Alþýðublaðið - 30.10.1966, Side 3
30. október 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Óvissa ríkir í Bonn:
Fer Erhard frá
Bonn 29. 10. (NTB-Reuter).
Leiðtogar kristilega demókrata
flokksins á Vestur-þýzka sam-
bandsþiniginu iiéldu fund með sér
í dag til að ræða ástand það,
sem skapazt hefur vegna ákvörð
unar frjálsra demókrata um að
slíta stjórnarsamvinnunni. Lud-
wig Erhard kanzlari var ekki við
staddur fundinn. Hann hélt frá
Bonn snemma í morgun til Hess
en þar sem hann heldur nokkrar
ræður fyrir flokk sinn í sambandi
við fylkiskosningarnar 6. nóvem
ber.
Erhard kanzlari stendur and-
Aððlfundur
á Eyrarbakka i|
Aðalfunflur Alþýðuflokksfé-
Hags Eyrarbakka verður hald
'inn í Fjölni á Eyrarbakka í
idag kl. 4 e.h. Dagskrá fund
iarins: Venjuleg aðalfundar-
► störf og kosning á flokksþing
J Alþýðuflokksins. — Alþýðu-
l flokksmenn eru hvattir til að
imæta vel og stundvíslega.
spænis nær óleysanlegum vanda
vegna fjárlagafrumvarps stjórnar
innar, en ágreiningurinn um frum
vþrpið leiddi til þess að frjálsir
demóki-atar sögðu sig úr stjórn
'injni. Sambandsráíðið, efri deild
þingsins, felldi frumvarpið í gær
og ólíklegt er, að! Erlhard fái
þingið til að samþykkja frumvarp
ið.
Góðar heimildir herma. að Er
hard geri sér vonir um að tak
ast megi að fá frjálsa demókrata
Framhald á 14. síðu.
Heldur tvenna
tónleika ■
Shura Cherkassky píanóleikari
frá Bandaríkjunum heldur tón-
leika fyrir styrktarfélaga Tónlist
arfélagsins n.k mánudags- og
þriðjudagskvöld kl. 7 í Austurbæj
arbíói. Á efnisskránni eru verk
eftir Bach, Mozart, Brahms og
Liszt o. fí.
Shura Cherkassky er heimsfræg
ur píanóleikari sem heldur tón
leika næstum árlega í stórborgum
heimsins, bæði austan hafs og vest
an. Hann kom hingað fyrir rétt
um 12 árum og hélt þá tónleika
fyrir Tónlistarfélagið og lék einn
ig með Sinfóníuhljómsveitinni og
eru þeir tónleikar mörgum minn
isstæðir. i«t«JlÍÍIÉlfc
Kommúnistar í
Japan fylgja
óháðri stefnu
Tokío 29. 10. (NTB-Reuter).
Japanski kommúnistaflokkurinn
ákvað einróma á tíunda ársfundi
sínum í dag að fylgja óháðri stefnu
í hugmyndakerfideilu Rússa og
Kínverja. Um það bil helmingur
flokksmanna, sem fjandsamlegir
eru Kínverjum, voru nýlega rekn
ir úr flokknum. Á fundinum var
gert hlé á umræðum um tíma
þar sem því var haldið, fram að
fundizt hefðu faldir hljóðnemar
í fundarsalnum. Sagt var að lög
reglan eða öryggisþjónustan hefði
komið hljóðnemum fyrir en það
hefur verið borið til baka.
Saigonráðherra
segir af sér
Saigon 29. 10. (NTB-Reuter).
Efnahagsmálartáðherra Suður-
Vietnam, Au Truong Thanh, einn
virtasti ráðherra Ky-stjórnarinnar
sagði formlega af sér í ,dag. Hann
baðst lausnar fyrir tíu dögum
ásamt sex öðrum ráðherrum, en
féllst á að gegna störfum unz
Manilaráðstefnaunni um Vietnam
væri lokið T\'eir hinna hafa dreg
ið lausnarbeiðnir sínar til baka
en óvíst er um afstöðu hinna ráð
herranna fjögurra.
Bandarískur formælandi sagði
í dag, að sprenging sú sem varð í
hinu stóra vopnabúri Bandaríkjá
manna um 20 km. fyrir norðan
Saigon í gær stafaði af skemmd
arverkum Vietcongmanna. Menn
úr öryggislögreglunni lentu í
kúlnahríð þegar þeir rannsökuðu
nokkra smáelda milli vopnaskemm
anna. Skömmu síðar var skotið
sprengjuvörpukúlum inn á svæð
ið og þá varð sprenging.
Kunnur togaraskipstjóri í viötali við Viking:
Vill fá tíu skuttog-
ara til Norðuriands
í ATHYGLISVERÐU viötali,
sem birtist í síðasta tölublaði
Sjómannablaðsins Víkings, er
rætt við einn kunnasta togara-
skipstjóra okkar, Auðun Auð-
unsson um íslenzka togaraiítgerð
í dag. Fjölmargt athyglisvert
kemur fram í þessu viðtali. meðal
annars sagir Auðunn þar um at-
vinnumálin á Norðurlandi:
— Ef við íhugum erfiðleikana
í atvinnumálum Norðurlands, þá
m.vndu tíu skuttogarar, 500 tonna
skip, áreiðanlega bæta mikið úr,
og ég hef þá í huga að láta skip
þessi stunda veiðar á fiskimiðun-
um fyrir Norðurlandi. Einnig
mætti láta skipin veiða fyrir Suð-
urlandi og Austurlandi, þegar
fiskur héldi sig þar. Auk þess
gætu svona skip vel farið til
Austur-Grænlands á vissum árs-
tímum.
