Alþýðublaðið - 11.12.1966, Page 8

Alþýðublaðið - 11.12.1966, Page 8
8 11. desember 1966 -SunnudagsALÞÝÐUBLAÐIÐ ✓ Kæliskápar — Frystiskápar — Frystikistur 14 GERÐIR - STÆRÐIR VIÐ ALLRA HÆFI • ATLAS kæli- og frystitækin eru glæsileg útlits, stílhrein og sigild. • ATLAS býður fullkomnustu tækni, svo sem nýja einangrun, þynnri en betri, sem veitir aukifi geymslurými og meiri styrk. • ATLAS full- nýtir rýmifi meö markvissri, vandaÖri innréttingu, og hefur m.a. lausar, færanlegar draghillur og flöskustoöir, sem einnig auöveldar hreinsun. • ATLAS kæliskóparnir hafa nýtt, lokaö ★ ★ ★ djúpfrystihólf meö nýrri gerð af hinni snjöllu, einkaleyfisvernduðu 3ja þrepa froststill- ingu. • ATLAS býður einnig sambyggða kæli- og frystiskópa með sér hurö og kuldastillingu fyrir hvorn hluta, alsjólfvirka þíðingu og raka blósturskælingu. • ATLAS hefur hljóða, létta og þétta segullokun og möguleika ó fótopnun. • ATLAS skóparnir hafa allir færanlega hurö fyrir hægri eða vinstri opnun. • ATLAS hefur stööluö mól og inn- byggingarmöguleika með þar til gerðum búnaði, listum og loft- ristum. • ATLAS býður 5 óra óbyrgö ó kerfi og trausta þjónustu. • ATLAS býður hagstætt verð. • ATLAS er afbragð. S ÍM I 2 4 4 2 0 - KÆLISKÁPAR .... — 4 STÆRÐIR SAMBYGGÐIR KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR . — 2 STÆRÐIR FRYSTISKÁPAR .... — 3 STÆRÐIR FRYSTIKISTUR .... — 3 STÆRÐIR VIÐAR-KÆLISKÁPAR — 2 STÆRÐIR me5 og ón vín- og tóboksskóps. Vol um vióortegundir. FYRSTA FLOKKS FRÁ..... SUÐURGÖTU 10 - R E Y K ) A V í K FÖNIX STÓR VERÐLÆKKUN Á APPELSÍNUM Ferskjur 38.00 og 42.00 kr. kílódósin. Ananas 39,00 kr. kílódósin. Perur 49,00 kr. kílódósin. Odýru niðursoðnu ávextirnir eru beztu matarkaupin í dag. Odýrt marmelaði og sultur. Glæsilegt vöruval — Sendum heim. Næg bílastæði. M atvörumiðstöðin Lækjarveri, á horni Hrísateigs, Rauða- lækjar og Laugalækjar. Sími 35325. þJÓÐSÖGUR og þjóðleg fræði hverskonar hafa lengi verið vinsælt lesmál og þó kannski enn þá vinsælla viðfangsefni: hvort- tveggja bera vitni mörg og stór þjóðsagnasöfn á seinni árum. Söfnun og útgáfa þjóðlegra fræða hverskonar heldur enn áfram og þjóðsögur eru væntanlega enn að gerast allt í kringum okkur. Söfn unaráhuginn veldur því hinsvegar að nútíma-þjóðsaga fær sjaldnast ráðrúm til að mótast eðlilega af meðförum sögumanna áður en hún er færð í letur; nú eru sögur skráðar sem allra næst atburðun- um sem eru undirrót þeirra. Sann fræðin er að ganga af þ.ióðfræð- inni dauðri sem þar með bverfur aftur til upphafs síns í kukli og hjátrú, sjá t. a. m. altíðar anda- trúarbókmenntir. Á seinni árum hefur veríð brot ið í blað í þjóðsagnaútgáfu — fyrst og fremst með hinni miklu endurútgáfu Þjóðsögu, bókaútgáfu Hafsteins Guðmundssonar, á Þjóð sögum Jóns Árnasonar sem er og verður undirstöðurit þessara fræða.i Síðan hefur Þjóðsaga gef ið út íjð nýju Gráskinnu S'gurðar Nordalis og Þórbergs Þórðarsonar í tveirliur bindum, stórum aukna frá fyrstu gerð, og Grímu Þor- steins M. Jónssonar og Jónasar Rafnar, einnig nokkuð aukna, í fimm bindum; ennfremur nvtsam legt kver um bókfræði þjóðsagna, Skrá um íslenzkar þjóðsögur og skyld rit sem Steindór Steindórs son frá Hlöðum hefur tekið sam- an. Allt eru þetta vegleg og vönd uð ritsöfn, afbragð annarra bóka þó ekki væri fyrir annað en hvað þær eru fallegar. Gráskinna hin meiri og Gríma hin nýja i>ni báð ar gersemar íslenzkrar bókagerð- ar á seinni árum; þessi verk sýna betur en ýms skrumfengnari rit hvers íslenzk bókagerð er raun- verulega megnug þar sem skyn- samlegt vit og smekkvísi >-æður; útgáfa þeirra er líka til marks um almennan áhuga á þessum fræð- um, markað þeirra meðal lesenda. Virðist ekki annað líklegra en út Jóliann Gunnar Ólafsson gáfunni verði haldið áfram með sama hætti, og blasa þá við nær tæk verkefni: hin stóru söfn Ól- afs Davíðssonar og Sigfúsar Sig- fússonar og svo ýms minni þjóð- sagnasöfn. En bögVull fylgir