Bókasafnið - 01.01.1974, Qupperneq 5

Bókasafnið - 01.01.1974, Qupperneq 5
aldri, sem jafnan vill fræðast og leita sér nýrrar þekkingar til að auðga líf sitt og efla þroska sinn. Þetta eru einstaklingar, sem vilja afla sér betri þekkingar á tilteknu áhugasviði eða vegna tómstundaiðju, rnest til ánægju og hugarhægðar, en stundum hópar um ákveðið verkefni, annaðhvort til nytsemdar eða lífsfyllingar. Það ræður af líkum, að langerfiðast er að koma til móts við óskir þessara sundurleitu hópa eða einstaklinga og leggja þeim lið í viðleitni þeirra, tilraunum og könnunum. Leshringir, námsflokkar og föndurhópar aldraðs fólks eru þekktir, en sjálfsnám ein- staklingsins fer fram á hljóðlátari hátt, oft- ast í kyrrþey og á eigin spýtur. Bókasafnið vettvangur leitandi fólks Það var samdóma álit allra fulltrúa á um- ræddri ráðstefnu, að nútíma þjóðfélag þyrfti að koma til móts við og veita sem besta aðstöðu öllum þeirn hópum fólks í ævi- löngu námi, sem hér hafa verið nefndir. Það var einnig skoðun fulltrúa, að almenn- ingsbókasafnið þyrfti og ætti að leggja fram mikinn skerf til þessarar starfsemi. Það væri sá vettvangur, sem best ætti að vera til þess fallinn að verða við óskurn, þörfum og kröf- um hins venjulega þegns í ævilöngu námi. Höfuðviðfangsefni ráðstefnunnar var að ræða og kryfja til mergjar, hvernig almenn- ingsbókasafn ætti að vera búið gögnum, húsrými og mannafla til að geta sinnt því hlutverki sínu á sem bestan hátt að vera borgurunum aðfanga- og athafnavettvang- ur í menningarviðleitni jreirra til þroska, menntunar og ánægju. Fjögur erindi voru flutt um búnað og gögn almenningsbóka- söfn, og tvö fullkomnustu borgai'bókasöfn á Sjálandi voru skoðuð í þessu augnamiði. Ég skal fúslega játa það hér, að vafalaust kann mörgum íslendingum að koma jrað kynlega fyrir sjónir, að bókasafn skuli vera álitið svo mikils virði í uppbyggingu þeirr- ar menningarstarfsemi, sem hér hefur verið nefnt ævilangt nám. Örfá almenningsbóka- söfn á íslandi eru svo vel úr garði gerð, að þau gætu sinnt þessu verkefni, svo að veru- legu gagni kæmi. Til þessarar staðreyndar má vafalaust rekja þá ráðstöfun fræðsluyf- irvalda, að þegar skipuð var nefnd til að undirbúa og gera tillögur um fræðslu full- orðinna, var jrar enginn fulltrúi, sem hafði sérþekkingu á bókasafnsstarfsemi. Sennilega hefði þetta hvergi getað gerst nema hér á landi, og er það allgóður vitnisburður um Jrann skilning á uppbyggingu og starfsemi almenningsbókasafns, sem ríkt hefur hér fi'am til þessa. Stjórnvöld og almenningur hafa ekki litið á bókasafnið sem alhliða menningarstofnun, heldur miklu fi'emur sem takmarkaða útlánastöð bóka. Þessi skoðun verður að breytast, ef þjóðfélag þétt- býlis, nýrra vinnubragða og lífsviðhorfa á að vera fært um að veita þeguunum ]>á nauðsynlegu mannbót og Jrað menningar- framlag, sem felst í hugtakinu ævilangt nám. Auknar frístundir hrópa á betra bókasafn. Félagsheimili og bókasafn Hvergi kemur betur í ljós hinn takmark- aði skilningur yfirvalda á hlutverki al- menningsbókasafna í nútímaþjóðfélagi en í skipulagningu og uppbyggingu hinna svo- kölluðu félagsheimila. Á undanförnum ára- tugum hefur hundruðum og aftur hundr- uðum milljóna verið varið til byggingar glæsilegra félagsheimila úti um allt land. Ætla hefði mátt, að bókasafn sveftarfélags- ins eða héraðsins hefði yfirleitt fengið gott rými og aðstöðu í þessum stóru og dýru félagsheimilum. Lestrarfélagið eða bóka- safnið var þó alla jafna ein elsta menning- arviðleitnin í sveitinni eða héraðinu og átti sums staðar ríkan þátt í að efla félagsþroska fólks og menningarframsókn. En með ör- fáum undantekningum hefur Jressu verið öfugt farið. Venjulegast er bókasafninu hol- að niður í kjallarakompu eða afkima til hliðar í hinum glæsilegu félagsheimilum, 5

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.