Alþýðublaðið - 11.12.1966, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 11.12.1966, Blaðsíða 5
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. desember 19G6 5 Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnar- fulltrúi: Eiður Guð'nason. Ritstjóri Sunnudagsblaffs: Kristján Bersi Ólafsson. — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasúni: 14906. Affsetur Alþýðuhúsiff viff Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiffja Alþýffu- ÆceEGöi ímm® blaðsins. — Áskrlitartgj. kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakiff, ROTHOGGIÐ ERKI ER að efa, að almenningur hef- ur fengið meiri upplýsingar um verð- stöðvunarstefnu ríkisstjórnarinnar og afstöðu stjórnarandstöðunnar til henn- ar af sjónvarpsþættinum „Á öndverð- um meiði“ en af löngum umræðum í þingsölum. Sérstaklega þótti tíðindum sæta sú yfirlýsing Ólafs Jóhannesson- ar, varaformanns Framsóknarflokksins, að. hann mundi greiða frumvarpinu at- kvæði. Ekki getur neinum dulizt, að sérstök þörf er á almennri verðstöðvun nú, þeg ar útflutningsatvinnuvegirnir búa við lægra verð en áður á erlendum mörkuð um. Þá á almenn stefna um verðstöðv- un ekki síður að ná til landbúnaðar- vöru og annara veigamikilla greina en til þess varnings, sem venjulegt verð- lagsyfirlit hefur fjallað um. Kom það fram hjá Gylfa Þ. Gíslasyni, viðskipta- málaráðherra, að rúmlega helmingur þeirra vísitöluhækkana, sem orðið hafa undanfarin misseri, eigi rót sína að rekja til landbúnaðarvöru. Framsóknarmenn hafa valið sér þá furðulegu afstöðu að telja verðstöðvun ríkisstjórnarinnar 'aðeins áróður eða kosningabrellu. Ef Hermann Jónasson hefði getað komið á slíkri verðstöðvun haustið 1958, er ekkert líklegra en að hann hefði bjargað tilveru vinstri stjórnarinnar og haldið völdum enn um sinn. Þá hefðu fr'amsóknarmenn vænt- anlega ekki talað um áróðursbragð. Það er ekki sama hver 1 hlut á. Sú verðstöðvun, sem ríkisstjórnin hef ur tekið upp og er að lögfesta, er í raun inni miklu meira en gamlar heimildir til verðlagseftirlits, sem þó ná ekki til landbúnaðarvöru. Kjarni hirmar stefn- unnar eru miklar niðurgreiðslur, sem byggj'ast á hagstæðum fjárhag ríkis- sjóðs. Stefnan í heild getur varla náð tilgangi sínum, nema öll þjóðin samein ist um hana og skilji hana. í lok sjónvarpsþáttarins má segja, að Gylfi liafi rekið prófessor Ólafi rothögg ið, er hann benti á, að framsóknarmenn mundu ekki greiða frumvarpinu um stöðvun atkvæði á Alþingi, ef þeir tryðu því, sem þeir sjálfir segja þjóð- inni, að frumvarpið sé aðeins kosninga brella. Það er nýtt, ef Framsóknarmenn telja sér nauðsynlegt að greiða atkvæði með „kosningabrellum“ ríkisstjómar- innar. -----------!--!-------------------------* Bótagreiðslur al amannatrygginganna í Reykjavík ; Greiðsía fjiilskyldubóta í desember hefst sem hér segir: Þriojudaginu 13. september hefjast greiffslur með 3 börnum og fleiri í fjölskyldu. Föstudagrinn 16. desember hefjast greiðslur með 1-2 börn- um í fjölskyldu. i. Athygli skal vakin á því, að á mánudögum er afgreiðslan opin til kl. 4 síðdegis og auk þess verða greiddar allar tegundir bóta til kl. 5 síðdegis föstudaginn 16. desember og laugardaginn 17. desember. Bætur greiðast gegn framvísun nafnskírteinis bótaþega. Bótagreiðslum lýkur á þessu ári á hádegi á aðfangadag og hefjast eggi aftur fyrr en á venjulegum greiðslutímum bótai í janúar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. Heimsþekkt ( svissnesk gæða- úr vandið valið veljð NIVADA — Kaupið úrin hjá úrsmið. Magnús Ea Baldvinsson, _ úrsmiður, — Laugavegi 12, sími 22804. Hafnargötu 49, Keflavík. að örva og styrkja ný tök í kirkju legri starfsemi svo og til þess að launa menn til nauðsynlegra starfa í þágu þjóðkirkjunnar, án þess að eiga það undir löggjaf- arvaldið að sækja hverju sinni. Þetta mundi styrkja aðstöðu kirkjuþings og veita því allmiklu traustari fótfestu“. Þetta segja biskup og kirkjuþing urn sjóð- inn. í 62. grein stjórnarskrár lýð- veldisins íslands segir, að hin evangeliska lúterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á íslandi, o:g skuli ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Trúar- bragðafrelsi er svo staðfest í 63. og 64. grein stjórnarskrár- innar. Hinsvegar