Alþýðublaðið - 30.10.1966, Page 16
Orðabók háðskólans
BARNAPÍA: Fermingarstelpa sem tekur borgun fyrir aS horfa á
sjónvarp.
- - HEIMILISLÆKNIR: Sjaldgæfari en geirfuglinn nú orðiS.
4 TÖNLIST: Viðurkenndur hávaði.
UPPÞVOTTAVÉL: Sjá EIGINMAÐUR.
VETRARVEÐUR: Eins og sumarið ætti að vera.
Þegar lögmalin starfa öfugt
Sá spaki
segir...
Ætli sjónvarpið
verði ekki kallað sjóð
varp, þegar kostnaður
inn við það kemur í
ljos?
Skopmynd
vikunnar
Brezka stjórnin er
nú farin að þreifa
fyrir sér aftur um
inngöngu í Efna-
hagsbandalag Evr-
ópu. Um það birt-
ist þessi mynd ný-
lega í The Times
og þar fylgdi eng-
inn texti með . En
ef myndinni væri
gefinn skýringar-
texti, hlyti hann
að verða á þessa
leið: Þegar fjallið
vill ekki koma til
Múhammeðs. . , .
þeir aldrei stillt sig, — nema
á bæjarstjórnarfundum, þegar
áheyrendur eru ekki aðrir en
hinir bæjarfulltrúarnir. Annars
er Hafnarfjörður um margt
merkilegur bær. Þar var stjórn-
leysi langtímum saman á síðast-
liðnu sumri, og kvartaði þá eng-
inn maður um sinn hag, en nú
er búið að koma þar á „traustri
og samhentri stjórn” eins og
það heitir á pólitíkusamáli, og
þá er samstundis búið þar til at-
vinnuleysi, mitt í öllu góðærinu.
Frumvarp kom fram á þingi
um að gera áfengislöggjöfina
enn flóknari, og hefur þó sum-
um þótt hún vera nógu flókin
fyrir. Ef svo heldur áfram sem
liorfir, verður bráðum að taka
áfengislöggjöfina upp sem
kennslugrein í skólum landsins,
og verður það sjálfsagt margra
ára nám, og þó hætt við að
mörgum takist aldrei að læra
það efni til hlítar. Og þá verð-
ur sjálfsagt gripið til þess í
raunurum, að eiginlega er það
einfaldasta verk í heimi að
taka tappa úr flösku.
Hundafár kom upp og breidd-
ist ört út, svo að drepa þurfti
hunda unnvörpum í mörgum
sveitum. Norðanblöðin sögðu
að fárið hefði líka lagzt á fjár-
eigendur, en það fylgdi ekki
með, hvort gripið hefði verið til
sömu aðferðar gagnvart þeim.
Annars höllumst við á Baksíð-
unni fremur að því að þarna sé
aðeins á ferðinni venjulegt norð
lenzkt stærilæti, norðlenzk sókn
til frægðar og frama. Það var
nefnilega engin tilviljun, að
þegar skýrt var frá því um dag-
inn, að Akureyringar vildu fá
sjónvarpsloftnet, sem allra
fyrst, var það tekið fram, að
loftnetið þyrfti að vera stórt.
Blöðin liafa verið með svipuðu
sniði og venjulega og prentvill-
ur með líku móti og vant er.
Alþýðublaðinu varð það á í viku-
byrjun að skrifa Dorothy Gray í
staðinn fyrir Dorothy Gray í fyr-
irsögn á frétt um snyrtivarning,
og vakti þessi villa óskipta
gleði Morgunblaðsstorksins, sem
nú varð loks fyrir þeirri óvæntu
reynslu, að annað í blöðunum
yrði mönnum aðhlátursefni en
ritgjörðir hans.
Pólitík hefur verið með venju-
bundnum hætti. Alþýðubandalag-
ið, sem svo kallar sig nú, hóf
landsfund nú fyrir helgina, og
er enn ekki vitað hvernig geng-
ur í þeim herbúðum að bjarga
landi og þjóð. En líklegast má
tii sanns vegar færa um þann
fund það sem Þjóðviljinn í gær
segir í rammaklausu á forsíðu
ofan við frásögnina um setningu
landsfundarins. í þessum ramma
segir nefnilega orðrétt: Árang-
urslaus sáttafundur í gær!
Við sjónvarpið
Viff sjónvarpiff sit ég löngum
meff sjáöldur þanin og víff
og horfi á flest sem þaff flytur
til fróffleiks og skemmtunar lýff.
Og jafnhrifinn er ég af öllu
sem okkur á skerminum flyzt.
Ég drekk í mig fréttir og Flintstone
og franska kvikmyndalist.
Býsna hrifinn af Bjarna
Ben ég um daginn var;
og ekki var Eysteinn síffri
er hann talaði þar.
Og þarna eru fræffsluþættir
um þjóffir og lönd og menn
ofi franska fornaldarkónga,
— ein franska kvikmyndin enn!
Eftir er enn sá bezti
sem öllu kippir í lag,
sjálfur Simon Templar
er sigrar meff glæsibrag.
Meffan aff veröldin veltist
og veitir oss náffartíff,
við sjónvarpiff skal ég sitja
meff sjáöldur þanin og víff.
SÍRA SIGMUNDUR.
Vikan hófst
með því að
mjólk lækk-
aði í verði í
fyrsta skipti um
árabil og for-
sætisráðherra
fór til Sví-
þjóðar í opin-
bera heimsókn. Erlander lands-
faðir Svía um tveggja áratuga
skeið varð nefnilega fyrir áfalli
um daginn og tapaði mjög fylgi
í kosningum, svo að nú hefur
hann gripið til þess ráðs að sýna
Svíum, hvernig forsætisráð-
herra úr borgaralegum stjórn-
málaflokki lítur út. Engin skýr-
ing hefur hins vegar fengizt á
því hvers vegna mjólkin lækk-
aði, og er liklegast að þar sé
um að ræða eitt þeirra sjald-
gæfu fyrirbæra, sem kallast
kraftaverk, en þau eru í því fólg-
in, að náttúrulögmáiin taka allt
í einu upp á því að starfa öf-
ugt.
í Hafnarfirði var haldinn
borgarafundur snemma í vik-
unni til að skamma bæjarstjórn-
ina, en auðvitað fór samt svo,
að bæjarfulltrúarnir Sjálfir töl-
uðu þar manna mest og skömm-
uðu hver annan. Um það geta
Frétta-
yfiriit
vikunnar