Bókasafnið - 01.01.1974, Qupperneq 8
GUÐRÚN KARLSDÓTTIR
Bókasöfn í Færeyjum
Tvö stærstu bókasöfn í Færeyjum, Borgar-
bókasafnið í Þórshöfn (Býarbókasavnið) og
Landsbókasafnið (F0roya Landsbókasavn)
eru staðsett í Þórshöfn á Straumey. Frá
Landsbókasafninu eru starfrækt útibú bæði
í sjálfri Þórshöfn og annars staðar á eyjun-
um. Hér verður einkum fjallað um Lands-
bókasafnið, en það er stærst færeysku safn-
anna og jafnframt elsta bókasafn í Færeyj-
um. Önnur söfn verður aðeins lítillega
drepið á.
Landsbókasafn Færeyja var stofnað árið
1828 eða áratug síðar en Landsbókasafn ís-
lands. Nefndist safnið þá Fproya Amts
Bókasavn. Sú þjóðernisvakning, sem fór um
Norðurálfuna um þessar mundir og hafði
mikil áhrif hér á íslandi sem annars staðar,
barst einnig til Færeyja og Færeyingar tóku
að leggja aukna rækt við menningarlega arf-
leifð sína. Þar, eins og hér á íslandi, komu
menningarfrömuðirnir Carl Christian Rafn
og Rasmus Rask mjög við sögu og áttu
drjúgan þátt í stofnun Landsbókasafns.
Jens Davidsen, landsbókavörður, hafði
einnig verið einn aðalhvatamaðurinn að
stofnun Landsbókasafns.
Framan af 19. öld fékkst lítið fræðirita í
Færeyjum. Þær bækur, sem helst voru fáan-
legar í dönsku kóngsverslununum, voru
danskar lestrar- og sálmabækur. Þeir, sem
vildu eða þurftu að lesa annað, urðu að
skrifa til Kaupmannahafnar eftir bókum.
Embættismenn hljóta að hafa átt einhvem
kost fræðirita. Um slík einkasöfn er þó lítið
vitað og ekki virðast þau almennt hafa geng-
ið til Landsbókasafnsins. Stofnbókakostur
Landsbókasafnsins er samt sem áður einmitt
einkabókasafn. Það einkasafn var í eigu
lögfræðings að nafni Hammershaimb.
Hammershaimb lést 1828 og voru bækur
hans seldar á uppboði 31. júlí 1828. Keypti
Landsbókasafnið 217 bindi. í safni Hamm-
ershaimbs voru aðallega lagabækur og land-
búnaðarrit en einnig sagnfræðirit og fagur-
bókmenntir.
Árið 1830 fluttist safnið í eigið húsnæði.
Landsbókasafnið var útlánasafn frá upphafi
og er enn. Síðar var lögð ríkari áhersla á
varðveisluskyldu safnsins og það gert að
eiginlegu þjóðbókasafni.
Útlán safnsins jukust árvisst framan af en
síðan tók að draga úr útlánum aftur og gekk
svo fram til ársins 1860. Eftir að Jens David-
sen landsbókavörður deyr árið 1878, lendir
safnið í öldudal aftur og er það þá lokað
um tíma.
Árið 1918 verður mikil vakning í bóka-
safnsmálum í Færeyjum. Þá kemur fram
tillaga í Danmörku um að gera Landsbóka-
safnið að nokkurs konar miðsafni fyrir Fær-
eyjar og árið 1919 fór þáverandi landsbóka-
vörður, M. A. Jacobsen, til Danmerkur að
kynna sér bókasafnsskipan þar í landi. Sneri
hann aftur til Færeyja árið 1920. Þá var
hafist handa um endurskipulagningu bóka-
safnsins og jafnframt byrjað að flokka í
samræmi við danska útgáfu Dewey-kerfis-
ins. Var það mikið verk og unnið við það
næstu áratugi.
Eftir að M. A. Jacobsen kemur aftur
8