Alþýðublaðið - 20.10.1966, Síða 3
Kirkjan safnar til
flóttamannahjálpar
Dagur Sameinuðu þjóðanna er
n.k. mánudag. Verður hann helg
aður vandamálum flóttamanna um
allan heim, en sérstaklega tíbets
kum flóttamönnum, sem lifað hafa
í sjö ár við ömurleg kjör án þess
að hafa nokkra von um að þau
batni og mun Flóttamannaráð ís
Harlan Cleveland
Ambassador talar
á Varðbergsfundi
Harlan Cleveland, ambassador,
fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá
Atlai^tshafsbandalaginu flytur fyr
irlestur á fyrsta hádegisverðar-
fundi Varðbergs á þessu starfs-
ári, en fundurinn verður næst-
komandi mánudag í Þjóðleikhús-
kjallaranum og hefst hann kl.
12.10.
Cleveland ambassador mun á
Tsafendas sendi
MacMillan bréf
Höfðaborg 19, okt. (NTB-Rept-
'er). — Óskiljanlegt bréf, s^tm
Demetrio Tsafendas skrifaði Har
old Macmillan fyrrverandi forsæt
isráðherra Breta 1959 var í dag
lesið upp i rétti í Höfðaborg þar
sem Tsafendas er ákærður fyrir
morðið á Hendrik Verwoerd for
sætisráðherra,
Verjandi lagði fram bréfið, sem
var skrifað á sjúkrahúsi í Lund
únum, til að rökstyðja þá staðhæf
ingu að Tsafendas sé ólæknandi
bugklofi og geti ekki talizt ábyrg
ur gerða sinna. Tveir kunnir lækn
ar hafa lýst yfir stuðningi við stað
bæfingu verjandans.
fundinum fjalla um samstarf Atl
antshafsríkjanna og helztu vanda
málin á því sviði. Harlan Cléve-
land er fæddur í New York 1918
og stundaði m. a. nám við Prin-
ceton háskóla í Bandaríkjunum
og nam einnig í Oxford í Eng
landi. Hefur hann sinnt margvís
legum störfum á sviði utanríkis-
mála fyrir land sitt, auk þess
sem hann hefur ritað bækur og
fjölmargar greinar um utanríkis-
mál. Árið 1961 skipaði Kennedy
forseti hann aðstoðar utanríkis-
ráðherra, en 1965 útnefndi John-
son hann til að vera ambassador
Bandaríkjanna hjá Nato.
lands gangast fyrir fjársöfnun er
renni til hjálpar þessu fólki.
Félag Sameinuðu þjóðanna mun
að venju gangast fyrir fræðslu
erindum um störf samtakanna og
þau verða flutt í ýmsum skólum
Á sunnudaginn verður í Ríkisút
varpinu þáttur um Flóttamanna
stofnun Sþ,
Þá hefur Sigurbjöm Einarsson
biskup sent öllum prestum og sókn
arnefndum landsins eftirfarandi
bréf:
Eins og yður er kunnugt hefur
íslenzka kirkjan tekið nokkum
þátt í hjálparstarfi fyrir flóttafólk
Ein afleiðing siðustu heimsstyrj
aldar var sú, að fjöldi fólks varð
landflótta og hefur síðan lifað við
'hin bágustu kjör. Alþjóðleg sam
tök kirkna hafa leitast við að
veita þessu nauðstadda fólki að
hlynningu og hjálp og hefur kirkja
íslands lagt þar til ofurlítinn
skerf.
Fyrir atbeina Sameinuðu þjóð-
anna er nú verið að hrinda af
stað víðtækri fjársöfnun um alla
Evrópu til hjálpar flóttafólki. Hef
ur 24, okt. verið valinn sem fjár
söfnunardagur og er svo einnig
hér á landi. íslanzka kirkjan vill
af fyllsta megni styðja þessa við
leitni. En það hefur orðið að ráði
Framhald á 14. síðu.
Fréítir í stuttu máli
DJAKARTA: Subrandrio fyrrum
utanríkisráðherra, sem leiddur
hefur verið fyrir rétt, igefið að sök
að hafa tekið þátt í byltingartil
rauninni í Indónesíu í fyrra, játaði
í gær, að honum hefði orðið á
mistök í utanrikisstefnu sinni. En
hann sagði að núríkjandi stjóm
hefði einnig gert skyssur.
