Alþýðuflokkfélags Rcykjavíkur á þessum
vetri verður n. k. fimmtudagskvöld, og hefst þá fyrsta þriggja
kvölda keppnin, en góð verðlaun verða veitt á hverju kvöldi,
auk verðlauna fyrir hverja keppni. SpUakvöldin í vetur verða
haldin í Lidó, þar sem Iðnó var orðið allt of lítið fyrir starf-
semina. Dansað verður á eftir hverju sinni og mun hljóm.
syeit Ólafs Gauks leika fyrir ðansi. Aðalstjórnandi spila-
kvöldanna verður Gunnar Vagnsson.
<»
<»
<|
c
!»
<»
<»
<»
RÖSKIR SENDISVEINAR
óskast hálfan eða allan daginn.
Talið við afgreiðsluna, sími 14900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
10 12. október 1966 ~. ALÞÝÐUBLAÐIÐ