Alþýðublaðið - 27.11.1966, Page 6

Alþýðublaðið - 27.11.1966, Page 6
27. nóvember 1966 -- Sunnudags ALÞÝOBLAÐl? 6 {,: I ✓ ; Smásaga , eftir NOEL AYLIFFE f AHMED SALEH yfirlögregluþjónn út fyllti síðasta dálkinn í stöðvardagbókinni, undirritaði skýrsluna og hallaði sér aftur í stólnum og dæsti. Naji lögregluþjónn, skrifarinn, tók bókina af borði yfirlögreglu þjónsins og fór aftur á sinn stað í skotinu frammi við dyrnar á herberginu. Yfirlög regluþjónninn horfði gagnrýnum augum á litla lögregiustöðina, lét augun renna yfir velsmurða rifflana í horninu og læstan skápinn, sem skotfærin voru í. Síðdegissól in gægðist skáhallt inn um dyrnar og tindr aði á spegilfægðu steingólfinu. Kiukkan á veggnum sýndj 17,30. og Ahmed yfirlög- reglúþjónn fann lyktina af kvöldverðinum, sem'verið var að sjóða í skálanum bak við stöðina. Hann þurfti aðeins að bíða í hálf tíma enn, þá gat hann látið Mustafa lið þjálfa, þann feita drjóla, taka við, farið úr svitastorknum einkennisbúningnum og fengið sér hressandi steypibað. Hann los aði um beltið og teygði vongóður úr sér. Allt í einu þaut einhver inn af rykugri götiaini og stóð í rökkvuðu herberginu og nuddaði augun. Annar kom á eftir, og báð ir gqngu þeir að borðinu og töluðu óðamála við ákrifarai n. Eftir nokkur orðaskipti sne ri Npji iögregluþj. sér við og kallaði á yf- irlöjregluþjóninn. — Þetta er eitthvað fyr ir þíg, yfiriögregluþjónn. Það hefur ein hver. verið drepinn. Ahmed Saieh spratt á fætur og gekk frani að borðinu. — Komið þið sælir, sagði hann formlega. — Hver hef ir verið drepinn? — Ég sver við Aailah, sagði sá sem fyrr kom inn, — það er satt. Hún er dáin, og maðurinn líka. . . Hinn mafurinn greip fram í: — Þau liggja á götinni og það er blóð alls stað ar. . . . — Ali tók riffilinn sinn . . Sagan korn smám saman, fyrst frá öðr um síðan fr; hinum, alveg eins og í gaman mynd, fannst yfirlögregluþjóninum. — Uppi við gamla turninn. . . — Og hann ógnar öllum, sem koma ná- lægt. . . . — Ég sver við Allah, hann skýtur á fólk. . . . — Hann er sjálfsagt óður, en samt. . . — Hann hefur líka fulla ástæðu til þess.. — Þegið þið. Ahmed yfirlögregluþjónn var byrstur til þess að stanza málæð- ið í hinum. — Hvað heitir þú? spurði hann og benti á fyrri manninn. — Þú þekkir mig yfirlögregluþjónn. Ég er Abdullah ,sonur Feisals, og þetta er Mohamed bróðir minn við . . . — Ég þekki þig, en það verður að fara rétt að þessu. Svona, hvað heitirðu? Hann benti Jögregluþjóninum að. skrifa upplýs ingarnar niður. — Ég heiti Abdullah, sonur Feisals, og þetta er. . . — Andartak, andartak. Ég get ekki gert nema eitt í einu. Loks tókst yfirlögregluþjóninum að fá fram með spurningum og svörum alla söguna, að svo miklu leyti sem bræðurnir kunnu skil á henni. Þeir áttu kaffihús, þar sem göturnar tvær mætast við torgið, og fyrir tíu mínútum þegar fyrstu gestirn ir voru að koma til að fá sitt venjuléga síðdegiskaffi og kaupmennirnir opnuðu búðirnar til kvöldsölu hafði eitthvað geng ið á í húsinu handan við götuna. — Ekki í húsinu beint á móti, skiljið þér, heldur uppi í hliðargötunni til hægri. — Hús hvers var það? — Hús Ali bin Jussufs, mannsins sem ek ur vörubílnum til Damaskus og Beirút. Naji lögregluþj. ritaði nafnið niður án þess að haggast,- en yfirlögregluþjónninn íeit snöggt upp. —Hvað gerðist svo? spurði hann. Það virðist hafa heyrst óp og kona vein aði. Síðan heyrðust brak og brestir eins og verið væri að brjóta, húsgögn í mask og svo héyrðust