Aðstoö USA viö
Thailand aukin
Bangkok 29. 10 (NTB-Reuter)-.
Johnson forseti hefur heitið því
að auka hernaðaraðstoð Bandaríkj
manna við Thailand um þriðjung
að því er Thanom Kittikachron
forsætisráðherra tjáði blaðamönn
um eftir að hafa rætt við John
son forseta í morgun. Dean Rusk
utanríkisráðherra var viðstaddur
fundinn,
Ekki er vitað hve hernaðarað
stoð Bandaríkjanna við Thailand
er mikil nú, en síðustu tölur eni
frá 1963 og þá nam aðstoðin 68.5
milljónum dollara. Núverandi
efnahagsaðstoð nemur 43 millj.
dollara.
Að sögn Kittikochorns forsætis
ráðherra snerust viðræðurnar
fyrst og fremst um tilraunirnar
til að hraða þróuninni á lands
byggðinni í Thailandi og efnahags
legar þróunaráætlanir.
Johnson forseti endurtók í dag
áskorun sína til Hanoistjórnarinn
ar um að binda endi á styrjöld
ina í Vietnam og setjast að samn
ingaborði. Hann sagði, er hann
Þúsund missa heimili sín
Einn maður beið bana og um 1000
misstu lieimili sín í jarðskjálfta
í þorpinu Agrinion í Vestur-Grikk
landi í dag. 11 manns slösuðust.
í 10 þorpum eyðilögðust 80% allra
húsa. 300 metra löng brú hrundi
og hafa því samgöngur við Norð
vestur-Grikkland rofnað.
var gerður'heiðursdoktor háskól
ans í Bangkok. — Við skulum
leggja niður vopnin og setjast að
^amnipngabor'ðinui. Við skulum
hefja uppbyggingarstarf. Þetta er
það sem okkur er ætlað að gera
og þetta er það sem af okkur
er krafizt á vorum tímum.
Forsetinn sagði, að Bandaríkja
menn gætu verið stoltir af efna
hagsaðstoð þeirri, sem þeir veittu
öðrum þjóðum Þótt Bandaríkja
menn bæru þungar byrðar vegna
Vietnamstríðsins vonuðu þeir og
væntu þess að þeir gætu ekki ein
ungis haldið áfram að veita slíka
aðstoð heldur aukið hana.
— En er nokkur afli fyrir Norð-
urlandi?
— Já, oftast er þarna sæmileg-
ur afli frá því í marz, fram í
ágúst-september ogjiska Englend-
ingar á þessum slóðum með góð-
um árangri, enda eru þeir að
heita má einir um hítuna. Þá er
þarna talsverður karfi, sem ekki
verður nýttur öðruvísi en af
frystihúsunum. Og þá kemur sér
Vel vegakerfið, sem verið er að
ljúka við á Norðurlandi og teng-
ir saman Siglufjörð, Ólafsfjörð
Framhald á 14. síðu.
Þing iðnnema-
sambandsins
24. þing Iðnnemasambands ís
lands var sett í Tjarnarbúð í
fyrradag af varaforseta sambands .
ins, Helga Guðmundssyni. Þingfor
setar voru kjörnir þeir Hannes Ein
arsson, Keflavik; Ingi Torfason,
Reykjavík; og Páll Pálsson frá Ak
ureyri. Samþykkt var að taka þrjú
'ný félög í sambandið. Kjöirnir
voru starfsmenn og nefndir. Ávörp
við þingsetningu þessa fluttu Ör
lygur Geirsson, forseti Æskulýðs-
sambands íslands og Keld Ander
sen frá Faglig Ungdom í Kaup
mannahöfn. Þingið liélt áfram í
gær og því lýkur í kvöld.
Skákmótið á Kúbu:
Töpuðu fyrir Tyrkjum
I þriðju umferð undanrása
Olympíuskákmótsins á Kúbu töp
uðu íslendingar fyrir Tyrkjum.
Hlutu íslendingar IV2 vinning
en Tyrkir 2M: vinning.
Friðrik vann sinn mótstöðu
mann og Freysteinn gerði jafn
tefli. Guðmundur Pálmason og
Ingi R. töpuðu sínum skákum
Önnur úrslit í þeim riðli sem
ísland er í fóru þannig að
Mongólía og Indónesía eru
biðskákir, og Mexíkó tapaði fyr -
ir Júgóslavíu, IV2 og 2V2.
Teflt er í sjö riðlum á mót
inu og eru eftirtalin lönd efst
með Vi vinnig hvort og þrjár
hvert í sínum riðli eftir þriðju
umferð. Sovétríkin eru efst í
1. riðli. Júgóslavía í öðrum
riðli, Danmörk, Tékkóslóvakía
Ungverjaland og Rúmenía,