Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 3

Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 3
STEFÁN JÚLÍUSSON Almenningsbókasöfn og ævilangt nám Grein þessi er útvarpserindi, sem höf. flutti í júlí 1972. Vorið 1972 var haldin í Danmörku á veg- um Evrópuráðsins ráðstefna um alrnenn- ingsbókasöfn og ævilangt nám. Ráðstefnan var haldin í skóla dönsku tryggingafélag- anna í Rungsted á Eyrarsundsströnd Sjá- lands, en þar er hin besta aðstaða til dvalar og fundahalda. Þátttakendur voru um 50 frá 20 Evrópulöndum. Vera má, að lesendur kippist ögn við, þegar þeir sjá orðasambandið „ævilangt nám“. Iíannski spyrja þeir ósjálfrátt: Hvað er maðurinn nú að fara? Eru umræður ekki nógar um fræðslu og menntun, skóla og nám, þótt ekki sé farið að nrasa um ævilangt nám? En leyfið mér að skýra þetta örlítið nánar, áður en lengra er haldið. Hvað er œvilangt nám? Á síðari árum hefur mikið verið rætt og ritað um fræðslu fullorðinna, alþýðumennt- un eða almenningsmenntun. Ráðstefna sú, sem hér unr ræðir, fjallaði um þetta efni jafnlrliða alnrenningsbókasöfnum. Rétt þýð- iirg á öðrum lið yfirskriftar ráðstefnunnar „permanent education“ eða „éducation per- manente“ væri þó alls ekki fullorðinsfræðsla eða eitthvað þess háttar, því að inntakið í erindum og umræðum á ráðstefnunni var miklu víðfeðmara og almennara en hið til- tölulega þrönga viðtekna lrugtak fræðsla. Og áberandi í huga hið gamla, íslenska spak- mæli „svo lengi lærir sem lifir“, hef ég leyft mér að kalla viðfangsefnið ævilaxrgt nám. En hvað er þá ævilangt nám? Með hlið- sjón af viðfangsefni og umræðum á ráð- stefnunni er einnig rétt að gera nokkra nán- ari grein fyrir því atriði. Ekki jrarf að orðlengja jrað, hversu jrjóð- félagshættir hafa breyst mjög á síðustu ár- um og áratugum, svo að viðhorf fólks til starfa eru öll önnur en áður var. Tækni kallar á kunnáttu, nýjar vélar heimta end- urhæfingu, ný efni krefjast nýtTar þekking- ar. Áður gat sanri nraður unnið sömu störí með svo að segja sömu verkfærunr og sönru handtökunr alla ævi. Þetta er liðin saga. Fjöl- breytileiki starfa, verkfæra, efnis og að- stæðna eykst með ári hverju. Nýtt og óþekkt tekur við af gönrlu og jrekktu. Þessu er ekki síður til að dreifa unr skoðanir, kenningar 3

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.