Bókasafnið - 01.01.1974, Qupperneq 14
þátttakendanna, Esko Hakli frá Helsing-
fors, hélt ræðu. Fimmtudaginn 11. okt. var
gert hlé á fundarhöldunum, og var Lands-
bókasafn heimsótt um morguninn, en síð-
an þágu þátttakendur hádegisverð í boði
menntamálaráðherra. Að því búnu var Há-
skólabókasafn heimsótt og síðan Arnastofn-
un. Þá tók við fundur í Norræna liúsinu
með stjórn Bóksalafélags íslands, en nokkr-
ir þátttakenda höfðu látið í ljós óskir um að
hitta forsvarsmenn bókaútgefenda með til-
liti til öflunar íslenskra bóka. Loks var
þennan dag síðdegisboð hjá sendiherra Svía.
Á föstudag var þingað daglangt, og loka-
fundur mótsins var haldinn fyrir hádegi á
laugardag. Síðdegis þann dag tóku sumir
þátttakenda sér far til Vestmannaeyja, aðrir
skoðuðu sig um í Reykjavík og nágrenni.
Fyrir fundinn höfðu heimamenn kviðið
því nokkuð, að íslensk haustveðrátta kynni
að gera gestum okkar lífið leitt. Sá ótti
hafði þó til þessa reynst ástæðulaus. En nú
reið á miklu, því að sunnudaginn 14. okt.,
síðasta dvalardag gestanna hér, var ætlunin,
að þeir færu hina sígildu hringferð um Suð-
urland og viðkomustaðir yrðu Þing'vellir,
Skálholt, Geysir, Gullfoss og Hveragerði. En
heppnin var enn þá með í för, veður liélst
þann dag svo bjart og fagurt sem framast
má verða á íslenskum haustdegi. Til við-
bótar fundargestum slógust í ferðina nokkr-
ir íslenskir bókaverðir, og gáfust hér enn
tækifæri til frekari kynna og viðræðna. Gest-
irnir áttu að halda utan í býtið á mánu-
dagsmorguninn, og kvöddu þeir því heima-
menn með virktum við komuna til Loft-
leiðahótelsins að enduðu ferðalaginu. Varð
ekki annað séð en þeir væru harðánægðir
með dvöl sína liér, þótt þeir að vísu fengju
ekki að reyna íslenska haustveðráttu í öll-
um sínum fjölbreytileika!
Nú má ætla, að háttvirtum lesendum þyki
tími til kominn, að eitthvað sé sagt frá
fundarhaldinu sjálfu og umræðum þar.
Fundarmenn á tröppum Landsbókasafnsins.
14