PARÍS: — Forsætisráðherra Sov
étríkjanna, Aleksei Kosygin.
Leonid Bresjnev, aðalritari komm
únistaflokksins, og Nikolai Pod-
gorny koma sennilegar í opinbera
heimsókn til Frakklands einhvem
tíma í vetur eða vor samkvæmt
góðum heimildum. Tími heimsókn
arinnar hefur ekki verið ákveð-
inn.
MOSKVU: — Um 40 kommúnista
flokkar hafa fordæmt menningar
byltinguna í Kína, hermir hið al
þjóðlega kommúnistarit „Vanda-
mál friðarins og sósíalismans”. Rit
ið líkir stefnu Kínverja við stefnu
Hitlers og mennli^garbyltinguna
við Gyðingaofsóknir nazistatímaitS
TEL AVIV: — Þrír Arabar voru
felldjr og sá fjójrði tekinn til
fanga eftir að þeir höfðu særzt
í vopnaviðskiptum við ísraeiskan
varðflokk í nánd við landamæri
Líbanons í gær, að því er talsmað
ur ísraelshers skýrði frá í gær
kvöld. Einn ísraelsmaður særðist
alvarlega og lézt skömmu siðar.
NýJU DELHI: — Tito Júgóslavíu
forseti og Nasser Egyptalandsfor
seti koma til Nýju Delhi í dag og
munu ræða við Indira Gandhi, for
sætisráðherra Indlands um heims
ástandið.
WASHINGTON: — Kínverjar
vinna að undirbúningi f jórðu kjarn
orkutilraunar sinnar, en bandarísk
ar heimildir herma að ósennilegt
sé að tilraunin verði gerð meðan
á ferðalagi Johnsons forseta til
Kyrrahafs- og Asíulanda stendur.
Sjómannaheimilið á
Siglufirbi lagt niður
Bergen — NTB
Ákveðið liefur verið að leggja
niður norska sjómannaheimilið á
Siglufirði og selja húsið sem það
er starfrækt í. Norska sjómanna
'heimilið hefur verið á Sigluf. í 50
ár. Ástæðan fyrir að heimilið
verður lagt niður er að norsk
síldveiðiskip koma nú orðið sjald
an til Siglufjarðar og því ekki á
Aðalfundur Alþýðuflokksfél. Hafnarfj:
Þórður Þórðarson endur-
kjörinn formaður félagsins
Aðalfundur Alþýðufloikksfélags
Hafnarfjarðar var haldinn 10. okt.
sl. Þórður Þórðarson var endur
kjörinn formaður félagsins en því
starfi hefur hann gengt í fjölda
lára. Aðrir í stjórn eru: ' Ólafur
Kristjánsson. Eyjólfur Guðmunds
eon, Egill Egllsson, Ingvi R. Bald
vinsson, Hörður Zophaníasson og
Stefán Rafn,
Að aðalfundarstörfum loknum
hófust almennar umræður um bæj
armál. Voru þær bæði almennar
og fjörugar. Á fundinum ríkti ein
hugur og samhugur um störf vetr
arins bæði á sviði bæjarmála og
þjóðmála
stæða til að reka það áfram.
Þegar sjómannaheimilið á Siglu
firði verður lagt niður verður að
eins eitt norskt sjómannaheimili á
íslandi. Er það á Seyðisfirði og
verður það rekið áfram. í athug
un er að í stað sjómannaheimilis
ins á Siglufirði verði stofnað ann
að á Shetlandseyjum, Einnig er í
athugun hjá sjómannatrúboðinu að
gera út sérstakt skip sem útbúið
verður eins og sjómannaheimili go
verður það flutt á milli hafna eft
ir því sem þörf er á hverju sinni.
SYIfl MJOLK • MEfl AVAXIABRAGfll
FuHtrúa-
ráösfundur
Stjórn fulltrúaráðs Alþýðu-
flokks'ins boðar hverfisstjóra
og trúnaðarmenn til fundar
laugardaginn 22. okt. kl. 3 í
Iðnó uppi. Á fundinum mæta
menn úr þingflokknum og fram
kvæmdanefnd flokksins og
svara fyrirspurnum fundarl
manna.
20. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐÝÐ 3