aftur óp og skrækir. — Það var eins og þúsund blóðþyrstir djöflar hefðu vaknað upp í einu, skaut Mohamed inn i. Og rétt lijá undrandi kaffimönnunum kom nú allt í einu hlaupandi maður, sem var nakinn nema hvað ullarteppi flaksaðist á eftir honum. Um leið og hann stanzaði og leit í allar áttir í hliðargötunni til að sjá, hvert bezt væri að flýja, kvað við skot og maðurinn kastaðist fram yfir sig í göt una, en blóðblettur breiddi liægt úr sér á teppinu. Strax eftir skotið rak konan upp nýtt vein, og síðan kom eiginkona Alis bin Juss ufs, slæðulaus og vægast sagt ósiðsam- lega klædd og hljóp að líkinú og kastaði sér yfir það grátandi og ákallandi Allah. Meðan mannf jöldinn horfði á kom maður gangandi hægt niður hliðargötuna að snökt andi konunni og líkinu. Það var Ali bin Jussuf, vörubílstjórinn, og hann hélt á gamla herriflinum sínum. Síðan lyfti hann rifflinum upp stjarfur í augum og hlóð hann. Dauðaþögn ríkti, svo að mann fjöldinn heyrði þegar tómt skothylkið féll á jörðina og smellinn þegar hann lokaði rifflinum aftur. Síðan stakk hann riffil- lilaupinu í síðuna á konunni, æpti: — skækja, og hleypti um leið af. Áður en berg málið af skothvellinum var dáið út og áður en áhorfendur fengju nokkuð að gert, var hann hlaupinn af stað upp skraddaragöt una í átt til gamla vatnsturnsins, sem stendur eins og skraut á klettunum sunn an við bæinn. Yfirlögregluþjónninn stikaði yfir að vopnastandinu og valdi sér riffil. Hann opnaði veggskápinn og tók upp skotpakka Siðan læsti hann skápnum vandlega aftur og stakk lyklinum og skotunum í vasa sinn. Hann skipaði Naji lögregluþjóni stuttlega að taka við stöðinni og benti bræðrunum að koma með sér og hljóp út í dagsbirtuna á götunni fyrir utan. í skjóli undir pálmaviði hjá stöðinni stóð opinn jeppi með bílstjóra sofandi í framsætinu. Yfirlögregluþjói ninn hristi hann til og hrópaði: — Að turninum, flýttu þér. Bræðurnir klifruðu upp í aftursætið á jepþanum og yfirlögregluþjónninn settist með riffilinn milli hnjánna í framsætið við hliðina á bílstjóranum. Hann nuddaði stýr urnar úr augunum, setti hreyfilinn í gang og fór af stað með rikk, svo að Mohammed sem allt af var örlítið aftar en bróðir hans liafði næstum því kastast niður úr sætinu. Jeppinn hvarf í rykmekki niður götuna, bílstjórinn stýrði með ann arri hendi, en hina hafði hann stöðugt á flautunni. Þeir koma að turninum og sáu Ali bin Jussuf liggja uppi í honum með riffil inn. Yfirlögregluþjónninn hljóp út úr bíln um og staðnæmdist neðan við turninn. — Komdu niður, skipaði hann. —Ég skal koma, Ahmed. Ég kem nið ur og ég ætla að fara langt í vestur. Um leið og hann talaði kleif hann niður stiga innan í turninum og birtist í hálfföllnum dyrunum. í heila mínútu stóðu þeir augliti til aug litis í þrjátíu skrefa fjarlægð frá hvorum öðrum. Hvorugur þeirra sagði neitt. Þeir vissu báðir, að þeir voru búnir að segja síðasta or'öið og ef annar livor hreyfði sig þýddi það dauðann fyrir annan hvorn þeirra. Yfirlögregluforinginn var í snotr um einkennisbúningi og hélt rifflinum við hlið sér. Vörubílstjórinn, sem var klæddur í léreftsbuxum og blettótta rú iótta skyrtu og hélt á rifflinum fyrir framan sig, var ekki síður ábúðarmikill. — Þú verður að gera skyldu þína, sagði hann. — Og ég verð að horfast í augu við örlög mín. Vertu sæll. Ahmed. Guð veri með þér. Hann snéri sér við og gekk hægt af stað inn í hlýja geisla kvöld Framhald á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.