þessari mikil- fenglegu þjóðsagnaútgáfu. Þjóð- sögur Jóns Árnasonar komu upp- haflega í tveimur bindum: þau eru nú orðin sex og öll æði stór- vaxin. Gráskinna og Gríma nema samanlagt þúsundum blaðsíðna og siá má fram á heilan flota við líka verka. Verður ekki þjóðsagna lestur einhverjum óárennilegur ef fyrirsjáanlegt er frá upphafi að hann verði fullkomið ævistarf? Og er ekki hætt við að þær sögur sem mestu skipta týnist í öllum þessum umbúðum, öllu því hismi sem óhjákvæmilega fylgir svo gagngerri söfnun? Frumútgáfan af þjóðsögum Jóns Árnasonar varð. og verður, klassísk rit í bók menntunum sem fræðileg útgáfa saffnanná verður aldrei með sama hætti. Eftir sem áður er þörf á hliðstæðu þjóðsagnasafni af við- ráðanlegri stærð. úrvali hins bezta úr eldri og yngri þióðsög- um I slík'im búkum eru bjóðsög ur líklegastar til að verða áfram lifandi báttur bókmenntanna og bær vísa lesendnm bezt veginn til hinna stærri og viðameiri safna. |^ÝLEG bók af þjóðsagnatagi er Sögur og sagnir úr Vest- mannaeyjum sem Jóhann Gunnar Ólafsson skráði. Þetta safn kom upphaflega út fyrir str'ð en Skuggsjá í Hafnarfirði hefur nii gefið það út að nýju (268 bls.) efnislega óbreytt, sýnilega með hliðsjón af þjóðsagnaútgáfu Haf- steins Guðmundssönar, enda er þetta snotrasta bók. Líkast til svipar þessu safni til annarra hér aðasafna af sama tagi; eins og í öðrum slíkum er hér meira um sagnaþætti og sögufróðleik en eig inlegar þjóðsögur, mörg kvnleg atvik, draumar, váboðar og vitr- anir og slysfarir miklar eíns og von er. En margt er smálegt í fræðum þeim, og vekur bað ó- neitanlega furðu ef ekki getur heillegri sögur, kjarnmeiri og mergjaðri úr jafnsögulegum stað- og Vestmannaeyjum en eru í henni safni. ^ÖGUR segja frá fólki. Og þær gerast einhverstaðar. Sögulaust land er hálfgildings eyðimörk, en landlaus saga ekki nema staðlcysa; hvorttveggja þigg ur líf af öðru, landið og sögurnar. Fólkið í landinu á fyrri tíð, lífs hættir þess og ævikjör lifir enn í dag í þjóðsögunum sem ekki er hægt að skilja né meta nema með það þjóðíéla gí baksýn, sem ól þær af sér. Hér skulu nefndjjr tvasr þækui;. sem lúta að þessum fræðum þó enginn kostur sé að gera þeim skil. Ilíbýlahættir á miðöldum eftir Arnheiði Sigurðardóttur (Menning arsjóður, 152 bls.) er að stofni til prófritgerð höfundar til meistara prófs í íslenzkum fræðum við Há- skóla Islands. ,,I henni eru lagðar fram nokkrar athuganir um helztu íveruhús íslendinga á míð öldum, skála, stofu og siðar bað- stofu, og hlutverkaskiptingu þeirra í daglegu lífi,“ segir höf- undur í formála; og er ljóst að hér er byrjuð á miklu efni. gagn fróðlegu um hagi og háttu bjóðar innar til forna ásamt með rann- sókn á sjálfum húsakosti lands- manna. Við slíkar athuganir hefur Hörður Ágústsson fengizt undanfnrið og lýst í greinum og erindum, síðast í nýútkomnum Birt ingi (4.1966), þó enn séu þær ó- komnar í bók; við rannsókn þeirra Arnheiðar beggja þoka undan hin ar klassísku táknmyndir þjóðlífs ins á fyrri öldum, burstabærinn og baðstofan, en við blasir miklu fiölskrúðugri mynd; bæði þessi hugleiknu hús reynast hevra til m-i'k'istu öldunum í sögu þjóð- arinnar einum. Arnheiður Siguröardóttir Landið þitt eftir Þorstein Jós- epsson er mikil bók að vöxtum (Bókaútgáfan Örn og Örlygur, 440 bls.), fyrstu drög að íslenzkri stað fræði-orðabók, og raunar ekki nema helmingur hennar: þessi bók fjallar einungis um staði í byggð en önnur mun væntanleg um óbyggðir. Til bókarinnar var í upphal'i efnað sem vasakvers handa ferðamönnum, handbókar með fljótlegum upplýsingum um staðina við veginn og sér hins upp haflega tilgangs hvarvetna stað í bókinni þótt hún yxi svo sem raun varð í meðförum. Kann áð vera að liöfundur ætli sér of mik ið; þnð er. vandajaust að be.nda á ýmislegt ósamræmi í bókinni bæði í upplýsingum um einstaka , sfaði og vali uppsláttacrorða'. Efni

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.