Alþýðublaðið - 11.12.1966, Side 2

Alþýðublaðið - 11.12.1966, Side 2
2 ''AVAViAAM ’.wav.wM W&MUT; ■A».wily AV SáM i^ér hvilist! Sparið tíma, erfiði og öðlist óteljandi gleðistundir \ með því að.nota símann Það er mikil ánægja fólgin í því, að geta hvenær sem er'grip- ið símann, rabbað við vini og skyldmenni hvort heldur það er nær eða fjær, handan götunnar eða á yztu nesjum um áhuga- og dægurmál. Það veitir yður hvíld og tilbreytingu í önnum' dagsins. Síminn er eitt mesta menningartæki nútímans. Verk-. svið hans eru óteljandi. Siminn er ómissandi! Jólin nálgast með öllu sínu amstri og erfiði jafnframt gleði og hamingjustundum. — JólainnkaUpin fara í hönd, þá er síminn hinn rétti tengiliður MILU YÐAR OG OKKAR C£á££ st IXcttcUL j Skriffinnska og enn meiri skriffinnska Havana 10. 12. (NTB-Reuter) Barátla sú, sem Castro íorsæt isráðherra hóf gegn skrif- finnsku hefur kostað alltof mikla skriffinnsku. í ræðu sem Castro hélt i gærkvöldi sagði hann, að af nema yrði skriffinnskuna í bar áttunni gegn skriffinnsku, þar sem baráttan einkenndist af skriffinnsku. Hann benti á í þessu sambandi á allar nefndir þæ.r, sem allar ríkisstofnanir hefðu skipað til að koma á vinnuliagræðingu í baráttunni. Hann sagði að afnema yrði skrif finnskuna í þessum nefndum. ■ „Ognarstjórnar" krafizt í Kína MOSKVU og HONGKONG, 10. des. (NTB-Rcuter). Rauðu varðliðarnir i kínverska fylkinu Szechwan hafa kraflzt þess að innleitt verði „tímabii rauðrar ógnarstjórnar" til þess að hreinsa andstæðinga Mao Tse- tungs í fylkinu, að sögn sovézku fréttastofunnar Tass Fréttaritari Tass segir, að Rauðu varðliðarnir mæti harðri mótspyrnu í Szech- wan og annars staðar í Suðvest- ur-Kína. Japanska fréttastofan Kyodo hermir að Rauðir varðliðar úr leikskóianum í Peking hafi hand tekið fv. borgarstjóra Peking, Peng Chen, aðfaranótt 4. des- ember og komið á fót dómstól, sem dæmdi í máli hans. Varðlið arnir óku í almenningsvögnum til heimilis Peng Chens um há nótt, klifruðu yfir girðingu um- hverfis húsið og fengu samþykki varðanna við húsið til að nema Peng Chen á brott. Nokkrir aðrir kunnir Kínverjar voru handteknir samtímís, en varðliðarair létu til skarar skríða þegar kona Mao Tse-tungs hafði fordæmt Peng Chen. Réttarliöld in tóku tvo klukkutíma, en ekki er vitað hvort dómur hafi verið Framhald á 15. aíðu. 11. desember 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐ10 Þórshöfn Færeyjum, 10. des, Einkaskeyti tii Alþýðublaðsins. Fimmtudaginn 8. desember kom lögþing Færeyja saman til fundar, sem jafnframt var fyrsti fur.dur þingsins eftir lögþings- kosningarnar 8. nóvember sl. A þessurn fundi var kosinn þing forseti, sem hér í Færeyjum er raunar kallaður þingformaður. Þá voru kjörbréf einnig rannsökuð og kjörbréf hinna nýju þing- manna, sem kosningu hlutu og voru samþykkt. Næstu daga fara svo fram um ræður milli flokkanna um mögu lega stjórnarmyndun og stjórn- arsamvinnu. Frá því að úrslit kosninganna urðu kunn hafa flokksleiðtogar lítið eða ekkert ræðst við um stjórnarmyndun, og heyrist sagt að mikið beri á milli og fremur sé ólíklegt að samkomulag náist. Fjárlög ársins 1966-1967 falla úr gildi 1. april næstkomandi og verður st.iórnar- myndun að vera lokið innan þess tíma Ef stjórnarmyndun hefur þá ekki tekizt verður að efna til nýrra kosninga fyrir 1. apríl og telja menn líklegast að sú munl verða raunin. Franskur drengjakór kemur hingað um jólin Víðförull og frægur franskur drengjakór kemur til Reykjavíkur um hátíðirnar og kemur hingað gagngert frá Frakklandi tii þess að lialda tónleika. Kórinn synigur hér í Landakotskirkju og Háskóla bíói og annas Pétur Pétursson fyrirgreiðslu. Þetta er drengjakórinn ,,Les Rossignolets de Saint- Martin“, eða Hinir Litlu Næturgalar heil ags Marteins, frá Roubaix. Það er franskur iðnaðarbær með um 111.000 íbúa, skammt frá belgísku landamærunum. Kórinn var stofn aður árið 1952 af ábótanum Paul Assemaine. Stjórnandi Litiu Næt urgalanna nú er J.M. Braure ábóti og hefur verið tvö undanfarin ár og kennari hans og leiðbeinandi. í kórnum eru 35 drengir og ungir menn á aldrinum 9 til 21 árs en að jafnaði eru yngstu drengirnir ekki með á löngum ferðalögum kórsins. Litlu Næturgalarnir syngja jöfn um höndum sígilda franska söngva þjóðlög frá ýmsum löndum, póli fónískar mótettur, negrasálma og verk eftir gömlu meistarana eins og Bach, Scarlatti, Rameau, Mozart og Palestrina. Einnig verk eftir tónskáld, sem standa nær okkar tíma, eins og Grieg og Ravel.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.