er að sjálf- sögðu hæpið að segja, að toér á landi ríki algjört trúfrelsi, þeg- ar ein tegund trúarbragða er tek in fram yfir aðra, boðun hennar 'haldið uppi með ærnum kostn- aði og undirstöðuatriði hennar skyldunám í skólurn. Meðan það ástand helzt hér á landi, að ríki og kirkja eru ekki aðskilin, sem auðvitað ætti þó að vera, þá hlýtur það að vera í senn sjálfsagt og eðlilegt að rík- ið hafi með fjárreiður kirkjunn- ar að gera og kjörnir fulltrúar fólksins, sem jafnframt hafa fjár veitingarvaldið í sínum höndum ráði einnig yfir fjármálum ríkis- kirkjunnar. Þetta er í rauninni bæði einfalt og sjálfsagt, þótt frumvarpið, sem hér var getið að framan geri ráð fyrir því, að svipta þingmenn hluta af fjár- veitingarvaldinu og fá það bisk- upi og kirkjuþingi. Yfirieitt heyr ast 'þingmenn ekki barma sér yf- ir því, að þeir hafi of mikil völd, heldur hinu igagnstæða, að stöð- ugt sé verið að rýra valdsvið Al- þingis. Sú stefna hlýtur að vera hæp- in, að ekki sé meira sagt, að ef mönnum tekst að spara eitthvað í ríkisrekstrinum þá megi þeir hirða þann sparnað, eða ráðstafa honum sjálfir. Það hefði verið fróðlegt að heyra til dæmis Magn ús Jónsson fjármálaráðherra láta-í l.iós álit sitt á þessari reglu sem nú virðist eiga að lögleiða. Ivfagnús hefur mikið talað um sparnað í ríkisrekstrinum og tek ið þar hispurslausar til orða en fyrirrennarar hans. Yarla getur liann verið samþykkur þessari reglu, því ef henni yrði fylgt al- mennt er hætt við að ríkisbú- skapurinn yrði undarlegur eftir þó ekki væri nema nokkur ár. Ýmislegt annað er í þessu frum- varpi, sem skrifa mætti langt Eiður Guðnason ritstjórn- arfulltrúi ritar kjallara- greinina að þessu sinni, og fjallar hún um frumvarp það, er nú liggur fyrir Al- þingi, um prestakallaskip- un og kristnisjóð og fleira. mál um. Biskupi eru þar til dæm- is veittar ærnar heimildir, eins og til dæmis: Biskupi er heimilt með samþykki ráðherra að ráða prestvígðan mann til sérstakra starfa í Skálholti (6. grein). Bisk- upi er heimlit að ráða 2 prest- vígða menn til að gegna prests- þjónustu um stundarsakir í for- föllum (7. grein). Biskupi er heimilt að ráða prestvígðan mann sem æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunnar og tvo menn hon- um til aðstoðar (8. grein). Bisk- upi er heimilt að ráða prestvígð- an mann til sérstakrar sjúkra- húsþjónustu í Reykjavík (9. gr.) Kirkjustjórn er heimilt að ráða prestvígðan mann til kirkju- legra starfa meðal íslendinga í Kaupmannahöfn (10. gr.) Þá heimilar 11. igrein biskupi að ráða prestvígðan mann til að starfa meðal íslenzkra sjómanna. Meðan kirkjusókn og áhugi á trúmálum er ekki meiri í land- inu, en raun. ber vitni, er lítil á- stæða til að auka á veldi og em- bættisbákn kirkjunnar, sem þeg- ar er ærið fyrir, og þjóðinni dýrt. Ég tel mig tovorki heiðnari né kristnari en hvern annan íslenzk an þjóðkirkjumann, en get samt ekki varizt því, að nokkurn ugg hefur sett að mér nú síðustu ár- in. Ég sé nefnilega ekki betur en verið sé að reyna að umbreyta hinni evangelísku lútersku ríkis- kirkju íslands í einskonar bast- arð af kaþólsku og lútersku. Ap minnsta kosti virðist þróunin öll, vera í þá átt; kórdrengir við, Iguðsþjónustur, grallarasöngur, messuklæði gullslegin og fleira. Þetta er því furðulegri þróun, þegar þess er gætt, að kaþólska kirkjan er nú sem óðast að hverfa frá allskyns skrautleg- heitum og tilburðum í helgihaldi. Það er áreiðanlega kominn tími til fyrir okkur íslendiriga, að staldra við og skoða hug okk- ar og athuga, hvað það er sbm raunverulega er verið að Igéra innan íslenzku þjóðkirkjunriai'. Hver er afstaða fólks almenntdil kirkjunnar og presta? Vill fólk aðskilnað ríkis og kirkju? Hvters vegna er unga fólkið frábitið kirkjusókn. Svo mætti áfram telja. Það er ekki hægt að halda mikið lengur áfram á sömu bráut og nú er farin; til þess er 1 of mörgum spurningum ósvarnð. Að lokum mætti taka undir það, sem Einar Olgeirsson sagði á AI- þingi á fimmtudaginn var, þótt annars sé yfirleitt ekki ástæða til að hampa ummælum hans, ien Einar sagði um breytingarnat' t íslenzku kirkjunni: Hvað muridi Lúther segja, e£ hann sæi það sem er að ske?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.